Auglýsingar á Strætó valda deilum um tjáningarfrelsi

Aug­lýs­inga­borðar sem birt­ust á dönskum stræt­is­vögnum í lok apríl, og voru fjar­lægðar nokkrum dögum síðar hafa valdið miklum deilum. For­svars­menn stræt­is­vagna­fyr­ir­tæk­is­ins eru sak­aðir um að virða lög um tján­ing­ar­frelsi að vettugi og beygja sig fyrir kvört­unum Ísraela.

Félags­skap­ur­inn Dansk-Palen­stínska vin­áttu­fé­lagið, sem var stofnað 1988 til að vekja athygli á mál­efnum íbúa Palest­ínu, lét útbúa aug­lýs­inga­borð­ana sem límdir voru á hliðar 35 danskra stræt­is­vagna í Kaup­manna­höfn og nágrenni. Textinn er ekki flók­inn en hljómar á þessa leið í íslenskri þýð­ingu: „við höfum hreina sam­visku ! Við kaupum ekki vörur frá ísra­elskum land­töku­svæðum né fjár­festum í land­töku­iðn­að­inum.“ Á borð­unum eru líka fjögur landa­kort sem sýna hvernig palen­stínskt land­svæði hefur skroppið saman frá 1967 til dags­ins í dag. Aug­lýs­inga­borð­arnir voru all­stórir og mjög áber­andi á hliðum stræt­is­vagn­anna sem aka vítt og breitt um borg­ina og nágranna­sveit­ar­fé­lögin.

Löng auglýsingahefð en pólitík bönnuð


Löng hefð er fyrir aug­lýs­ingum á stræt­is­vögnum í Danmörku. Aug­lýs­ingar um ferða­lög, far­síma, brjósta­stækk­anir, lottó, bíla, ost og jógúrt, svo fátt eitt sé nefnt, blasa iðu­lega við augum veg­far­enda þegar strætó brunar fram­hjá. Þar má líka iðu­lega sjá aug­lýs­ingar frá stjórn­mála­flokk­unum (einkum þegar kosn­ingar nálg­ast) en þær hafa oft verið umdeildar því lögum sam­kvæmt má ekki vera með flokkspóli­tískan áróður í aug­lýs­ingum á almanna­færi. Þessi lög hafa þó verið túlkuð fremur frjáls­lega nema hvað varðar aug­lýs­inga­spjöld fram­bjóð­enda sem hengd eru á ljósastaura, girð­ingar og veggi um allt land. Spjöldin má ekki setja upp fyrr en á til­teknum degi og þá er mik­ill handa­gangur í aug­lýs­inga­öskj­unni, á „upp­heng­ing­ar­deg­inum“ eins og hann er kall­aður hér.

Strætisvagnafyrirtækið samþykkti auglýsingarnar


Hjá stræt­is­vagna­fyr­ir­tæk­inu, Movia, gilda ákveðnar reglur varð­andi aug­lýs­ingar á vögn­unum. Fyrst fara þær í hendur starfs­manns sem metur hvort þær upp­fylli almenn skil­yrði eins og það er orðað. Ef minnsti vafi leikur á um eitt­hvað í texta eða á myndum sem eiga að vera í aug­lýs­ing­unum metur lög­fræð­ingur Movia málið og telji hann ástæðu til fer við­kom­andi aug­lýs­ing fyrir stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, sem er póli­tískt skipuð. Starfs­mað­ur­inn sem fyrstur fékk hina umdeildu aug­lýs­ingu í hendur sá ekk­ert athuga­vert við hana og bar efni hennar ekki undir lög­fræð­ing fyr­ir­tæk­is­ins áður en borð­arnir voru límdir á stræt­is­vagn­ana.

Gyðingar kvörtuðu


Ekki voru liðnir nema tveir klukku­tímar frá því að fyrstu stræt­is­vagn­arnir brun­uðu af stað snemma morg­uns mánu­dag­inn 27. apríl þegar sím­arnir hjá Movia fóru að hringja og tölvu­póstur að ber­ast. Þeir sem voru svo fljótir til voru gyð­ingar og fólk af gyð­inga­ættum sem töldu að þarna væri að sér vegið með grófum hætti. Strax þennan sama morgun var lög­fræð­ingur Movia kall­aður til og óskað álits hans á aug­lýs­ing­unum. Álit hans var að aug­lýs­ing­arnar brytu ekki í bága við lög og benti meðal ann­ars á sam­þykkt Evr­ópu­sam­bands­ins frá árinu 2012 (og reyndar aðra eldri) þar sem þess er kraf­ist að Ísraelar merki sér­stak­lega þær vörur sem fram­leiddar eru á land­töku­svæð­unum en yfir­taka Ísraela á þeim svæðum er ólög­leg sam­kvæmt þjóð­rétt­ar­reglum. Ísraelar hafa ekki ekki virt kröf­urnar um sér­stakar merk­ingar á vörum frá land­töku­svæð­unum.

Sendiherrann fór til strætófyrirtækisins og kvartaði


Þann 28. apríl, dag­inn eftir að aug­lýs­ing­arnar birt­ust gekk Ísra­elski sendi­herr­ann í Kaup­manna­höfn á fund for­stjóra Movia og kvart­aði. Sagði aug­lýs­ing­arnar áróður gegn Ísrael og gyð­ingum. For­stjór­inn sagði að sam­kvæmt áliti lög­fræð­ings fyr­ir­tæk­is­ins brytu þær á engan hátt í bága við lög um tján­ing­ar­frelsi hér í Danmörku.

Stjórn Movia hélt fund um auglýsingarnar


Næst gerð­ist svo það að stjórn stræt­is­vagna­fyr­ir­tæk­is­ins hélt fund. Þar var fjallað um aug­lýs­ing­arnar og lög­fræði­á­litið sem áður var nefnt. Stjórnin ákvað á þessum fundi að aug­lýs­ing­arnar skyldu fjar­lægðar. Þegar fjöl­miðlar ósk­uðu rök­stuðn­ings á þess­ari ákvörðun var því svarað til að Ísraelar og gyð­ingar í Danmörku teldu þær móðgun og að mikið hefði verið kvartað vegna þeirra. Þegar eftir var gengið kom fram að sam­tals hefðu þær verið um eitt­hund­rað.

Sögðu auglýsingarnar minna á áróður nasista gegn gyðingum


Sumir þeirra sem kvört­uðu sögðu að aug­lýs­ing­arnar bæru keim af áróðri nas­ista í síð­ari heims­styrj­öld. Þeim væri beint gegn minni­hluta­hópi hér í Danmörku, hópi sem væri í sárum eftir árás­ina og morðið við bæna­húsið í Krystal­gade, í mið­borg Kaup­manna­hafnar, í febr­úar.

Afstaða danskra stjórn­mála­manna skipt­ist nokkuð í tvö horn, og ekki eftir flokkslínum. Sumir þeirra segja að Ísraelar séu vina­þjóð Dana og aug­lýs­ing­arnar séu sær­andi. Aðrir segja að Ísraelar ættu kannski að líta í eigin barm, þeir hafi alltof lengi kom­ist upp með að troða á rétti Palest­ínu­manna. Þar tali stað­reynd­irnar sínu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár