Tvö íslensk nýsköpunarfyrirtæki í viðskiptahraðalinn Climate-KIC

Nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækin Arctus og Crowbar Protein fengu inn­göngu í við­skipta­hrað­al­inn Climate-KIC á dög­unum. Þrjú íslensk teymi tóku þátt í úrslitum ClimateLaunchpad, stærstu hug­mynda­sam­keppni í tengslum við lofts­lags­mál í heim­inum, í Amster­dam. Alls bár­ust 35 íslenskar hug­myndir í keppn­ina.

Fyr­ir­tækið Arctus hlaut annað sæti í hug­mynda­sam­keppn­inni. Jón Hjalta­lín Magn­ús­son fór fyrir Arctus í Amster­dam en fyr­ir­tækið er stofnað í kringum orku­nýt­ari og umhverf­is­vænni aðferð til að fram­leiða ál en hingað til hefur verið gert. Í til­kynn­ingu frá Klak Innovit segir að Arctus hafi hlotið 5.000 evrur í verð­launafé, and­virði um það bil 750.000 krónum. Engin útblástur koltví­oxíðs fylgir fram­leiðslu­að­ferð­inni því kola­skaut eru ekki notuð eins og hefð­bundnum álverum.

Þá varð Crowbar Protein, fyr­ir­tæki Stefáns Atla Thorods­sen og Búa Bjarmars Aðal­steins­sonar, meðal tíu bestu hug­mynd­anna sem fá inn­göngu í Climate-KIC. Fyr­ir­tækið fram­leiðir mat­vörur úr skor­dýrum og hefur tekið þátt í hug­mynda­sam­keppnum hér Íslandi, bæði Gul­leg­inu og Startup Reykja­vík, með góðum árangri.

Sig­ur­hug­myndin, Desertcontrol, kemur frá Noregi og gengur út á að búa til rækt­ar­land í sönd­ugum jörðum eins og eyði­merkum. Hug­myndin stuðlar að því að halda nær­ing­ar­efnum planta og vatni í jarð­veg­inum, eins og í nátt­úru­legu rækt­ar­landi. Desertcontrol hlaut 10.000 evrur í verð­launafé til að þróa hug­mynd sína áfram.

Þriðja íslenska fyr­ir­tækið sem kynnt var í sam­keppn­inni í Amster­dam var e1. Axel Rúnar Eyþórs­son fór fór fyrir því teymi, en þar er stefnt að því að búa til mark­aðs­torg fyrir eig­endur raf­bíla og eig­endur hleðslu­stöðva. Með appi í snjall­síma má svo finna hag­stæð­ustu lausu hleðslu­stöð­ina.

Nálægðin við náttúruna hvetur til grænnar nýsköpunar


[caption id="" align="align­right" width="240"] Stefán Þór Helgason[/caption]

„Ég held að Íslend­ingar sjái betur tæki­færin í end­ur­nýj­an­legri orku því hún er allt í kringum okkur,“ segir Stefán Þór Helgason, verk­efn­is­stjóri hjá Klak Innovit. Hann hélt utan um þátt­töku Íslands í keppn­inni í Amster­dam. „Af því að Íslend­ingar hafa í gegnum árin nýtt græna og hreina orku, með því að virkja fall­vötnin og nota jarð­hita, þá eru tæki­færin svo skýr fyrir framan okkur. Ísland er svo full­kom­inn staður, bæði til þess að sjá mögu­leik­ana og til að gera til­raunir.“

Klak Innovit stendur nú fyrir tveimur við­skipta­hröðlum fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki. Það er Startup Reykja­vík og Startup Energy Reykja­vík sem fór af stað fyrir tæpum tveimur árum. Stefán Þór segir þau hjá Klak Innovit hafa áttað sig á áhuga Íslend­inga á nýsköpun í orku­geir­anum og ákveðið að setja sér­stakan við­skipta­hraðal í gang.

„Við byrj­uðum með Startup Reykja­vík sem gekk meira út á hug­búnað,“ segir Stefán Þór. „Í kjöl­farið átt­uðum við okkur á að íslenskir frum­kvöðlar væru mjög orku­þenkj­andi og þá fór Startup Energy Reykja­vík af stað í sam­starfi við Lands­virkjun, Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands og Arion banka.“

Hann segir nýsköpun í orku­geir­anum sjálf­krafa hafa jákvæð umhverf­is­leg áhrif. „Sjálf­krafa þegar maður er að hugsa um orku­geiran á Íslandi, jarð­hit­ann, fall­vötnin og allt þetta, þá ertu að hugsa grænt. Þú ert að vinna með hug­myndir sem menga lítið eða ekk­ert og auka skil­virkni þeirra.“

Mikilvægur þáttur í loftslagsmálum


Á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í París í des­em­ber, COP 21, er mark­miðið að kom­ast að laga­lega bind­andi sam­komu­lagi allra þjóða heims um að minnka losun koltví­oxíðs út í and­rúms­loftið. Til þess að lofts­lags­mark­miðin verði að veru­leika er ljóst að gríð­ar­lega mik­illar fjár­fest­ingar er þörf í nýsköpun og þróun umhverf­is­vænnar tækni.

Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, gerði þetta til dæmis að umræðu­efni sínu í ræðu í lok síð­asta mán­aðar. Frakkar eru gest­kjafar ráð­stefn­unar og í for­sæti hennar þegar hún hefst. „Ef við ætlum að ná árangri í París þurfum ekki aðeins að ráð­ast í póli­tískar skuld­bind­ingar heldur einnig fjár­hags­legar,“ sagði Hollande, eins og Kjarninn greindi frá.

Hollande bendir á að varla verið kom­ist að alheims­sam­komu­lagi nema fátæk­ustu þjóðum heims, van­þróuð lönd í Afríku til dæmis, verði gefið tæki­færi til að kom­ast hratt og örugg­lega fram­hjá leiðum iðn­væð­ingar. Þróuð iðn­ríki á Vest­ur­löndum geta ekki gert ráð fyrir að van­þróuð ríki til­einki sér dýrar tækninýj­ungar til þess eins að kom­ast yfir meng­andi hjalla iðn­væð­ingar án þess að allir legg­ist á eitt.

Fjár­fest­ing í nýsköpun er ekki síður mik­il­væg til að hraða þróun á vist­vænni fram­leiðslu, ekki síst orku­frekum iðn­aði.

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna styðst við tvö lyk­il­hug­tök þegar stefna mann­kyns­ins er mörkuð í þessum mála­flokki. Það er mildun (e. mitigation) og aðlögun (e. adaptation). Það er mik­il­vægt fyrir heim­inn að milda áhrif mann­kyns á lofts­lag jarðar en það er einnig ljóst að mann­kynið verður að aðlag­ast breyttum aðstæðum vegna hlýn­unar jarðar.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Jón Hjalta­lín Magn­ús­son tók við verð­launum fyrir annað sæti í hug­mynda­sam­keppn­inni í Amster­dam.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár