Samstaða á COP 21 ómöguleg án aukins fjármagns

Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, telur ómög­legt að ná sam­stöðu um bind­andi lofts­lags­sam­komu­lag á loft­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna (COP 21) í París í des­em­ber nema iðn­væddar þjóðir greiði árlega 100 millj­arða evra til þró­un­ar­landa, and­virði 14.515 millj­arða íslenskra króna.

„Ef við ætlum að ná árangri í París þurfum ekki aðeins að ráð­ast í póli­tískar skuld­bind­ingar heldur einnig fjár­hags­legar,“ sagði Hollande í ræðu í París á fimmtu­dag. Ef þró­un­ar­lönd eiga að kom­ast hjá því að iðn­væð­ast eins og Vest­ur­lönd og hefja notkun end­ur­nýt­an­lega orku­gjafa verði iðn­vædd ríki að reiða 100 millj­arða evra af hendi árlega.

„Þetta er lof­orð sem þegar hefur verið brotið,“ sagði for­set­inn. „Nú er þetta skil­yrði. Án 100 millj­arða verður ekk­ert af sam­komu­lagi í París.“ Hollande bætti svo við að upp­hæðin sé óhjá­kvæmi­leg til þess að hjálpa fátæk­ari þjóðum í bar­áttu sinni við öfra­full veð­ur­af­brigði og hækk­andi yfir­borð sjávar vegna lofts­lags­breyt­inga. Fyrir sex árum hafi þessum þjóðum einnig verið lofuð aðstoð við upp­bygg­ingu hreinna orku­gjafa.

Á lofts­lags­ráð­stefn­unni er mark­miðið að búa til laga­lega bind­andi sam­komu­lag allra ríkja heims um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í and­rúms­loftið sem taka á gildi árið 2020, eða þegar Kýótó-bók­unin fellur úr gildi. Það sama var reynt í Kaup­manna­höfn árið 2009 en ágrein­ingur iðn­væddra þjóða við þró­un­ar­lönd varð til þess að við­ræður runnu út í sand­inn.

Alls er ráð­gert að full­trúar 195 ríkja komi saman í París á COP 21 í des­em­ber. Þær þjóðir sem taka þátt hafa til 1. októ­ber til að skila Sam­ein­uðu þjóð­unum áætlun um minnkun los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Aðeins 55 þjóðir hafa þegar skilað, þar á meðal Ísland sem fylgir mark­miðum Evr­ópu­sam­bands­ins og Noregs um 40 pró­sent minni losun árið 2030 miðað við losun árs­ins 1990.

„Við erum á réttri braut en erf­ið­asti hjall­inn er enn eftir svo við verðum að vinna hratt,“ sagði Hollande. Hann til­kynnti einnig við þetta tæki­færi að hann muni ferð­ast til Kína í nóv­em­ber og eiga fund með Xi Jinping, for­seta Kína, og svo til Suður-Kóreu þar sem höf­uð­stöðvar Græna lofts­lags­sjóðs­ins (Green Climate Fund) eru stað­settar. Sjóð­ur­inn er vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna og er hugs­aður sem leið þró­aðra ríkja til að dreifa pen­ingum til þró­un­ar­landa til að stemma stigu við lofts­lags­breyt­ingum.

Framlag stærstu efna­hags­velda heims til hjálp­ar­starfs vegna lofts­lags­mála er nú um 30 millj­arðar evra. Sjö stærstu iðn­veldi heims (G7) fund­uðu í Þýska­landi í júní en voru gagn­rýnd fyrir að ræða ekki áætl­anir um að auka fram­lag sitt til árs­ins 2020.

Í dag hófst fundur í Durban-funda­röð­inni í Bonn þar sem drög að sam­komu­lagi eru und­ir­búin fyrir ráð­stefn­una í París. Fund­ur­inn mun standa alla vik­una en unnið hefur verið að sam­komu­lag­inu í funda­röð­inni COP 17-lofts­lags­ráð­stefnan var haldin í Durban í Suður Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár