Vaxandi spenna á Kóreuskaga

Stjórn­völd í Norður- og Suður-Kóreu munu í dag funda vegna ástands­ins á landa­mærum ríkj­anna, en her­menn sem gæta hlut­lausa svæð­is­ins við landa­mærin skipt­ust á skotum á fimmtu­dag­inn.

Vaxandi spenna hefur verið þar und­an­farna daga og Norður-Kóreu­menn hafa hótað því að ráð­ast í miklar hern­að­ar­legar aðgerðir ef Suður-Kóreu­menn hætta ekki að útvarpa í gegnum hátal­ara á landa­mær­unum frá og með deg­inum í dag. Suður-Kóreu­menn hafa brugð­ist við þeim hót­unum með því að flytja fjögur þús­und íbúa í nágrenn­inu frá landa­mær­unum og vara við því að ef Norður-Kóreu­menn grípi til ein­hverra aðgerða verði þeim svarað af fullri hörku.

Upphaf spenn­unnar nú er sú að tveir suður-kóreskir her­menn slös­uð­ust alvar­lega af völdum jarð­sprengja á hlut­lausa svæð­inu á dög­unum. Stjórn­völd í Suður-Kóreu segja að Norður-Kóreu­menn hafi komið sprengj­unum þar fyrir, en því hafna Norður-Kóreu­menn og segja það frá­leitt. Í kjöl­far þessa hófu her­menn að skjóta, en her­búðir beggja segja að hinir hafi skotið fyrst.

Í kjöl­far spreng­ing­anna hófu Suður-Kóreu­menn að hefja á ný notkun hátalar­anna á svæð­inu, sem höfðu verið hljóðir í ell­efu ár fram að því. Útvarpað er fréttum, veð­ur­spá og tón­list frá Suður-Kóreu á svæð­inu.

Banda­rískar her­flug­vélar hafa flogið yfir landa­mærin ásamt flug­vélum frá suður-kóreska hernum und­an­farna daga og í morgun sendi varn­ar­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna frá sér yfir­lýs­ingu frá yfir­manni hers­ins, Martin Dempsey, þar sem fram kemur að hann hafi rætt við yfir­mann suður-kóreska hers­ins, Choi Yoon-Hee, í gær. Þeir hafi sam­mælst um að herir beggja ríkja muni fylgj­ast vel með Norður-Kóreu næstu daga og Banda­ríkin séu nú sem fyrr skuld­bundin því að verja Suður-Kóreu.

Tveir hátt­settir ráð­gjafar stjórn­valda sitt­hvoru megin við landa­mærin funda nú í þorp­inu Pan­munjom. Eins og BBC bendir á er hins vegar vanda­mál fólgið í því að aðilar máls­ins eru ekki einu sinni sam­mála um hvað hefur átt sér stað und­an­farna daga. Í sam­tali við Guardian segir Yang Moo-jin, pró­fessor í Seúl, að vegna þess hversu hátt­settir ráð­gjafar séu nú komnir til fundar sé hægt að breyta þess­ari krísu í tæki­færi. Margir líti svo á að hót­anir Norður-Kóreu­manna séu til­raun til þess að ná athygli. Þó segja sér­fræð­ingar sem Guardian ræddi við að þessir atburðir und­an­farið séu þeir alvar­leg­ustu á svæð­inu frá því að Kim Jong-un komst til valda í Norður-Kóreu árið 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár