Í viðræðum við Illums Bolighus um verslun á Hafnartorgi

For­stjóri Regins segir við­ræður standa yfir við alls kyns aðila í Skand­in­avíu um að opna versl­anir á Hafn­ar­torgi.

Framkvæmdir við Hafnartorg hafa staðið yfir frá vormánuðum 2016. Áætlað er að þeim ljúki um mitt næsta ár.
Fram­kvæmdir við Hafn­ar­torg hafa staðið yfir frá vor­mán­uðum 2016. Áætlað er að þeim ljúki um mitt næsta ár. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fast­eigna­fé­lagið Reginn hefur átt í við­ræðum við eig­endur dönsku hús­gagna- og bús­á­hald­ar­versl­un­ar­innar Illums Bolighus um að opna verslun á Hafn­ar­torgi í mið­borg Reykja­víkur. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Helgi S. Gunn­ars­son, for­stjóri Regins, vill ekki stað­festa það við blaðið að við­ræð­urnar standi yfir en full­yrt er í frétt þess að sam­komu­lag þess efnis sé enn ekki komið í höfn. Helgi segir hins vegar að rætt hafi verið við alls kyns aðila í Skand­in­avíu um að opna versl­anir á Hafn­ar­torgi. Versl­unar- og veit­ing­ar­rýmið á Hafn­ar­torgi í eigu Regins á Hafn­ar­torgi er alls um 8.600 fer­metrar, en hús­næðið er nú í bygg­ingu. Það á að vera til­búið um mitt ár 2018. ÞEgar hefur verið greint frá því að H&M muni opna verslun þar. Þegar að þeirri opnun kemur verður H&M þegar búið að opna tvær aðrar versl­anir hér­lendis, í Smára­lind og Kringl­unni.

Illums Bolighus er ekki sama fyr­ir­tæki og Illum, sem rekur stór­verslun á Strikinu og var um tíma í eigu Baugs Group og ann­arra íslenskra fjár­festa. Flagg­skips­verslun Illums Bolighus er þó rekin í næsta húsi við Illum, en hún er um tíu þús­und fer­metrar að stærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár