27 ungmenni ákærð vegna falsaðra prófskírteina

Árið 2013 uppgötvaði nefnd, sem fer með eftirlit háskólanáms, að 19 manns með fölsuð prófskírteini höfðu sótt um skólavist í dönskum háskólum.
Árið 2013 upp­götv­aði nefnd, sem fer með eft­ir­lit háskóla­náms, að 19 manns með fölsuð próf­skír­teini höfðu sótt um skóla­vist í dönskum háskólum. Mynd: EPA

Danska lög­reglan hefur ákært 27 ung­menni sem hafa notað fölsuð próf­skír­teini til að kom­ast í háskóla­nám. Flestir hinna ákærðu eru útlend­ingar, búsettir í Danmörku.

Orðrómur um fölsuð loka­prófs­skír­teini úr fram­halds­skóla hefur árum saman verið á kreiki í Danmörku. Lengst af voru slíkar sögur ein­ungis kvittur sem hvorki fékkst sann­aður né stað­festur. Árið 2013 upp­götv­aði nefnd, sem fer með eft­ir­lit háskóla­náms, að 19 manns með fölsuð próf­skír­teini höfðu sótt um skóla­vist í dönskum háskólum. Undir venju­legum kring­um­stæðum væri um slík mál fjallað í sam­vinnu lög­reglu, við­kom­andi skóla og hand­hafa skír­tein­is­ins. Eft­ir­lits­nefnd­inni þótti hins­vegar þessi 19 skír­teini líkj­ast hvert öðru og það vakti grun um að þau hefðu verið gerð hjá hjá einum og sama „fram­leið­and­anum“. Í fram­haldi af þessu ákvað eft­ir­lits­nefndin að kæra málið til lög­reglu og jafn­framt að fram­vegis yrðu öll slík mál kærð.

Flestir hinna ákærðu útlendingar

Fyrir nokkrum dögum ákærði lög­reglan í Kaup­manna­höfn 27 ung­menni vegna falskra próf­skír­teina. Lög­reglan hefur upp­lýst að margir hinna ákærðu hafi ekki lokið fram­halds­skóla­prófi en í hópnum er líka fólk sem hafði lokið slíku prófi en með mun lægri ein­kunn en kom fram á „nýja“ skír­tein­inu. Einkunn sem ekki dugir til að kom­ast inn í danska háskóla,eða aðra sam­bæri­lega skóla, þar sem kröfur um ein­kunnir hafa verið hertar mjög á síð­ustu árum.

Árið 2015 sóttu tæplega 100 þúsund um skólavist

Í gögnum danska mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins má sjá að á síð­asta ári sóttu tæp­lega 100 þús­und manns um skóla­vist í dönskum háskólum og öðrum sam­bæri­legum mennta­stofn­unum í land­inu. Af þessum hópi fengu um það bil 29 þús­und skóla­vist.

Algeng­asta aðferðin við að senda inn umsókn er að nota sér­staka vef­síðu, Opta­gelse.dk. Til þess að geta farið þessa leið þarf umsækj­and­inn að hafa danska kenni­tölu og auð­kennis­lykil (Nem-id). Þá sækir við­kom­andi skóli ein­kunnir umsækj­and­ans í sér­stakan ein­kunna­banka, þar sem fram­halds­skól­inn hefur fært þær inn. Þarna er engin leið að breyta ein­kunnum. Þessa aðferð not­uðu um það bil 90 þús­und manns á síð­asta ári.

Önnur leið til að sækja um skóla­vist er að senda inn gögn, ann­að­hvort sem skjöl á net­inu, eða á pappír eins og lengstum tíðk­að­ist. Þessa leið not­uðu um það bil 9 þús­und nem­endur í fyrra, í lang­flestum til­vikum útlend­ingar sem ekki hafa danska kenni­tölu og þar af leið­andi ekki auð­kennis­lyk­il­inn Nem-id. Það er fólk úr þessum hópi sem lög­reglan segir að hafi reynt að nota fölsk skír­teini til að detta í lukku­pott­inn eins og full­trúi lög­regl­unnar komst að orði.

Þrír taldir hafa útbúið fjölda falskra skírteina

Meðal þeirra 27 sem nú hafa verið ákærðir fyrir að nota fölsk skír­teini til umsóknar um skóla­vist eru þrír sem lög­reglan telur að hafi útbúið öll skír­teinin. Algeng­asta aðferðin varð­andi þá sem lokið hafa fram­halds­skóla­prófi er að ein­kunn sé breytt, hærri tala sett í stað lægri. Varðandi þá sem ekki hafa lokið prófi hafa fals­ar­arnir notað þá aðferð að breyta nafn­inu á skír­teini nem­anda sem útskrif­ast hefur með háar ein­kunnir á spjald­inu. Hvernig fals­ar­arnir hafa kom­ist yfir slík skír­teini vill lög­reglan ekki tjá sig um.

Hvað kostar falsað útskriftarskírteini?

Lög­reglan telur að fals­ar­arnir hafi viljað fá greiddar 20 þús­und danskar krónur (ca 380 þús­und íslenskar) fyrir hvert skír­teini. Þeir hafi ekki í öllum til­vikum borið svo mikið úr býtum, sumum hafi tek­ist að prútta um verðið. Þetta telj­ast ekki háar upp­hæðir í „fals­ara­brans­anum“ að sögn lög­reglu, sem ekki vildi nefna refsi­kröfur.

Eftirsóttustu skólarnir

Kröfur danskra háskóla til ein­kunna verð­andi nýnema eru mis­mun­andi. Þeir skólar sem mestar kröfur gera eru: Kaup­manna­hafn­ar­há­skóli, Copenhagen Business School, Copenhagen Business Academy og Pro­fessions­höjskolen Metropol. Þessir fjórir skera sig nokkuð úr hvað kröfur um ein­kunnir nýnema varðar. Aðrir skólar miða við lægri með­al­ein­kunn til inn­göngu.

A og B skólar

Nokkrir danskir sér­fræð­ingar um skóla­mál telja að hinar mis­mun­andi inn­töku­kröfur hafi í för með sér að danskir háskólar séu að breyt­ast í það sem sér­fræð­ing­arnir kalla A og B skóla. Í hópi A skól­anna séu þeir fjórir sem áður voru nefndir og Háskól­inn í Árósum og Danski tækni­há­skól­inn, DTU. Þetta telja sér­fræð­ing­arnir frekar slæma breyt­ingu. Hætta sé á að háskólar þar sem nem­enda­hóp­ur­inn er með lægri ein­kunnir úr fram­halds­skóla geri minni kröfur til nem­end­anna. Þessi umræða er ekki sér­danskt fyr­ir­bæri, þekk­ist til dæmis á Íslandi.

Skólarnir vilja fyrirbyggja svindl

Fréttir um ákær­urnar á hendur ung­menn­unum hafa vakið tals­verða athygli í Danmörku. Rektorar háskól­anna og emb­ætt­is­menn danska mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins eru sam­mála um að leita þurfi leiða til að tryggja að fólk geti ekki kom­ist inn í háskól­ana á fölskum for­sendum. Þeir sem kom­ist þannig inn í háskól­ana hafi ekki það sem til þurfi til að ná árangri í nám­inu og gef­ist fljót­lega upp. Alvar­legra sé þó að þeir sem fá skóla­vist út á fölsuð skil­ríki taki pláss frá öðrum sem undir eðli­legum kring­um­stæðum hefðu fengið inn­göngu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár