Björn Bjarnason stýrir EES-starfshóp stjórnvalda

Utan­rík­is­ráð­herra hefur skipað fyrr­ver­andi þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ráð­herra sem for­mann starfs­hóps sem falið verður það hlut­verk að vinna skýrslu um aðild Íslands að Evrópska efna­hags­svæð­inu.

Björn Bjarnason
Björn Bjarna­son

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefur skipað Björn Bjarna­son for­mann starfs­hóps sem falið verður það hlut­verk að vinna skýrslu um aðild Íslands að Evrópska efna­hags­svæð­inu (EES).

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans stað­festir utan­rík­is­ráðu­neytið þetta.

Björn er fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sat á þingi á árunum 1991 til 2009. Hann var mennta­mála­ráð­herra 1995 til 2002 og dóms- og kirkju­mála­ráð­herra 2003 til 2009. Samkvæmt ráðu­neyt­inu mun Björn bera almenna ábyrgð á skipu­lagi verk­efn­is­ins og vera tals­maður hóps­ins gagn­vart stjórn­völdum.

Auk Björns sitja í hópnum þær Kristrún Heim­is­dóttir, lög­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, og Bergþóra Hall­dórs­dóttir, lög­fræð­ingur hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins og erind­reki um sam­starf atvinnu­lífs­ins og utan­rík­is­þjón­ust­unnar. Þá fær hóp­ur­inn starfs­mann sem hefur aðsetur í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir jafn­framt að ástæður fyrir vali á for­manni séu þær að Björn hafi setið á Alþingi um ára­bil og gegnt á þeim tíma ráð­herra­emb­ættum. „Hann var á sínum tíma for­maður Evr­ópu­nefndar Alþingis sem í mars 2007 sendi frá sér yfir­grips­mikla skýrslu um á vett­vangi EES og Schengen og um álita­efni varð­andi hugs­an­lega aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Björn hefur auk þess víð­tæka þekk­ingu á alþjóða­málum og eftir hann liggja marg­vís­leg skrif um þau efni,“ segir í svar­inu.

Starfs­hóp­ur­inn fær tólf mán­uði til skýrslu­gerð­ar­innar. Við vinnu sína skal starfs­hóp­ur­inn leita til helstu sér­fræð­inga á þeim sviðum sem skýrslu­gerðin tekur til og er heim­ilt að afla efnis í skýrsl­una frá fræði­mönnum og öðrum sér­fræð­ingum utan hóps­ins.

Samkvæmt ráðu­neyt­inu er með skýrsl­unni verið að koma til móts við beiðni frá hópi þing­manna um skýrslu utan­rík­is­ráð­herra um kosti og galla aðildar Íslands að EES-samn­ingnum sem sam­þykkt var á Alþingi fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár