Vilhjálmur sækist eftir þriðja sætinu

Enn bæt­ist í hóp þeirra þing­manna sem sækj­ast eftir efstu sætum fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi.

Vilhjálmur Árnason við þingsetningu. Ásmundur Friðriksson var í þriðja sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í kosningunum 2013.
Vil­hjálmur Árnason við þing­setn­ingu. Ásmundur Frið­riks­son var í þriðja sæti fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi í kosn­ing­unum 2013. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, sæk­ist eftir þriðja sæti á lista flokks­ins í sama kjör­dæmi í próf­kjör flokks­ins sem fram fer 10. sept­em­ber. Hann bæt­ist í hóp fleiri sjálf­stæð­is­manna sem sækj­ast eftir sæti á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, ráð­herra og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu, vill áfram leiða list­ann en Ásmundur Frið­riks­son þing­maður hefur gefið það út að hann sæk­ist eftir fyrsta til öðru sæti list­ans. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir er nú annar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu. Hún stefnir áfram á annað sæti list­ans.

Auk þeirra fjög­urra sem öll eru þing­menn hefur Árni Johnsen, fyrr­ver­andi alþing­is­maður, lýst yfir áhuga á end­ur­komu á Alþingi. Hann skýrði frá því í grein í Morg­un­blað­inu í morgun að hann ætli að bjóða sig fram í eitt af for­ystu­sætum list­ans í Suð­ur­kjör­dæmi.

Vil­hjálmur er einn þeirra yngri þing­manna sem náðu í fyrsta sinn kjöri á þing í kosn­ing­unum 2013. Í til­kynn­ingu sem hann sendi fjöl­miðlum í morgun segir hann það hafa verið ánægju­legt og lær­dóms­ríkt að sitja á Alþingi und­an­farin ár. „[Þ]ar hef ég fengið að kynn­ast og koma að fjölmörgum mik­il­vægum málum. Þar ber helst að nefna þau mál sem tengj­ast þing­nefnd­unum tveimur sem ég hef átt sæti í und­an­farin ár - umhverfis- og samgöngu­nefnd og alls­herjar- og menntamálanefnd - en þær end­ur­spegla vel málefni grunn­þjónust­unnar sem ég hef lagt hvað mesta áherslu á í störfum mínum á Alþingi.“

Hann seg­ist drif­inn af ein­lægum vilja til að vinna að mik­il­vægum málum. „Því hef ég ákveðið að gefa kost á mér til end­ur­kjörs og óska eftir stuðn­ingi ykkar í 3. sæti í prófkjöri sjálfstæð­is­manna í Suðurkjördæmi sem fram fer hinn 10. sept­em­ber nk.. Fram­boðið mun ég helga baráttunni fyrir bættum samgöngum. Það geri ég vegna þess að samgöngur eru allri þjóðinni mik­il­vægar enda stuðla þær að fjölþættu og blómlegu atvinnulífi sem er for­senda góðra lífskjara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár