Árni Johnsen vill aftur á þing

Árni Johnsen, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill kom­ast í eitt af efstu sæt­unum á ný. Hann sakar núver­andi þing­menn flokks­ins um að hafa unnið skipu­lega gegn sér.

Árni Johnsen, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill kom­ast aftur á þing fyrir flokk­inn og býður sig fram í eitt af for­ystu­sæt­unum í Suð­ur­kjör­dæmi. Þetta kemur fram í aðsendri grein Árna í Morg­un­blað­inu í dag.

Árni var þing­maður um langt skeið, með hléum, allt þar til árs­ins 2013. Hann gaf kost á sér í próf­kjör­inu fyrir síð­ustu kosn­ingar en hlaut ekki náð fyrir augum kjós­enda í próf­kjör­inu. Hann segir að núver­andi þing­menn flokks­ins og þau sem náðu kjöri í efstu sætin, Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir og Ásmundur Frið­riks­son, hafi unnið „skipu­lega að því að fæla fólk frá því að kjósa mig.“ Þau hafi „rottað“ sig saman og haft erindi sem erf­iði. „Þessi vinnu­brögð eru ekki ólög­leg en þau eru algjör­lega sið­laus og ódrengi­leg á versta máta,“ skrifar Árni í Morg­un­blaðið.

Hann segir að þing­menn­irnir þrír í kjör­dæm­inu hafi ekki gert neitt und­an­farin þrjú ár sem komi Suð­ur­kjör­dæmi til góða. „En tríóið leyfði sér að bregða fyrir mig fæti og fella mig á hlaupa­braut­inni með 40 mál í fartesk­inu, stór og smá varð­andi Suð­ur­kjör­dæmi og landið allt.“

Árni seg­ist ekki vera tapsár og hann sé ekki að leita að samúð, heldur sann­girni og rétt­læti.

Árni er 72 ára gam­all, og segir að hann sé því „nán­ast tán­ingur miðað við aldur í alþjóða­stjórn­málum.“

Árni var dæmdur í tveggja ára fang­elsi árið 2003 fyrir fjár­drátt og umboðs­svik í opin­beru starfi, mútu­þægni og rangar skýrslur til yfir­valda. Hann lét af störfum alþing­is­manns eftir að málið kom upp en kom aftur inn á þing árið 2007 og sat til árs­ins 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár