Alþingi setur siðareglur til að efla gagnsæi og auka traust almennings

Alþing­is­menn eiga ekki að kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni og þeir eiga að greina frá öllum hags­munum sem máli skipta og varða opin­bert starf þeirra. Þetta er meðal þess sem kemur fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um siða­reglur fyrir alþing­is­menn, sem lögð var fram á Alþingi í dag. Til­gang­ur­inn með siða­regl­unum er að efla gagn­sæi í störfum þing­manna og ábyrgð­ar­skyldu þeirra, og jafn­framt að efla „til­trú og traust almenn­ings á Alþingi.“

Allir for­setar Alþingis og þing­flokks­for­menn allra flokka standa að til­lög­unni, sem á sér langan aðdrag­anda. Alþingi sam­þykkti breyt­ingar á þing­sköpum í júní árið 2011, og þar kom meðal ann­ars fram að leggja ætti fram til­lögu að siða­reglum fyrir þing­menn. For­sætis­nefnd hóf vinnu við slíkar reglur og skil­aði til­lögum rétt fyrir þing­lok árið 2013, þá var þegar ljóst að ekki myndi nást sam­komu­lag um að afgreiða málið. Ný for­sætis­nefnd fjall­aði um siða­reglur strax sum­arið 2013 og Einar K. Guð­finns­son lagði til að horft yrði til siða­reglna Evr­ópu­ráðs­þings­ins, sem hefur verið gert í nýju regl­unum.

Samkvæmt siða­regl­unum eiga þing­menn að rækja störf sín af ábyrgð, ráð­vendni og heið­ar­leika, taka ákvarð­anir í almanna­þágu, ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra og efla og styðja siða­regl­urnar með því að sýna frum­kvæði og for­dæmi, að því er fram kemur í til­lög­unni. „Þingmenn skulu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu og fylgja meg­in­reglum um hátt­erni og aðhaf­ast ekk­ert með athöfnum sínum sem kann að skaða orð­spor, til­trú og traust almenn­ings á Alþingi,“ segir einnig.

Taka ákvörðun og geta birt hana opinberlega


For­sætis­nefnd skipar þriggja manna nefnd til þess að fjalla um brot á siða­regl­unum. Tveir nefnd­ar­menn eiga að vera til­nefndir af sam­starfs­nefnd háskóla­stigs­ins og annar þarf að hafa emb­ættis- eða meist­ara­próf í lög­fræði og hinn meist­ara­próf í heim­speki eða hag­nýtri sið­fræði. Forseti til­nefnir for­mann nefnd­ar­innar, en hann á að hafa þekk­ingu á störfum þings­ins og þing­manna, en aðrar kröfur eru ekki gerðar.

Siða­reglu­nefndin tekur ákvörðun um það hvort hún telji athafnir þing­manna brjóta í bága við regl­urnar. Nefndin lætur for­sætis­nefnd í té álit sitt, og ef for­sætis­nefnd fellst á álitið til­kynnir hún þing­manni um nið­ur­stöð­una og ákveður, ef ástæða þykir til og nefndin er ein­huga um það, hvort birta skuli álitið á vef Alþingis. Engin önnur við­ur­lög eru við broti á siða­regl­unum. Siða­reglu­nefndin á svo að taka saman árlega skýrslu um fjölda erinda sem henni hafa borist og hún haft til umfjöll­unar, og birta hana á vef þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár