Miklir hagsmunir í Vatnsendamáli - Spjótin beinast að Kópavogsbæ

Erf­ingjar Vatns­enda, sem fengu nýlega stað­fest end­an­lega með dómi Hæsta­réttar að þeir væru rétt­mætir eig­endur Vatns­enda en ekki ein­ungis Þor­steinn Hjalte­sted, telja Kópa­vogsbæ skulda sér meira en tíu millj­arða króna vegna þess hvernig bær­inn hefur staðið að upp­bygg­ingu á Vatns­enda á grund­velli samn­ings við Þor­steinn Hjalte­sted. Nú liggur fyrir að Þor­steinn á ekki Vatns­enda og að hann var aldrei einn rétt­mætur eig­andi jarð­ar­innar heldur fimmtán erf­ingjar með honum, líkt og þeir hafa haldið fram árum saman. Þetta var end­an­lega stað­fest með dómi Hæsta­réttar 5. mars síð­ast­lið­inn.

Erfðadeilur


Þor­steinn tók við jörð­inni í sam­ræmi við erfða­skrá sem frændi hans, Magnús Ein­ars­son Hjalte­sted, gerði. Þegar Magnús dó erfði Sigurður Kristján Lárusson Hjalte­sted jörð­ina. Þegar hann lést svo árið 1966 fór sonur hans af fyrra hjóna­bandi, Magnús, fram á að fá jörð­ina, sem hann fékk á end­anum. Þor­steinn er elsti sonur Magnúsar.

Málið hefur verið fyrir dóm­stólum í mörg ár, en aðrir erf­ingjar hafa reynt að fá erfða­skránni hnekkt frá 2007. Árið 2013 dæmdi Hæsti­réttur að skiptum á dán­ar­búi afa Þor­steins, Sigurðar Krist­jáns, hefði aldrei lokið og því þyrfti að ljúka skiptum. Skipta­stjór­inn, Jón Auðunn Jónsson, sem það gerði taldi sig þurfa að gera það í sam­ræmi við erfða­skrána og að Þor­steinn væri rétt­mætur erf­ingi, sem nú hefur verið end­an­lega stað­fest að vera alls ekki rétt.

Kópavogsbær á mikið undir


Kópa­vogs­bær hefur tekið hluta af Vatns­enda eign­ar­námi, síð­ast 864 hekt­ara árið 2007, og greiddi þá fyrir það ríf­lega tvo millj­arða króna til Þor­steins Hjalte­sted, sem jafn­gildir ríf­lega 3,7 millj­örðum að núvirði. Upp­bygg­ing á jörð­inni hefur verið gríð­ar­lega mikil á und­an­förnum árum og sér ekki fyrir end­ann á henni. Hinir rétt­mætu eig­endur Vatns­enda telja sig eiga rétt á greiðslu frá Kópa­vogsbæ, og að samn­ing­arnir sem gerðir voru við Þorstein hafi verið byggðir á röngum for­sendum, þar sem hann var ekki rétt­mætur eig­andi Vatns­enda.

Sig­mundur Hann­es­son hrl., lög­maður erf­ingj­ana sem nú hafa náð fram rétti sínum með Hæsta­rétt­ar­dómum, sagði í við­tali við Kjarnann í jan­úar í fyrra, að for­svar­menn Kópa­vogs­bæjar gerðu sér ekki grein fyrir alvar­leika máls­ins. „Upp­hæð­irnar sem um ræðir eru geggj­aðar og hags­mun­irnir miklir fyrir alla sem tengj­ast mál­inu,“ sagði Sig­mundur. Erf­ingjar dán­ar­bús­ins telja enn, ekki síst á grund­velli nýlegra dóma Hæsta­réttar, að Kópa­vogs­bær skuldi tæp­lega níu millj­arða króna í eign­ar­náms­bætur vegna upp­bygg­ingar á Vatns­enda, að við­bættum vöxtum. Samtals nam upp­hæðin um tíu millj­örðum króna í jan­úar í fyrra, en eftir því sem tím­inn líður safn­ast upp vextir ofan á höf­uð­stól­inn.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er fjár­hags­staða Þor­steins í upp­námi, þar sem hann hefur tapað nær öllu fé sínu og eignum, meðal ann­ars millj­örðum sem hann fékk frá Kópa­vogsbæ. Þor­steinn hefur oft verið á listum yfir rík­ustu menn lands­ins, og var skatta­kóngur um tíma, en nú hefur fjár­hags­staða hans breyst til hins verra, svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Máttu treysta þinglýsingarbók


Kjarninn sendi Ármanni Kr. Ólafs­syni, bæj­ar­stjóra í Kópavogi, fyr­ir­spurn vegna mál­efna er tengj­ast Vatns­enda í fyrra, þegar málið komst einu sinni sem oftar í hámæli. Þar sagði Ármann að Kópa­vogs­bær hefði tekið land úr Vatns­enda eign­ar­námi í fjögur skipti, 1992, 1998, 2000 og 2007. Hann sagði bæinn hafa gert ráð fyrir því, að þing­lýstur eig­andi jarð­ar­innar væri rétt­mætur eig­andi hennar, en það var Þor­steinn Hjalte­sted á þeim tíma sem samn­ingar um eign­ar­námið voru gerðir. „Sveit­ar­fé­lögin máttu að sjáf­sögðu treysta því að þing­lýs­ing­ar­bók væri rétt um eign­ar­haldið. Kópa­vogs­bær vill árétta að bær­inn er eig­andi að því landi sem hann hefur tekið eign­ar­námi úr Vatns­enda á síð- ustu tveimur ára­tugum. Eign­ar­námin fóru fram sam­kvæmt eign­ar­náms­heim­ild ráð­herra og beindust að þeim aðila sem þing­lýs­ing­ar­bók til­greindi sem eig­anda,“ sagði Ármann.

[caption id="attachment_22511" align="alignnone" width="659"] Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri í Kópavogi.[/caption]

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri í Kópavogi.

Áður en bær­inn gekk frá samn­ingum við Þorstein var búið að benda for­svars­mönnum bæj­ar­ins á deil­urnar um Vatns­enda, og vafi léki á því hver væri raun­veru­legur eig­andi Vatns­enda og þar með rétt­mætur þiggj­andi eign­ar­náms­bóta.

Hvað nú?


Í ljósi þess að óum­deilt er nú, að Þor­steinn fékk bætur frá Kópa­vogsbæ á röngum for­sendum, er óvíst hvernig mál­inu mun ljúka. Ekki er úti­lokað að Kópa­vogs­bær muni þurfa að greiða millj­arða til við­bótar vegna Vatns­enda, í ljósi þess að þiggj­andi fjár­muna bæj­ar­ins reynd­ist ekki vera rétt­mætur eig­andi lands­ins, en bær­inn hefur til þessa staðið fast á því að hann hafi gengið með rétt­mætum hætti frá samn­ingum vegna Vatns­enda. Fá dæmi, ef þá nokkur, eru fyrir víð­líka máli hér á landi, ekki síst þegar horft til umfangs þess í krónum talið. Málið hefur ekki verið til lykta leitt ennþá. Líklega mun Hæsti­réttur þurfa að skera úr um hverjar lykt­irnar verða í mál­inu, líkt og hann hefur gert ítrekað til þessa, þegar ein­stök deilu­efni þess hafa farið í gegnum dóms­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár