Fimmtán erfingjar að Vatnsenda, ekki bara Þorsteinn Hjaltested

Þor­steinn Hjalte­sted er ekki eini rétt­mæti erf­ingi lands­ins Vatns­enda í Kópavogi, sam­kvæmt dómi Hæsta­réttar frá því í dag. Hann er hins vegar einn af fimmtán erf­ingjum.

Þor­steinn tók við jörð­inni í sam­ræmi við erfða­skrá sem frændi hans, Magnús Ein­ars­son Hjalte­sted, gerði. Þegar Magnús dó erfði Sigurður Kristján Lárusson Hjalte­sted jörð­ina. Þegar hann lést svo árið 1966 fór sonur hans af fyrra hjóna­bandi, Magnús, fram á að fá jörð­ina, sem hann fékk á end­anum. Þor­steinn er elsti sonur Magnúsar.

Málið hefur verið fyrir dóm­stólum í mörg ár, en aðrir erf­ingjar hafa reynt að fá erfða­skránni hnekkt frá 2007. Árið 2013 dæmdi Hæsti­réttur að skiptum á dán­ar­búi afa Þor­steins, Sigurðar Krist­jáns, hefði aldrei lokið og því þyrfti að ljúka skiptum. Skipta­stjór­inn sem það gerði taldi sig þurfa að gera það í sam­ræmi við erfða­skránna og að Þor­steinn væri rétt­mætur erf­ingi.

Þessi ákvörðun var kærð en hér­aðs­dómur stað­festi nið­ur­stöðu skipta­stjór­ans. Hæsti­réttur snéri þeirri ákvörðun hins vegar við með dómi sínum í dag, og segir að beinn eigna­réttur á jörð­inni skuli skipt­ast eftir almennum reglum. Þá eru eig­endur jarð­ar­innar orðnir 15 tals­ins, en ekki Þor­steinn einn. Hann á hins vegar afnota­rétt á jörð­inni einn. Dómur Hæsta­réttar er hér.

Nú þarf því að skipta búi Sigurðar Krist­jáns aftur. Kópa­vogs­bær hefur tekið stóran hluta jarð­ar­innar eign­ar­námi og hefur greitt Þor­steini millj­arða króna í eign­ar­náms­bætur vegna þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár