Búið að ná „sögulegu“ samkomulagi um kjarnorkumál Írana

Búið er að ná sam­komu­lagi um tak­mörkun á kjarn­orku­á­ætlun Írana eftir margra ára samn­inga­við­ræður. Kjarn­orku­eft­ir­lits­menn frá Sam­ein­uðu þjóð­unum munu fá víð­tækan aðgang að Íran sam­kvæmt sam­komu­lag­inu og í stað­inn verður ein­hverjum alþjóð­legum við­skipta­þving­unum gegn land­inu aflétt. Samn­ing­ur­inn kveður á um að Íranar hægi á kjarn­orku­á­ætlun sinni, dragi úr auðgun úrans og lofi að smíða ekki kjarn­orku­sprengjur.

Búist er við því að greint verði frekar frá inni­haldi sam­komu­lags­ins síðar í dag.

Utan­rík­is­mála­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, Federica Mog­her­ini, segir sam­komu­lagið vera von­ar­glætu fyrir allan heim­inn. „Þetta er ákvörðun sem getur opnað nýjan kafla í alþjóða­sam­skiptum.“ Utan­rík­is­ráð­herra Írans, Mohammad Javad Zarif, tók í sama streng, sagði að nú opn­að­ist nýr kafli vonar og að sam­komu­lagið sé sögu­legt. Ban Ki-moon, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, fagn­aði sam­komu­lag­inu líka. Hann von­ist til þess og trúi því að þetta sam­komu­lag muni hafa jákvæð áhrif á sam­skipti og örygg­is­mál í Mið­aust­ur­löndum. Þetta gæti því orðið mik­il­vægt inn­legg til að tryggja frið og stöð­ug­leika. Barack Obama Banda­ríkja­for­seti mun tjá sig um málið klukkan 11 að íslenskum tíma.

Benjamin Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, hefur for­dæmt sam­komu­lagið og segir það slæmt á sögu­legan mæli­kvarða. Nú fái Íranir auð­velda leið til þess að fara að fram­leiða kjarn­orku­vopn og það muni fjár­magn flæða inn til lands­ins. Hann hefur hins vegar fengið á sig gagn­rýni inn­an­lands fyrir að hafa mis­tek­ist algjör­lega í sínum sam­skiptum og samn­inga­við­ræðum.

Íranar hafa alltaf sagt að kjarn­orku­á­ætlun þeirra sé frið­sömu og ekki til þess að smíða kjarn­orku­sprengjur.

Samn­inga­við­ræð­urnar milli Banda­ríkj­anna, Bret­lands, Frakk­lands, Kína, Rúss­lands og Þýska­lands ann­ars vegar og Írans hins vegar hófust árið 2006.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár