Reykjavíkurborg hyggst heimila húseigendum að gera þúsundir aukaíbúða

Skipu­lags­yf­ir­völd í Reykja­vík vilja heim­ila 1.730 íbúðir í þremur grónum hverfum, Ártúns­holti, Árbæ og Selási. Sam­bæri­legar heim­ildir verði svo veittar í öðrum borg­ar­hlutum en ljóst er að þær verða mis­jafnar eftir hverfum.

Skipu­lags­yf­ir­völd í Reykja­vík hafa aug­lýst til­lögu að breyttu hverf­is­skipu­lagi í Ártúns­holti, Árbæ og Selási. Borgin hyggst heim­ila hús­eig­endum að gera tæp­lega 2000 íbúðir í þessum þremur hverfum. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­víkur, segir að á næstu miss­erum verði slíkar breyt­ingar kynntar í níu öðrum borg­ar­hlutum. Með þeim gæti smá­í­búðum fjölgað mikið í Reykja­vík, ekki síst í grónum hverfum með bíl­skúrum og stórum lóðum. Frá þessu greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Ódýrari íbúðir á dýrari svæðum

Ævar Harð­ar­son, verk­efn­is­stjóri hverf­is­skipu­lags hjá Reykja­vík­ur­borg, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að með breyt­ing­unum verði hægt að bjóða ódýr­ari íbúðir en á dýr­ari lóðum mið­svæðis. „Það er verið að setja íbúðir á svæði sem eru þegar byggð. Sumar auka­í­búð­irnar þarf ekki að byggja heldur þarf aðeins að setja upp létta inn­veggi,“ segir Ævar.

Ævar Harð­ar­son, segir að mest fjölgun íbúða verði í svoköll­uðum auka­í­búðum. Skipu­lags­yf­ir­völd í Reykja­vík hafa lagt til að heim­il­aðar verði um 1.730 íbúðir á Ártúns­holti, Árbæ og Selási. Þá eru hug­myndir um að Bjarg fái lóðir undir 200 til 220 íbúðir og aldr­aðir byggja nú 60 íbúðir, ásamt mögu­legum íbúðum á þró­un­ar­svæðum. „Þetta eru 50 fer­metra íbúðir sem má inn­rétta, t.d. með því að byggja við, skipta upp eldra rými eða breyta lítið not­uðum bíl­skúrum í litlar íbúðir. Þessar auka­í­búðir eru hugs­aðar fyrir fjöl­skyldu­með­limi eða til útleigu. Óheimilt er að selja þær frá aðal­í­búð enda má sam­eina þær aðal­í­búð aftur ef eig­endur óska þess. Í skil­málum stendur að aðal­í­búð og auka­í­búð skuli til­heyra sama mats­hluta og vera í einni eigu,“ segir Ævar.

Misjafnt milli hverfa

Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­víkur, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að á næstu miss­erum verði álíka breyt­ingar kynntar í níu öðrum borg­ar­hlutum en að þær verði mis­jafnar eftir hverfum. Sig­ur­borg Ósk leggur áherslu á að það sé í höndum íbúa að taka ákvörðun um slíkar fram­kvæmdir. Hún telur það lík­legt að margir muni sjá sér hag í slíkum breyt­ingum en að þær muni ger­ast á löngum tíma. Hún segir fjöl­skyldu­mynstrið vera að breyt­ast og víða orðið rúmt um íbúa í sér­býli.

„Við erum líka að gefa íbú­unum færi á að hafa leigu­í­búðir innan síns hús­næðis sem geta þá verið tekju­auk­andi og aukið verð­mæti eign­ar­innar. Það er til dæmis íbúð­ar­hús­næði í mörgum bíl­skúrum í dag, þótt slíkt sé ekki lög­legt. Þetta snýst því líka um að stíga skrefið í átt að raun­veru­leik­anum. Þessar breyt­ingar verða gerðar í öllum hverfum borg­ar­innar. Það er verið að halda í byggða­mynstrið en auka nýt­ing­ar­mögu­leika,“ segir hún.

Fjölgun íbúða með umræddum heim­ildum verður þó mis­mikil milli borg­ar­hluta, þar sem nýt­ing­ar­hlut­fallið sé mis­jafnt milli hverfa. Þá verði veittar heim­ildir fyrir við­bygg­ingum á lóðum þar sem nýt­ing­ar­hlut­fall er lágt en til dæmis er nýt­ing­ar­hlut­fallið hátt í mið­borg­inni og Vest­ur­bænum. Borgin skoðar þú að heim­ila að byggst sé við lóðum við fjöl­býl­is­hús til dæmis við Birkimel í Vest­ur­bænum. Auk þess komi til greina að heim­ila auka­hæðir ofan á fjöl­býl­is­hús sem eru án lyftu, til dæmis þriggja til fjög­urra hæða fjöl­býl­is­húsum í Hraun­bænum.

Sig­ur­borg Ósk segir jafn­framt að sam­hliða breyt­ing­unum verði hjóla­stígar gerðir, skapað göngu­vænna umhverfi, almenn­ings­sam­göngur efldar og komið fyrir stæðum í borg­ar­landi fyrir deili­bíla. „Aðal­mark­miðið er að skapa sjálf­bær hverfi í borg­inni. Það gerum við­meðal ann­ars með því að fjölga hjóla­stígum og grennd­ar­stöðvum og styrkja verslun og þjón­ustu í hverf­unum. Stóra málið er að sjálf­sögðu fjölgun íbúða. Það er gert með því að gefa hús­eig­endum meira frelsi til að breyta og byggja við eigið hús­næði,“ segir Sig­ur­borg Ósk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár