Danir óhressir með viðbrögð drottningar eftir hryðjuverkin

Nú eru tvær vikur liðnar frá hryðju­verk­unum í Kaup­manna­höfn og til­finn­inga-og ótta­öld­urnar sem þeim fylgdu farnar að lægja. Og eins og alltaf hér í Danmörku þarf að meta alla hluti: stóð lög­reglan sig í stykk­inu, var örygg­is­gæslan í lagi, sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann réttu orðin á réttum stað og stundu og hvað með sjálfan þjóð­höfð­ingj­ann, Margréti Þórhildi?

Þessum spurn­ingum og ótal öðrum velta Danir fyrir sér þessa dag­ana og sýn­ist sitt hverjum. Flestir eru sam­mála um að lög­reglan hafi staðið sig mjög vel, þegar til kast­anna kom, það er að segja eftir að til­ræðin áttu sér stað, og gert allt rétt.

Hins­vegar hafa vaknað margar spurn­ingar um þátt rann­sókn­ar­lög­regl­unnar. Hvernig gat það gerst að þar á bæ vissu menn um þennan unga ógæfu­mann, Omar El-Hussein, sem bent hafði verið á að væri eins og tif­andi tíma­sprengja, án þess að haf­ast að. Sérstök rann­sókn, reyndar fleiri en ein, á sam­starfi rann­sókn­ar­lög­regl­unnar, fang­els­is­yf­ir­valda og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er hafin og Mette Fred­rik­sen dóms­mála­ráð­herra hefur sagt að allt verði gert, sem mögu­legt sé, til að bæta úr ágöllum sem rann­sókn­irnar kunni að leiða í ljós. Hvenær nið­ur­stöður liggja fyrir hefur ekki verið til­kynnt en dóms­mála­ráð­herr­ann hefur lagt áherslu á að vinn­unni verði hraðað svo sem kostur er.

Forsætisráðherrann stóð sig vel


Allir virð­ast á einu máli um að Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra hafi staðið sig mjög vel í þessu lang erf­ið­asta máli (að mati hennar sjálfrar) sem til hennar kasta hefur komið síðan hún tók við emb­ætt­inu eftir kosn­ing­arnar í sept­em­ber 2011. Í við­tali við danskt dag­blað sagð­ist hún ekki geta líkt atburð­unum á Aust­ur­brú og við bæna­hús gyð­inga við neitt sem hún hefði upp­lifað. „Þegar slíkir atburðir ger­ast ber þjóð­inni að standa saman og það tókst okkur,” sagði ráð­herr­ann í áður­nefndu við­tali.

En til hvers ætl­ast þjóðin af for­sæt­is­ráð­herr­anum á erf­iðum tímum ?

Þessa spurn­ingu lögðu tvö dönsk dag­blöð fyrir fólk á förnum vegi. Svörin voru öll á þá leið að for­sæt­is­ráð­herra lands­ins þyrfti að sýna styrk og vera þjóð sinni góð fyr­ir­mynd á erf­iðum tímum.

Tókst Helle Thorning þetta? var þá spurt.

Svarið við þess­ari spurn­ingu var nær ein­róma: Hún gerði allt rétt. Var mjög fljót að bregð­ast við, hún hefði komið á stað­ina þar sem ódæðin voru framin, hitt ætt­ingja hinna látnu, ávarpað þjóð­ina af miklum mynd­ug­leik, rætt við erlenda frétta­menn, tekið þátt í fjöl­mennri minn­ing­ar­at­höfn á Aust­ur­brú og verið við­stödd útför þeirra sem lét­ust í til­ræð­unum. Allt þetta hefði hún leyst af hendi eins og best varð á kosið, sam­einað þjóð­ina í sorg og trega.

[caption id="attachment_21478" align="alignnone" width="843"] Danir virð­ast almennt ánægðir með hvernig for­sæt­is­ráð­herra lands­ins brást við voða­verk­unum í Kaup­manna­höfn á dög­unum.[/caption]

Helle Thorning
Helle Thorning

 

En hvað með drottninguna?


Meiri­hluti Dana hefur í ára­tugi verið stoltur af Margréti Þórhildi sem ríkt hefur í Dana­veldi í 43 ár. Af og til hafa heyrst raddir sem segja að það sé úrelt og ólýð­ræð­is­legt fyr­ir­komu­lag að vera með þetta kónga­fólk. Þær raddir hafa þó ætíð verið í miklum minni­hluta. Drottn­ingin hefur notið vin­sælda meðal þegna sinna og þykir hafa staðið sig vel í sínu starfi. Danir voru hins­vegar lengi að taka bónda hennar, fransk­mann­inn Henrik, í sátt. Fundu honum meðal ann­ars til for­áttu að hann tal­aði ekki almenni­lega dönsku.

Martröð Margrétar


Þetta var for­síðu­fyr­ir­sögn á einu dönsku dag­blað­anna, rituð stórum stöfum, með heims­styrj­ald­ar­letri, eins og það er stundum kallað.

Blaðið segir að drottn­ingin vilji örugg­lega gleyma sem fyrst dög­unum eftir hryðju­verkin.

Í langri umfjöllun blaðs­ins um Margréti Þórhildi og hennar fólk er drottn­ingin harð­lega gagn­rýnd fyrir við­brögð hennar, eða rétt­ara sagt skort á þeim í kjöl­far hryðju­verk­anna hér í Kaup­manna­höfn. Fram kemur í blað­inu að burt­séð frá stuttri til­kynn­ingu frá drottn­ing­unni sem hún sendi frá sér seint á sunnu­deg­inum eftir að til­ræðin voru framin hafi danska þjóðin hvorki heyrt hósta né stunu frá þjóð­höfð­ingj­anum. Hins­vegar hafi hún og Hinrik tekið á móti hol­lenskum frétta­mönnum á Amal­íu­borg nokkrum dögum eftir til­ræðin.

Tals­maður hirð­ar­innar sagði að þessi frétta­manna­fundur hafi löngu verið ákveð­inn og tengd­ist heim­sókn hol­lensku kónga­fjöl­skyld­unnar til Dan­merkur sem fyr­ir­huguð er á næst­unni. Ekki var þó minnst einu orði á heim­sókn­ina á þessum fundi, ein­göngu rætt um til­ræðin nokkrum dögum fyrr. Það að þjóð­höfð­ing­inn skyldi ekki ávarpa þjóð sína en þess í stað tala við erlenda frétta­menn fór væg­ast sagt ekki vel í Dani. Einn frétta­skýr­andi sagði að drottn­ingin gæti kom­ist í sjón­varp og útvarp með nán­ast engum fyr­ir­vara og það væri með öllu óskilj­an­legt að hún skyldi ekki hafa talað beint við þjóð­ina, sjaldan hefði þörfin á því verið brýnni „en þessu klúðr­aði drottn­ingin,“ sagði frétta­skýr­and­inn. Enn verra hefði þó verið að hún skyldi ekki vera við­stödd minn­ing­ar­stund­ina á Aust­ur­brú en senda krón­prins­inn í stað­inn. „Þarna urðu Margréti á alvar­leg mis­tök,“ sagði áður­nefndur frétta­skýr­andi og bætti við að aldrei á valda­tíma hennar hefði verið brýnni þörf á að hún gengi í takt við þjóð­ina.

Hinrik og kóngakomplexinn


Fyrir rúmum ára­tug lýsti Henrik drottn­ing­ar­maður margoft, í við­tölum, óánægju sinni með það að hann skyldi ekki bera kon­ungs­tign. Hann stæði ekki jafn­fætis konu sinni, alltaf tveimur skrefum á eftir, eins og hann orð­aði það. Margir gerðu grín að þessu tali, fjöl­miðlar köll­uðu þetta síð­búna mið­aldra krísu (Henrik var þá rétt að verða sjö­tugur) og sögðu að þetta hlyti að ganga yfir. Það reynd­ist rétt til getið, Henrik stein­hætti að tala um kon­ungs­tign­ina. Þangað til nú.

Á áður­nefndum frétta­manna­fundi með hol­lensku frétta­mönn­unum fór drottn­ing­ar­mað­ur­inn allt í einu að tala um þetta: af hverju hann væri ekki kóngur. Þetta fannst Dönum ekki einu sinni fyndið heldur bein­línis hall­æris­legt og alls óvið­eig­andi. Ekki síst í ljósi hörm­ung­ar­at­burð­anna fáum dögum fyrr. Drottn­ingin sat eins og stein­gerv­ingur á meðan bóndi hennar tal­aði. Danskir fjöl­miðla­menn töldu sig greina að hún hefði ekki verið sátt við eig­in­mann­inn og lík­lega látið hann heyra það yfir kvöld­skatt­inum þar sem engir heyrðu til.

Hefur þetta áhrif á vinsældir konungsfjölskyldunnar?


Ekki telja danskir frétta­skýrendur það. Segja sem svo að þótt drottn­ingin hafi ekki gert hlut­ina rétt að þessu sinni standi hún og fjöl­skyldan traustum fótum og skipi svo ríkan sess í hugum lands­manna að margt og mikið þurfi til að breyta því. En þessir dagar, sem drottn­ingin og fjöl­skylda hennar vilja lík­lega gleyma sem fyrst hafi örugg­lega orðið íbúum Amal­íu­borgar lexía sem þeir gleymi ekki á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár