Kína fer fram úr Bandaríkjunum í sölu á rafbílum

Sala á raf­bílum hefur farið vax­andi í heim­inum und­an­farin miss­eri, og er það einkum Kína­mark­aður sem hefur vaxið hratt. Samkvæmt umfjöllun Quartz í dag, þá hefur sala á raf­bílum vaxið hratt í Kína á þessu ári, og er nú kom­inn fram úr Banda­ríkja­mark­aði.

Rúmlega níu­tíu þús­und raf­bílar hafa selst í Banda­ríkj­unum það sem af er ári, sam­kvæmt Quartz, en í Kína er búið að selja rúm­lega 170 þús­und bíla. Er það meira en tvö­földun frá því í fyrra þegar seld­ust rúm­lega 70 þús­und raf­bílar.

Í Banda­ríkj­unum seld­ust hins vegar 120 þús­und raf­bílar í fyrra, sem var þá stærsti ein­staki mark­aður raf­bíla í heim­inum.

Gert er ráð fyrir mik­illi sölu­aukn­ingu á raf­bílum á kom­andi árum, enda þróun hröð hjá þeim fram­leið­endum sem hafa unnið baki brotnu að þróun raf­bíla á und­an­förnum árum. Tesla Motors er þar í fram­varða­sveit, og einnig hug­bún­aðar- og tækniris­inni Google sem leiðir þróun á sjálfa­kandi raf­bílum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár