Sýna fram á ný mynstur á hlýnun jarðar

Jörðin gæti verið að hlýna hraðar en áður var talið, ef marka má nýja rann­sókn við Harvard-háskóla.

Að hluta til má útskýra áhuga­leysi almenn­ings og stjórn­valda á hlýnun jarðar með því að benda á mis­vísandi skila­boð vís­inda­manna um hversu hratt og hversu mikið jörðin mun hlýna. Sumir vís­inda­menn horfa á hlýn­un­ina í sögu­legu og jarð­sögu­legu sam­hengi og spá því fyrir um 1,5-3°C hlýnun ef koldí­oxíð í and­rúms­loft­inu tvö­fald­ast.

Aðra sögu segja hins vegar þeir sem nota reikni­líkön, þar sem hita­aukn­ingin er borin saman við aukn­ingu styrks á koldí­oxíði í and­rúms­lofti. Útfrá þeim upp­lýs­ingum er búið til líkan sem segir að hlýn­unin nemi 2-4,5°C verði tvö­földun á styrk koldí­oxíðs.

Samkvæmt rann­sókn sem unnin var við Harvard vantar báða hópa hluta af sög­unni til að segja rétt til um hlýnun jarðar. Það vill nefni­lega þannig til að jörðin hlýnar ekki alls staðar jafnt. Norð­ur­skaut jarðar hlýnar mun hraðar en sá hluti jarðar sem er sunnan við mið­baug. Ástæða þess er mis­dreif­ing hafs og lands.

Þar sem land er til staðar verður meiri hlýnun á skömmum tíma, landið drekkur varma sól­ar­innar í sig meðan íshellan á suð­ur­hvelinu end­ur­kastar geislum sól­ar­innar í meira mæli. Svo til að byrja með hækkar hit­inn hraðar á norð­ur­hveli. Á meðan bygg­ist varm­inn hægt og bít­andi upp þar sem haf og ís eru als­ráð­andi og að lokum mun hlýn­unin skila sér í auknum sjáv­ar­hita.

Aukinn sjáv­ar­hiti ýtir svo undir enn frek­ari hlýnun. Til dæmis minnkar skýja­far yfir hlýrri sjó, svo sól­ar­geisl­arnir hafa greið­ari aðgang. Auk þess minnkar ísbreiðan sem býr til stærra svæði lands sem getur drukkið í sig varma sól­ar­geisl­anna.

Samkvæmt því sem birt­ist í grein Harvard-hóps­ins í Science Advances má því leiða líkur að því að hita­stigið hækki enn meira en talið hefur verið, eða um allt að 6°C, verði tvö­földun á styrk koldí­oxíðs í and­rúms­lofti. Viðbrögð jarð­ar­innar við hækk­andi hita­stigi sjávar muni nefni­lega leiða til auk­ins hraða á hlýnun jarðar.

Það er lík­lega orðið allt of seint fyrir okkur að snúa þess­ari þróun við, en það er alls ekki of seint að tak­marka skað­ann. Þess vegna skipta sátt­málar eins og Par­ís­ar­sam­komu­lagið svo miklu máli því sam­stíga eigum við miklu meiri von um að bjarga jörð­inni okkar.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvat­an­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár