ESB sagt ræða möguleikann á greiðslufalli Grikkja í fyrsta sinn

Leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa í fyrsta sinn form­lega rætt þann mögu­leika að greiðslu­fall verði hjá Grikkjum. Reuters greinir frá þessu og segir að þetta hafi verið rætt á und­ir­bún­ings­fundi fyrir fund fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna sem fer fram í næstu viku.

Reuters segir að þrír mögu­leikar hafi verið ræddir varð­andi lausn á skulda­málum Grikkja. Ólík­leg­asta nið­ur­staðan er talin vera að kom­ist verði að nýju sam­komu­lagi milli Grikkja og lán­ar­drottna þeirra á réttum tíma svo þeir geti staðið við skuld­bind­ingar sínar eftir að núver­andi sam­komu­lag rennur út í lok mán­aðar. Annar mögu­leik­inn er að kom­ist verði að sam­komu­lagi um að fram­lengja núver­andi sam­komu­lag, sem rennur út á sama tíma og Grikkir eiga að borga 1,6 millj­arð evra til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins.

Þriðji mögu­leik­inn, sem var ræddur í fyrsta skipti nú að sögn Reuters, er að Grikk­landi verði leyft að fara í greiðslu­fall.

Flestir emb­ætt­is­menn­irnir á fund­inum eru sagðir hafa haldið því fram að ólík­legt sé að sam­komu­lag náist um umbætur sem Grikkir eiga að ráð­ast í til að fá áfram­hald­andi neyð­ar­lán frá AGS og ESB. „Það myndi krefj­ast mik­illa fram­fara á nokkrum dögum sem ekki hafa náðst á mörgum vikum,“ hefur Reuters eftir ónefndum emb­ætt­is­manni.

Grikkir eru hins vegar sagðir ætla að gera allt sem þeir geta til að ná sam­komu­lagi í tíma. Í eft­ir­mið­dag­inn bár­ust fréttir af því að grísk stjórn­völd séu á leið til Brussel þar sem fundað verði í fyrra­málið. Grikkir séu nú til­búnir að koma fram með nýjar til­lögur að umbótum og að aldrei hafi aðil­arnir verið nær sam­komu­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár