Magga Stína handtekin: Íslensk stjórnvöld minna ísraelsk á mannréttindi

Ísraelsk stjórn­völd hafa hand­tekið Möggu Stínu sem var um borð í skip­inu Conscience sem var á leið til Gaza með hjálp­ar­gögn. Full­trúar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hafa kraf­ist þess við að Ísrael virði alþjóða­lög og mann­rétt­indi hennar og ann­arra sem voru um borð í skip­inu.

Mótmælt
Mótmælt Magga Stína hefur verið áber­andi í mót­mælum á Íslandi við stríðs­rekstur Ísra­els­hers á Gaza. Mynd: Víkingur

Ísraelsk stjórn­völd hand­tóku í dag íslenska kon­una Margréti Kristínu Blöndal, betur þekkta sem Möggu Stínu, eftir að her­menn fóru um borð í skipið Conscience, sem var á leið til Gaza-strand­ar­innar.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu hafa starfs­menn ráðu­neyt­is­ins átt í sam­skiptum við full­trúa ísra­el­skra stjórn­valda í vik­unni og áréttað að Ísrael skyldi fara að alþjóða­lögum og virða mann­rétt­indi þeirra sem væru um borð.

„Í sam­skiptum við full­trúa ísra­el­skra stjórn­valda vegna þessa máls í vik­unni hefur verið áréttað að íslensk stjórn­völd gerðu þá kröfu að Ísrael færi að alþjóða­lögum og að mann­rétt­inda þeirra verði gætt sem væru um borð í umræddu skipi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Ráðu­neytið segir að það sé í sam­bandi við „þar til bæra aðila“ til að veita Möggu Stínu borg­ara­þjón­ustu og hafi jafn­framt haft sam­band við aðstand­endur hennar á Íslandi.

Ekki liggur fyrir hvort eða hvenær Margrét verður látin laus, en utan­rík­is­ráðu­neytið segir að fylgst …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár