Samherji ekki lengur á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki

Frá 2012 hefur Samherji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, og tengd félög verið á lista Creditinfo yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki. Það var gagn­rýnt þar sem Samherji er til rann­sóknar vegna mútu­brota. Skilyrði voru þrengd í ár og Samherji náði ekki inn.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/RÚV

Listi Creditinfo yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki var birtur í 13 sinn í gær. Þar kom fram að 875 fyr­ir­tæki, eða tvö pró­sent fyr­ir­tækja lands­ins, teld­ust vera slík. Það eru átta færri en í fyrra.

Á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem eru ekki á list­anum í ár eru Samherji hf., eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins. Það hafði verið á honum síð­ustu tíu árin á undan og var í fjórða sæti í flokki stórra fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja í fyrra. Vera Samherja á lista yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki vakti athygli, og var til umfjöll­unar í fjöl­miðlum, enda fyr­ir­tækið til rann­sóknar hjá yfir­völdum hér­lendis og í Namibíu vegna meintra mútu­mála, pen­inga­þvættis og skatta­snið­göngu. Þá var einnig opin­berað í fyrra­vor að innan Samherja hefði verið rekið áróð­urs­stríð gegn blaða­mönnum og fjöl­miðlum sem fjallað höfðu um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins, með vit­und og vilja æðstu yfir­manna. Fyr­ir­tækið baðst afsök­unar á fram­ferði sínu í kjöl­far­ið.

Samherji Ísland, útgerð­ar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki að öllu leyti í eigu Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, sem verið hefur á lista Creditinfo síð­ast­lið­inn sjö ár, er heldur ekki á list­anum í ár. Sömu sögu er að segja um Samherja fisk­eldi, sem var á list­anum í átta ár til 2019, og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga, sem er að öllu leyti í eigu Samherja og var einnig á list­anum frá 2014.

[adspot]Síld­ar­vinnslan, eitt stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins þar sem Samherji er stærsti ein­staki eig­and­inn með 32,64 pró­sent eign­ar­hlut, er hins vegar áfram á list­anum líkt og það hefur verið á hverju ári síðan 2012. Þar situr Síld­ar­vinnslan í 5. sæti yfir stór fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki. Stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja.

Creditinfo setur saman list­ann og setur ýmis skil­yrði fyrir því. Í ár voru þau skil­yrði þrengd. Fyr­ir­tæki geta síðan greitt 99 þús­und krónur auk virð­is­auka­skatts fyrir við­ur­kenn­ing­ar­skjal og leyfi til að nota merki vott­un­ar­innar í kynn­ing­ar­efni.

Init sem talið var að reynt hafi að fela raunverulegan hagnað

Annað fyr­ir­tæki sem var á list­anum í fyrra, en er þar ekki núna, er hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Init ehf. Það var í 4. sæti í flokki lít­illa fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja. Fyrr á síð­asta ári hafði frétta­skýr­ing­ar­þátt­ur­inn Kveikur sagt frá mörg ­hund­ruð millj­óna króna við­skiptum Init, sem hafði árum saman haldið utan um tölvu­kerfi fyrir helstu líf­eyr­is­sjóði lands­ins, við starfs­menn og hlut­hafa félags­ins. Fram kom í umfjöllun Kveiks að svo virt­ist sem eig­endur Init hefðu reynt að fela raun­veru­legan hagnað sinn af vinnu við tölvu­kerfi líf­eyr­is­sjóð­anna fyrir eig­endum og not­endum kerf­is­ins.

Í úttekt sem Reikni­stofa líf­eyr­is­sjóða (RL) lét end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið Ernst & Young vinna vegna máls­ins kom fram að fyr­ir­tækið hefði brotið á samn­ingum sínum við RL og að ekki feng­ist séð að eðli­legur rekstr­ar­til­gangur hefði að öllu leyti legið að baki greiðslum frá Init til félaga í eigu hlut­hafa og starfs­manna. Daginn áður en listi Creditinfo yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki 2021 var birtur til­kynnti RL að líf­eyr­is­sjóðir ætl­uðu taka yfir rekstur á hug­bún­að­ar­kerf­inu úr höndum Init, vegna brota félags­ins á samn­ingi þess við RL.

Þurfa að svara spurningum um samfélagslega ábyrgð

Til að kom­ast á lista Creditinfo þarf að upp­fylla ýmis skil­yrði fyr­ir­tæk­is­ins. Fyr­ir­tæki sem kom­ast á list­ann geta síðan keypt vottun og sam­an­burð­ar­skýrslu af Creditinfo, sem kostar, líkt og áður sagði, 99.000 krón­ur auk virð­is­auka­skatts.

Þegar Creditinfo metur hvort fyr­ir­tæki telj­ist fram­úr­skar­andi er meðal ann­ars horft til þess hvort árs­reikn­ingi hafi verið skilað á réttum tíma, og þegar litið sé til síð­ustu þriggja ára sé rekstr­ar­hagn­aður, ársnið­ur­staðan jákvæð, rekstr­ar­tekjur að lág­marki 50 millj­ónir króna og að eig­in­fjár­hlut­fall sé að minnsta kosti 20 pró­sent.

Hrefna Ösp Sig­finns­dótt­ir, sem þá hafði nýlega verið ráð­in fram­kvæmda­stjóri Creditinfo, sagði i svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í nóv­em­ber í fyrra um þær kröfur sem gerðar eru til fyr­ir­tækja svo þau telj­ist fram­úr­skar­andi, að Creditinfo ynni að því að fjölga mæli­kvörð­unum sem eru að baki vott­un­inni. „Eins er til skoð­unar hvort Creditinfo áskilji sér rétt til að fjar­lægja fyr­ir­tæki tíma­bundið af list­anum ef uppi eru sér­stök álita­mál um fram­göngu þeirra eða ef þau sæta rann­sókn vegna spill­ing­ar­mála.“

Slíkar breyt­ingar hafa verið gerðar. Í til­kynn­ingu sem send var út vegna birt­ingu list­ans í gær­kvöldi kom enda fram að nú væri erf­ið­ara en nokkru sinni áður að kom­ast á list­ann. Nú þurfa stærri fyr­ir­tækin í fyrsta sinn að svara spurn­ingum um sam­fé­lags­lega ábyrgð til að vera gjald­geng á list­ann.

Þá kemur fram á vef Creditinfo að fyr­ir­tækið áskilji sér rétt til að fjar­lægja fyr­ir­tæki tíma­bundið af lista, svo sem vegna opin­berra rann­sókna sem geta haft stór­felld áhrif á fyr­ir­tækið.

Eyrir Invest á toppnum

Á lista Creditinfo yfir þau stóru fyr­ir­tæki lands­ins (þau sem eiga eignir sem metnar eru yfir einn millj­arð króna) trónir fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Eyrir Invest, stærsti eig­andi Marel, á toppnum. Þar á eftir koma tvö fyr­ir­tæki í opin­berri eigu. Annars er þar um að ræða Lands­virkjun, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, og hins vegar Félags­bú­staðir, sem er í eigu Reykja­vík­ur­borgar.

[links]Marel, verð­mætasta fyr­ir­tækið í Kauphöll Íslands, situr svo sjálft í fjórða sæti og Síld­ar­vinnslan er, líkt og áður sagði, í því fimmta. Þar á eftir kemur annað skráð sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, Brim.

Í flokki með­al­stórra fyr­ir­tækja, þeirra sem eiga eignir frá 200 til 1.000 millj­óna króna, situr mat­væla­fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Mar­hólmar í fyrsta sæti, gler­augna­versl­unin Optical Studio í öðru og ACRO verð­bréf í því þriðja. Í flokki lít­illa fyr­ir­tækja, þeirra sem eiga eignir á frá 100 til 200 millj­óna króna, situr Fit Food í fyrsta sæti, Heyrn­ar­tæki ehf. í öðru og Hlaðir ehf. í því þriðja.

Hér er hægt að fletta upp þeim fyr­ir­tækjum sem eru á list­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár