Dagur ætlar að segja frá framboðsmálum þegar hann losnar úr sóttkví

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri von­ast til þess að geta sagt frá því hvort hann fari aftur fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor um helg­ina eða strax eftir helgi.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri seg­ist ætla að gefa það út þegar hann losnar úr sótt­kví hvort hann verði í fram­boði fyrir Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor, en það verði von­andi um helg­ina eða strax eftir helgi. Frá þessu segir hann í færslu á Facebook í dag.

Þar segir hann einnig frá því að hann og fjöl­skylda hans hafi verið í sótt­kví eða ein­angrun und­an­farna daga, í kjöl­far þess að eitt barn­anna greind­ist með kór­ónu­veirusmit. „Vonum að það versta sé afstaðið og aðrir hafa hingað til ekki smit­ast. Öllum líður vel,“ skrifar Dagur.

Hann segir nokkra fjöl­miðla hafa verið í sam­bandi í dag og í gær til að spyrja um fram­boðs­mál hans, en Dagur hafði áður sagt að hann hygð­ist gera grein fyrir þeim eftir hátíðar.

„Margir hafa verið í sam­bandi við mig um þau mál að und­an­förnu sem ég er þakk­látur fyrir. Ég vona að það mæti skiln­ingi að ég muni ekki segja frá nið­ur­stöðu minni fyrr en sótt­kví lýkur sem verður von­andi um helg­ina eða strax eftir helgi,“ skrifar Dagur, sem hefur verið borg­ar­stjóri í Reykja­vík óslitið frá 2014.

[adspot]

Dagur hefur setið í borg­ar­stjórn lengur en nokkur annar sem þar situr nú, eða frá árinu 2002, fyrst fyrir Reykja­vík­ur­list­ann en síðan fyrir Sam­fylk­ing­una. Áður en hann varð borg­ar­stjóri árið 2014 hafði hann einnig verið borg­ar­stjóri í hund­rað daga, frá októ­ber 2007 til jan­úar 2008.

Eina skiptið á ferli Dags sem hann hefur setið í minni­hluta er kjör­tíma­bilið 2006 til 2010, að und­an­skildum áður­nefndum 100 dög­um, en miklar svipt­ingar voru í borg­ar­stjórn á þeim árum og alls fjórir meiri­hlutar mynd­að­ir.

Sam­fylk­ingin hefur ákveðið að bind­andi flokksval verði notað til að velja í efstu sex sætin á lista flokks­ins í Reykja­vík, en það mun fara fram 12.-13. febr­úar. Atkvæð­is­rétt í flokksval­inu hafa bæði flokks­menn og stuðn­ings­menn flokks­ins, eldri en 16 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár