Breyttur tónn gagnvart umhverfinu

Tíma­ritið Vís­bend­ing mun gefa út sér­stakt jóla­blað í næstu viku. Þema blaðs­ins er sjálf­bærni, lofts­lags­mál og grænar lausnir. Nýskip­aður ráð­herra umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála verður í við­tali auk þess sem fjöldi sér­fræð­inga skrifar í blaðið.

Guðrún Johnsen hagfræðingur verður á meðal penna í sérstöku jólablaði Vísbendingar í ár.
Guðrún Johnsen hag­fræð­ingur verður á meðal penna í sér­stöku jóla­blaði Vís­bend­ingar í ár. Mynd: Arion banki

Sérstök jóla­út­gáfa af tíma­rit­inu Vís­bend­ingu kemur út í næstu viku, þar sem áhersla verður lögð á lofts­lags­mál, sjálf­bærni og grænar lausnir.

Nýr umhverfis- orku og lofts­lags­ráð­herra, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, verður í við­tali í Jóla­blaði Vís­bend­ingar. Í við­tal­inu er rætt við Guðlaug Þór um sam­spil nátt­úru­verndar og lofts­lags­mála, upp­bygg­ingu vind­orku­vera og hvernig rík­is­stjórnin hyggst standa við eigin mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi. Fjöldi sér­fræð­inga skrifar enn­fremur greinar í blaðið.

Hrund Gunn­steins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Festu, gerir meðal ann­ars grein fyrir breyttum tóni atvinnu­lífs­ins gagn­vart umhverf­inu á síð­ustu árum Hag­fræð­ing­ur­inn Guðrún Johnsen mun fjalla þar um sam­fé­lags­legt hlut­verk líf­eyr­is­sjóða. Einnig verða greinar eftir Gunnar Jak­obs­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika og Berg­lindi Ólafs­dóttur fram­kvæmda­stýru Orku nátt­úr­unnar, auk ann­arra.

Síðasta við­hafnar­út­gáfa Vís­bend­ingar kom út í vor, en þar var nýsköpun og hug­verka­iðn­aður í brennid­epli. Blaðið inni­hélt meðal ann­ars við­tal við Davíð Helgason, fjár­festi og stofn­anda Unity, um frum­kvöðla­starf­semi, leikja­fram­leiðslu og sprota­fjár­fest­ing­ar. Auk þess mátti finna þar greinar um kynja­halla í nýsköpun, iðn­að­ar­stefnu fyrir Ísland og svör frá þing­mönnum um hvernig ætti að efla nýsköpun hér­lendis.

Vís­bend­ing gaf einnig út jóla­blað í fyrra, en það inni­hélt meðal ann­ars við­tal við Má Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra og grein­ingu á áhrifum spænsku veik­innar frá sagn­fræð­ingnum Gunnari Þór Bjarna­syni.

Í ljósi umfjöll­un­ar­efn­is­ins verður jóla­blað Vís­bend­ingar ekki prentað út í ár og verður því ein­göngu til á staf­rænu formi. Líkt og hinar við­hafnar­út­gáf­urnar verður það þó aðgengi­legt öllum.

Vís­bend­ing er viku­rit um við­skipti, efna­hags­mál og nýsköpun sem er gefið út á hverjum föstu­degi. Hægt er að ger­ast áskrif­andi að blað­inu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár