Öll sem létust í brunanum voru pólskir ríkisborgarar

Borin hafa verið kennsl á þá ein­stak­linga sem lét­ust í brun­anum á Bræðra­borg­ar­stíg.

Rannsókn lög­reglu á bruna á Bræðra­borg­ar­stíg miðar vel og hafa kennsl ein­stak­ling­anna þriggja sem lét­ust í brun­anum verið stað­fest af kennsla­nefnd Rík­is­lög­reglu­stjóra. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­reglu í dag.

Í henni segir að þau sem lét­ust hafi öll verið pólskir rík­is­borg­arar sem störf­uðu hér á landi.

„En ekki verða gefin upp nöfn þeirra að ósk aðstand­enda. Einn þeirra sem slas­að­ist í brun­anum er enn á gjör­gæslu. Lögregla getur ekki tjáð sig frekar um fram­vindu rann­sókn­ar­innar að svo stöddu,“ segir í til­kynn­ingu lög­reglu.

Krefst þess að borin sé virð­ing fyrir lífi, heilsu og öryggi alls verka­fólks

[links]Verka­lýðs­fé­lögin hafa mörg hver mót­mælt bágum aðstæðum erlends verka­fólks hér á landi í kjöl­far brun­ans. Alþýðu­sam­band Íslands kall­aði til að mynda eftir ítar­legri rann­sókn á aðdrag­anda og orsökum brun­ans en sam­kvæmt fréttum voru 73 ein­stak­lingar með skráð lög­heim­ili í hús­inu og langstærstur hluti þeirra var erlent fólk.

Efl­ing krafð­ist þess að félags­mála­ráð­herra og rík­is­stjórnin efndi taf­ar­laust lof­orð um hertar aðgerðir gegn brota­starf­semi á vinnu­mark­aði, þar með talið lof­orð um sekt­ar­heim­ildir vegna kjara­samn­ings­brota og önnur við­ur­lög.

Efl­ing krafð­ist þess enn fremur að allar stofn­anir hins opin­bera sem fara með eft­ir­lit varð­andi öryggi og heilsu borg­ar­anna sýndu til­ætl­aða árvekni og tækju eðli­legt frum­kvæði að íhlutun þegar við á, en sýndu ekki af sér van­rækslu og sinnu­leysi þegar lág­launa­fólk eða fólk af erlendum upp­runa ætti í hlut. Efl­ing krafð­ist þess að borin væri eðli­leg virð­ing fyrir lífi, heilsu og öryggi alls verka­fólks og að bund­inn yrði endir á kerf­is­bundna mis­munun gegn verka­fólki af erlendum upp­runa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár