Hæstiréttur hækkar sekt Valitor í 500 milljónir

Hæsti­réttur Íslands kvað í dag upp dóm þar sem kom­ist er að þeirri nið­ur­stöðu að Valitor hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með aðgerðum sem beindust að keppi­nautum félags­ins á mark­aði fyrir færslu­hirð­ingu. Var sekt fyr­ir­tæk­is­ins vegna sam­keppn­islaga­brota hækkuð úr 400 millj­ónum í 500 millj­ónir.

Jafn­framt hafi Valitor brotið gegn tveimur skil­yrðum sem félagið hafði skuld­bundið sig til að hlíta með sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í fyrra máli. Hins vegar telur dóm­ur­inn að hækka beri þær sektir sem­fyr­ir­tækið var dæmt til að greiða í hér­aðs­dómi. Er sektin þannig hækkuð úr 400 millj­ónum í 500 millj­ónir króna eins og kveðið var á um í úrlausnum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála.

„Til rök­stuðn­ings hækkun sekta byggir Hæsti­réttur m.a. á því að brot fyr­ir­tæk­is­ins hafi snert allan almenn­ing í land­inu, auk þess sem vísað er til þess að fjár­hags­legur styrk­leiki Valitors og ávinn­ingur af starf­sem­inni á brota­tíma­bil­inu hafi verið veru­legur. Jafn­framt er litið til þess að stjórn­valds­sekt í fyrra máli hafi ekki skilað þeim árangri að Valitor léti af sam­keppn­is­brotum. Er þetta hæsta sekt sem lögð hefur verið á íslenskt fyr­ir­tæki vegna mis­notk­unar á mark­aðs­ráð­andi stöðu,“ segir í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Samkvæmt dóm­inum ber Valitor að greiða Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu 4 millj­ónir króna í máls­kostnað.

Tildrög dóms­ins eru þau að í apríl 2013 sektaði Sam­keppn­is­eft­ir­litið Valitor hf. um 500 millj­ónir króna fyrir mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu og brot á skil­yrðum fyrri ákvörð­unar eft­ir­lits­ins. Var félagið talið hafa mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppi­nautum félags­ins á mark­aði fyrir færslu­hirð­ingu. Háttsemi Valitors fólst í því að fyr­ir­tækið verð­lagði þjón­ustu sína í færslu­hirð­ingu vegna debet­korta undir breyti­legum kostn­aði. Með þess­ari und­ir­verð­lagn­ingu var félagið lík­legra til að fá samn­inga við sölu­að­ila um færslu­hirð­ingu vegna kredit­korta sem talin er arð­sam­ari þjón­usta. Var umfang þess­arar und­ir­verð­lagn­ingar veru­legt. Fól hátt­semin einnig í sér brot á 54. gr. EES-samn­ings­ins.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið komst einnig að þeirri nið­ur­stöðu að Valitor hefði brotið gegn tveimur skil­yrðum sem félagið hafði skuld­bundið sig til að hlíta með sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið sem birt var í ákvörðun nr. 4/2008. Í brot­inu fólst m.a. að Valitor not­aði trún­að­ar­upp­lýs­ingar um sölu­að­ila í við­skiptum við keppi­nauta sína í færslu­hirð­ingu sem félagið hafði aðgang að vegna stöðu sinnar í útgáfu VISA greiðslu­korta hér á landi.

Valitor kærði ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála sem stað­festi hana í heild sinni í októ­ber 2013. Var það mat nefnd­ar­innar að mis­notkun Valitors á mark­aðs­ráð­andi stöðu sinni og brot á fyrr­greindu skil­yrði í eldri ákvörðun hafi verið alvar­leg. Valitor skaut úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur. Komst hér­aðs­dómur að þeirri nið­ur­stöðu að Valitor hefði af ásetn­ingi framið alvar­leg brot á sam­keppn­is­lögum. Hafi brotin að auki verið ítrekuð að hluta til. Hér­aðs­dómur taldi hins vegar að brot Valitors hefðu tekið til skemmra tíma­bils en lagt var til grund­vallar hjá áfrýj­un­ar­nefnd. Sökum þessa var sekt lækkuð og hún ákveðin 400 millj­ónir króna.

Valitor og Sam­keppn­is­eft­ir­litið stefndu mál­inu fyrir Hæsta­rétt Íslands, sem nú hefur kveðið upp sinn dóm, eins og áður greinir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár