Þjóðverjar líkt og aðrar þjóðir þurfi að spýta í lófana í loftslagsmálum

Lofts­lags­málin eru aftur í brennid­epli í Þýska­landi eftir mikil ham­fara­flóð þar í landi. Hraði aðgerða þarf að aukast sagði Þýska­landskansl­ari á sínum síð­asta sum­ar­blaða­manna­fundi en hún lætur af emb­ætti í haust.

Angela Merkel á sínum síðasta sumarblaðamannafundi. Hún lætur af embætti í haust eftir 16 ára setu í embætti Þýskalandskanslara
Angela Merkel á sínum síð­asta sum­ar­blaða­manna­fundi. Hún lætur af emb­ætti í haust eftir 16 ára setu í emb­ætti Þýska­landskansl­ara Mynd: EPA

Þjóð­verjar hafa ekki dregið nógu mikið úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til þess að hægt sé að ná mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins að mati Angelu Merkel Þýsklandskansl­ara. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Merkel á árlegum sum­ar­blaða­manna­fundi kanslar­ans. Fund­ur­inn var ef til vill hennar síð­asta form­legi blaða­manna­fundur en hún lætur af emb­ætti eftir kosn­ing­arnar í haust, eftir 16 ára setu í emb­ætti kansl­ara.

Merkel sagði Þjóð­verja hafa lagt þung lóð á vog­ar­skál­arnar í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar. Hlut­deild end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa hefði farið úr 10 pró­sentum upp í 40 pró­sent og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hefði dreg­ist saman um 20 pró­sent á milli áranna 1990 og 2010 og svo um önnur 20 pró­sent á síð­ustu 10 árum.

Að hennar mati hafi árang­ur­inn þó ekki verið nógur ef hann er met­inn til hlið­sjónar við mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um að halda hlýnun hita­stigs jarðar innan við tvær gráður og helst innan við 1,5 gráður miðað við með­al­hita­stig jarðar fyrir iðn­væð­ingu. Merkel sagði að allar þjóðir heims ættu það sam­eig­in­legt að hafa ekki staðið við skuld­bind­ingar sínar, ekki bara Þjóð­verjar.

Þjóðin gæti sýnt gott fordæmi

Merkel sem er með dokt­ors­próf í eðl­is­efna­fræði sagði að hún gæti sagt það með fullri vissu að aðstæður í lofts­lags­málum krefð­ust þess að meira væri gert og að aðgerðum þyrfti að hraða. Þjóð­verjar einir gætu ekki breytt lofts­lag­inu með aðgerðum sínum, en þjóðin gæti sýnt gott for­dæmi. Hún sagði enn fremur umhverf­is­mál hafa mótað allan hennar póli­tíska feril en hún var umhverf­is­ráð­herra frá 1994 til 1998 í rík­is­stjórn Helmut Kohl.

Lofts­lags­málin eru ofar­lega á baugi í þýskum stjórn­málum í kjöl­far mik­illa ham­fara­flóða í vest­ur­hluta lands­ins. Í umfjöllun Deutsche Welle segir að í fram­sögu sinni á fund­inum hafi Merkel ann­ars vegar fjallað um flóðin og hins vegar um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Í kjöl­farið tók við 80 mín­útna spurn­inga­tími.

Merkel, sem hefur heim­sótt flóða­svæðin tvisvar, tal­aði um þá eyði­legg­ingu sem blasti við henni á flóða­svæð­unum. Enn sé fólks saknað en að minnsta kosti 170 lét­ust í flóð­unum. Í vik­unni sam­þykkti rík­is­stjórn Merkel að veita 200 millj­ónum evra, um 30 millj­arða króna, í aðgerðir handa fólki á flóða­svæð­unum.

Kórónuveirusmit á uppleið á ný

Fjölgun kór­ónu­veirusmita í land­inu væri áhyggju­efni að mati Merkel og nú þyrfti að horfa aftur til aðgerða sem hindrað gæti smit. „Að koma í veg fyrir að heil­brigð­is­kerfið slig­ist undan álagi hefur verið leið­ar­stef í okkar aðgerðum,“ sagði Merkel á fund­inum um aðgerðir stjórn­valda. Merkel lof­aði í kjöl­farið bólu­setn­ingar og sagði að fólk ætti að hvetja aðra í kringum sig til þess að fara í bólu­setn­ingar. Um 60 pró­sent Þjóð­verja hafa fengið að minnsta kosti einn skammt bólu­efnis en nú er útlit fyrir að Delta afbrigði veirunnar sé að koma af stað nýrri bylgju þar í landi.

Samkvæmt tölum frá Our World in Data greindust rúm­lega 1900 með COVID-19 í Þýska­landi í gær og er sjö daga með­al­tal yfir fjölda smita sem greind eru á degi hverjum komin yfir 1400. Þetta með­al­tal stóð í tæp­lega 600 við upp­haf mán­aðar. Tæplega 3,8 millj­ónir hafa fengið COVID-19 í land­inu frá upp­hafi far­ald­urs og rúm­lega 91 þús­und hafa lát­ist vegna veirunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár