Ófrávíkjanleg krafa um að Katrín verði forsætisráðherra

Meiri­hluti stjórn­mála­flokka sem á sæti á Alþingi vilja sjá Katrínu Jak­obs­dóttur sem næsta for­sæt­is­ráð­herra frekar en Bjarna Bene­dikts­son, óháð því hvaða flokkar enda í rík­is­stjórn. Mikill póker er nú leik­inn við hið óform­lega stjórn­ar­mynd­un­ar­borð.

Mikill póker er nú leik­inn í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Mestar líkur eru taldar á því að rík­is­stjórn Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks verði mynduð eins og staðan er í dag. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur hins vegar gert við­mæl­endum sínum það algjör­lega skýrt að í slíkri stjórn yrði hún að vera for­sæt­is­ráð­herra. Það er ófrá­víkj­an­leg krafa sem verður að mæta áður en byrjað yrði að ræða um mál­efni. Næsta rík­is­stjórn þurfi leið­toga sem kljúfi ekki þjóð­ina.

Sú krafa hefur ekki hlotið góðan hljóm­grunn hjá Sjálf­stæð­is­flokknum sem þykir eðli­legt að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður hans, verði áfram for­sæt­is­ráð­herra í ljósi þess að flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins. Ef til greina kæmi að gefa eftir for­sæt­is­ráðu­neytið myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fara fram á aukið vægi ráðu­neyta í nýrri stjórn í sára­bætur.

Það liggur þó fyrir að Katrín nýtur stuðn­ings Fram­sókn­ar­flokks, Sam­fylk­ingar, og Við­reisnar sem næsti for­sæt­is­ráð­herra umfram Bjarna. Pírötum hugn­ast einnig mun frekar að Katrín verði for­sæt­is­ráð­herra en Bjarni, þótt að þeir styðji ekki allar teg­undir stjórna sem hún gæti leitt. Þeir eru sér­stak­lega mót­fallnir rík­is­stjórn sem inni­heldur Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Því er meiri­hluti þing­manna á bak við það að Katrín leiði næstu rík­is­stjórn frekar en Bjarni.

Við­mæl­endur Kjarnans telja að enn sé unnið að hálfu Vinstri grænna að koma á mögu­legri rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki þar Sam­fylk­ingin myndi koma í stað Fram­sókn­ar­flokks. Nokkur ljón eru þar í veg­inum, sér­stak­lega það að Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ingar, og Bjarni Bene­dikts­son hafa aldrei rætt saman um mögu­legt sam­starf og þekkj­ast lítið sem ekk­ert. Ólíklegt er talið að báðar þessar kröfur Vinstri grænna, að fá for­sæt­is­ráðu­neytið og Sam­fylk­ing­una inn í rík­is­stjórn, muni fást upp­fylltar.

Þriðja mögu­lega stjórnin sem hefur verið rædd und­an­farna daga er stjórn gamla fjór­flokks­ins. Þ.e. Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ing­ar­innar. Lítill sem eng­inn áhugi er sagður á þeirri stjórn innan Sam­fylk­ing­ar­innar. Þar er hins vegar vilji til að kanna að taka Viðreisn inn í slíka stjórn í stað Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Enn vonast eftir stjórnarandstöðustjórn

Ef for­seta Íslands verður ekki til­kynnt um mögu­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður í á næstu dögum er allt eins búist við því að hann láti Bjarna Bene­dikts­son fá stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið og leyfi honum að spreyta sig við myndun stjórnar.

Það fjölgar þó ekk­ert mögu­leik­unum sem eru í stöð­unni eins og hún er í dag. Líkt og Kjarninn greindi frá í gær þá telja nær allir við­mæl­endur hans að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Flokks fólks­ins, sem er oft­ast kölluð „Mogga­stjórnin“ sökum áhuga Morg­un­blaðs­ins á myndun hennar, ekki talin raun­hæfur mögu­leiki. Myndun hennar sé hótun sem notuð sé í þeim póker sem nú sé spil­aður við stjórn­ar­mynd­un­ar­borðið. En aðrir flokkar virð­ast ætla að sjá í gegnum þá hótun og láta reyna á alvar­leika hennar í stað þess að gefa eftir kröfur sínar til þess að stöðva myndun „Mogga­stjórn­ar­innar“.

Fyrir liggur að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ekki áhuga á að vinna með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins, eftir allt sem á undan hefur gengið þeirra á milli. Hann sagði við mbl.is í fyrra­dag að hann væri ekki spenntur fyrir ofan­greindri sam­setn­ingu á rík­is­stjórn. Hann hafi „lagt áherslu á að rík­­is­­stjórn í land­inu, til að búa til póli­­tísk­an stöðug­­leika, þurfi breið­ari skír­skot­un. Ég get ekki séð að hún myndi svara því kall­i.“

Þetta er afstaða sem for­menn ann­arra flokka á miðju- og vinstri væng stjórn­mál­anna deila. Breið skírskotun og stöð­ug­leiki felist ekki í því að leiða tvo umdeild­ustu stjórn­mála­menn þjóð­ar­innar, Sigmund Davíð og Bjarna, saman í rík­is­stjórn að nýju.

Innan Sam­fylk­ingar og Pírata er enn mik­ill vilji til þess að end­ur­vekja við­ræður núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokka sem sigldu í strand á mánu­dag vegna afstöðu Fram­sókn­ar­flokks gagn­vart þeim, jafn­vel með aðkomu Við­reisnar. Hvorki Vinstri græn né Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafa haft áhuga á end­ur­vakn­ingu þess sam­tals, að minnsta kosti ekki í bili.

Patt­staðan í íslenskum stjórn­málum heldur því áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár