Afleiðingar faraldursins afdrifaríkari í verr stöddum samfélögum

Afleið­ingar COVID-19 far­ald­urs­ins tengj­ast mörgum erf­iðum álita­málum, meðal ann­ars hvaða hags­muna þurfi að líta til og hvað skuli gera til að lág­marka nei­kvæðar félags­legar afleið­ingar eins og aukna áhættu fyrir þolendur heim­il­is­of­beldis.

Eyja Margrét Brynjarsdóttir
Eyja Margrét Brynjars­dóttir Mynd: Aðsend mynd

COVID-19 far­ald­ur­inn hefur vakið margar áleitnar spurn­ingar um ákvarð­anir stjórn­valda, sið­ferði­leg álita­mál í heil­brigð­is­geir­anum, rétt­indi og skyldur almenn­ings, mat á áhættu og mis­mun­andi hags­munum, upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings og traust til vís­inda.

Þetta segir Eyja Margrét Brynjars­dóttir, pró­fessor í heim­speki og hag­nýtri sið­fræði, í sam­tali við Kjarnann. Unnið verður að nýju rann­sókn­ar­verk­efni í sumar á vegum Nýsköp­un­ar­sjóðs náms­manna sem ber yfir­skrift­ina „Heim­speki­legar áskor­anir á far­sótt­ar­tímum“. Eyja Margrét er umsjón­ar­maður verk­efn­is­ins ásamt Finni Ulf Dellsén, dós­ent í heim­speki, og Vil­hjálmi Árnasyni, pró­fessor í sömu grein,

Hún segir að verk­efnið snú­ist um að skoða COVID-19 far­ald­ur­inn og við­brögðin við honum út frá þeim und­ir­sviðum heim­spek­innar sem helst snerta á þeim álita­málum sem upp koma: hag­nýttri sið­fræði, femínískri heim­speki, stjórn­mála­heim­speki og þekk­ing­ar­fræði/vís­inda­heim­speki.

Fjórir heim­spekinemar skrá­setji helstu atburði og álita­mál sem komið hafa upp, auk þess að vinna með leið­bein­endum að því að greina þessa atburði og álita­mál út frá heim­speki- og sið­fræði­legu sjón­ar­horni. Hver nem­andi leggur áherslu á eitt ofan­nefndra sviða en hóp­ur­inn í heild sinni vinnur jafn­framt saman og sam­þættir þannig rann­sóknir sínar.

Hér á Íslandi erum við nokkuð heppin

Eyja Margrét segir að álita­málin sem komið hafa upp séu af ýmsum toga, sem sé ástæða þess að þau tengi þetta við fjögur svið innan heim­spek­innar.

„Þau eru líka mis­mun­andi eftir því hvar við erum stödd í heim­inum. Hér á Íslandi erum við nokkuð heppin, ekki aðeins vegna þess að okkur hefur – fram að þessu – gengið vel í glímunni við far­ald­ur­inn heldur líka vegna þess að við búum við mikla vel­megun, sem gerir það mun auð­veld­ara en ella að taka á hinum ýmsu félags­legu afleið­ingum far­ald­urs­ins og ann­ars sem honum teng­ist.

Án þess að ég vilji með nokkru móti gera lítið úr þeim afleið­ingum hér á landi þá geta afleið­ingar bæði far­ald­urs­ins og ýmissa aðgerða gegn honum orðið enn afdrifa­rík­ari í sam­fé­lögum sem eru verr stödd. Þessar afleið­ingar tengj­ast mörgum erf­iðum álita­málum, meðal ann­ars hvaða ákvarð­anir sé rétt að taka varð­andi lok­anir fyr­ir­tækja og þjón­ustu­stofn­ana, sam­komu­bann og fleira í þeim dúr, hvaða hags­muna þurfi að líta til, hvað skuli gera til að lág­marka nei­kvæðar félags­legar afleið­ingar eins og aukna áhættu fyrir þolendur heim­il­is­of­beldis eða bregð­ast við því sem virð­ist óhjá­kvæmi­legt við þessar aðstæður, eins og aukið atvinnu­leysi.“

Margar spurningar vakna

Eyja Margrét segir að eins þurfi að huga að hlutum eins og hvenær og hve mikið sé í lagi að skerða frelsi almenn­ings, með hvaða hætti upp­lýs­inga­gjöf og upp­lýs­inga­öflun fari fram og hvernig skuli for­gangs­raða í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Svo vakni ýmsar spurn­ingar varð­andi vís­inda­rann­sóknir, til dæmis hvort ástæða sé til að draga úr kröfum um til­skilin leyfi eða vönduð vinnu­brögð þegar mikið er í húfi og mikið liggur á. Ekki megi heldur gleyma því máli sem hefur verið nokkuð umdeilt að und­an­förnu, þ.e. hvernig skuli haga tak­mörk­unum á ferðir til og frá land­inu, skimunum fyrir veirunni og öðru því tengdu.

Mikilvægt að geta kortlagt þá hagsmuni sem koma við sögu

Aðspurð af hverju mik­il­vægt sé að velta fyrir sér þessum álita­málum þá segir Eyja Margrét að þau telji mik­il­vægt að skoða málin út frá þessum spurn­ingum og skrá­setja sem fyrst meðan svo stuttur tími sé lið­inn frá því að þetta ástand skall á.

„Eins og við vitum geta hugs­anir og við­horf breyst hratt með breyttum aðstæðum og fer fljótt að fenna yfir ýmis­legt í minn­inu. Þess vegna er dýr­mætt að geta átt heim­ildir um afstöðu til þess­ara spurn­inga á þessu stigi. Við erum að glíma við afar flókin álita­mál sem er mik­il­vægt að gefa sér tíma til að rýna aðeins í og greina hvað það er sem skiptir máli.

Ástandið sem hefur skap­ast er í raun mjög flókið og lítið til af ein­földum lausnum á því eða aug­ljósum svörum við því hvað sé best að gera. Því er mik­il­vægt að geta kort­lagt þá hags­muni sem koma við sögu og hvaða leiðir séu færar til að koma til móts við þá og hvernig sé hægt að vega og meta bæði hags­muni og áhættu þegar mik­il­vægar ákvarð­anir eru teknar,“ segir hún.

Hlutverk heimspekinnar að gera grein fyrir mismunandi þáttum sem flækja málin

Varðandi það hvað heim­spekin geti lagt til á tímum sem þessum þá bendir hún á – eins og margoft hafi verið sagt – að það ástand sem við búum við sé for­dæma­laust og staðan sé í raun mjög flókin vegna mik­ils fjölda ólíkra hags­muna sem tak­ist á, en séu samt allir mik­il­vægir, og vegna óvissunnar sem skap­ist af nýjum sjúk­dómi sem eng­inn viti almenni­lega hvernig hegðar sér. Hlutverk heim­spek­innar hér sé að gera grein fyrir öllum þessum mis­mun­andi þáttum sem flækja málin.

„Rann­sóknin mun hafa hag­nýtt gildi – beint og óbeint – fyrir rann­sóknir, kennslu og ekki síst opin­bera umræðu um heim­speki­legar hliðar COVID-19. Ef vel tekst til munu þær heim­speki­legu rann­sóknir á COVID-19 sem gerðar verða á næstu árum byggja á þess­ari skrá­setn­ingu og grein­ingu, auk þess sem rann­sóknir utan heim­speki – svo sem í stjórn­mála­fræði og félags­sál­fræði – geta byggt á sama grunni að nokkru leyti.

Kennsla um COVID-19 getur einnig byggt á þessum grunni, enda verða útbúnir textar fyrir Vís­inda­vef HÍ sem henta sér­stak­lega vel í kennslu, til dæmis á fram­halds­skóla­stigi. Loks mun opin­ber umræða geta byggt á þessum grunni, enda verða gögn og nið­ur­stöður birtar opin­ber­lega og fjöl­miðlum sér­stak­lega bent á þau,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár