Seðlabankinn neitar að greiða Þorsteini Má fimm milljónir

For­stjóri Samherja gerði kröfu um að Seðla­banki Íslands myndi greiða sér fimm millj­ónir króna vegna kostn­aðar og miska. Bankinn telur sig ekki hafa bakað sér bóta­skyldu.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja hefur boðið Seðla­banka Íslands að greiða sér fimm millj­ónir króna í bætur vegna kostn­aðar og miska sem mála­rekstur bank­ans gegn Samherja og Þor­steini Má sjálfum hefur kostað. Mála­rekst­ur­inn var vegna ætl­aðra brota á lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál. Seðla­bank­inn hefur hafnað kröf­unni með bréfi sem sent var til Samherja 30. júlí síð­ast­lið­inn. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti.

Í bréf­inu, sem Mark­að­ur­inn er með undir höndum, segir að ekki verði séð að Seðla­bank­inn hafi með sak­næmum eða ólög­legum hætti haft afskipti af Þor­steini Má vegna máls­ins né hafi máls­með­ferð bank­ans brotið á rétt­indum hans með þeim hætti að bóta­skylda hafi skap­ast.

Mála­rekstur Seðla­bank­ans gegn Samherja hófst með hús­leit í höf­uð­stöðvum Sam­herja 27. mars 2012, en um 25 starfs­menn gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands og emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara tóku þátt í aðgerð­un­um.

[adspot]Því lauk form­lega þegar Hæsti­réttur stað­festi í nóv­em­ber í fyrra dóm Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur, þar sem sú ákvörðun Seðla­banka Íslands að sekta útgerð­ar­fyr­ir­tækið Sam­herja, upp á 15 millj­ónir króna, var dæmd ógild.

Í jan­úar 2019 var birt álit Tryggva Gunn­ars­son­ar, Umboðs­manns Alþing­is, þar sem hann fjall­aði um svör Seðla­bank­ans vegna stjórn­valds­sektar sem lögð var á Þor­stein Má. Það var mat Umboðs­manns að svar Seðla­bank­ans hafi ekki verið lögum sam­kvæmt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár