Útflutningur sjávarafurða til ESB-ríkja jókst um fimmtung

Inn­flutn­ingur íslenskra sjáv­ar­af­urða til ESB-ríkja jókst meira en frá nokkru öðru landi í fyrra. Ástæðan er að hluta til inn­flutn­ings­bann Rússa á íslensk mat­væli.

Útflutn­ingur íslenskra sjáv­ar­af­urða til Evr­ópu­sam­bands­ríkja jókst um nítján pró­sent í fyrra, sam­kvæmt nýjum tölum frá fram­kvæmda­stjórn ESB. Útflutn­ingur sjáv­ar­af­urða frá Íslandi jókst meira en frá nokkru öðru ríki.

Inn­flutn­ings­bann Rússa, á afurðir frá Evr­ópu­sam­band­inu, Banda­ríkj­unum, Kanada, Noregi, Ástralíu og Íslandi, hafði mikil áhrif á við­skipti á heims­vísu, segir í útgáfu fram­kvæmda­stjórn­ar­innar. Útflutn­ingi á fiski og sjáv­ar­af­urðum, sem hefði undir eðli­legum kring­um­stæðum farið á rúss­neskan markað fór á aðra mark­aði, þar með talið ESB-mark­að­inn. Þetta gæti að hluta til útskýrt þá miklu aukn­ingu sem varð í útflutn­ingi íslenskra sjáv­ar­af­urða þangað.

Íslenska mat­væli voru sett á bann­lista í Rúss­landi í ágúst í fyrra, og bætt­ist þá á langan lista ríkja sem við­skipta­bann var sett á. Bannið var sett á sem svar við við­skipta­þving­unum ríkj­anna á Rússland vegna fram­ferðis þeirra í Úkraínu.

Nýlega ákváðu rúss­nesk stjórn­völd að fram­lengja inn­flutn­ings­bannið til árs­loka 2017 að minnsta kosti. Annars hefði bannið runnið út í ágúst.

Mikið var rætt um inn­flutn­ings­bannið og áhrif þess á íslenskan sjáv­ar­út­veg, þar sem Rússland hefur verið mik­il­vægur mark­aður, einkum þegar kemur að frosnum loðnu­af­urðum, mak­ríl og síld. Ísland hefur orðið fyrir nei­kvæð­ari áhrifum af bann­inu en flest önnur ríki vegna þessa.

Mikill þrýst­ingur var settur á stjórn­völd að hætta þátt­töku sinni í refsi­að­gerð­unum gegn Rúss­landi, og hefur Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, greint frá því að hann hafi aldrei fundið fyrir við­líka þrýst­ingi og í þessum málum. Bæði hann og eft­ir­maður hans, Lilja Alfreðs­dóttir, hafa þó staðið föst á því að ekki verði hvikað frá þátt­töku í aðgerð­unum með öðrum vest­rænum ríkjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár