Staðan í London tvísýn – þriðjungi fleiri á sjúkrahúsi en í fyrstu bylgju

Kór­ónu­veiran breið­ist nú stjórn­laust út í London og sjúkra­húsin eru við það að missa tökin og hætta að ráða við álagið.

Sadiq Khan, borgarstjóri Lundúna.
Sadiq Khan, borg­ar­stjóri Lundúna. Mynd: EPA

Borg­ar­stjóri Lundúna segir ástandið á sjúkra­húsum í borg­inni krítískt vegna hraðrar útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Hann segir hættu á því að sjúkra­húsin ráði ekki við álagið.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem birt var á vef borg­ar­stjórn­ar­innar í dag.

Frá 30. des­em­ber til 6. jan­úar fjölg­aði sjúk­lingum sem lagðir voru inn á sjúkra­hús í London vegna COVID-19 um 27 pró­sent. Um ára­mótin lágu 5.524 á sjúkra­húsi en í gær voru þeir 7.034. Á sama tíma­bili hefur þeim sem þurfa að vera í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu fjölgað um 42 pró­sent. Samtals þurfa 908 sjúk­lingar á slíkri með­ferð að halda í dag.

Á síð­ustu þremur sól­ar­hringum hafa 477 manns lát­ist á sjúkra­húsum í London vegna COVID-19. „Staðan í London er mjög tví­sýn núna vegna þess að veiran er að breið­ast út stjórn­laust,“ sagði Sadiq Khan, borg­ar­stjóri Lundúna.

Þriðj­ungi fleiri hafa þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús í þess­ari nýj­ustu bylgju far­ald­urs­ins í borg­inni en í fyrstu bylgj­unni í mars og apríl í fyrra.

Gríð­ar­legt álag er á öllum starfs­mönnum í heil­brigð­is­kerf­inu sem og þeim sem ann­ast sjúkra­flutn­inga. Álagið á þá síð­ar­nefndu er það mesta í sög­unni. Um 8.000 beiðnir um bráða­flutn­inga ber­ast nú dag­lega sam­an­borið við um 5.000 á anna­sömum dögum síð­ustu ára.

Borg­ar­stjór­inn hefur því lýst yfir neyð­ar­á­standi (major incident) og getur þar með sótt frek­ari stuðn­ing til rík­is­valds­ins til að takast á við stöð­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár