Niðurstaðan kom ráðherrum ekki á óvart

Nið­ur­staða atkvæða­greiðslu um nýjan kjara­samn­ing hjúkr­un­ar­fræð­inga kom þeim Bjarna Bene­diktsyni, fjár­mála­ráð­herra, og Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, heil­brigð­is­ráð­herra, ekki á óvart. Bjarni telur jafn­framt ekki standa lengur til boða að setj­ast að samn­inga­borð­inu.

Hjúkr­un­ar­fræð­ingar höfn­uðu nýgerðum kjara­samn­ingi félags­ins með 88,4 pró­sent atkvæða í atkvæða­greiðslu sem lauk á hádegi í dag. Stjórn Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga lítur svo á að samn­ingar félags­ins við ríkið séu nú lausir og félagið mun fela lög­manni sínum að meta rétt­ar­stöðu félags­ins gagn­vart rík­inu.

Í sam­tali við mbl.is sagði Kristján Þór Júl­í­us­son við þess­ari nið­ur­stöðu hefði mátt búast „eftir umræður síð­ast­lið­inna daga“. Hann hafi einnig fengið að heyra það beint frá hjúkr­un­ar­fræð­ingum hversu óánægðir þeir væru með síð­asta til­boð rík­is­ins sem kosið var um. Bjarni tal­aði á sömu nótum; eng­inn hefði talað fyrir samn­ingum.

Sú til­laga sem greidd voru atkvæði um var síð­asta til­boð rík­is­ins til Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga (FÍH) áður en lög voru sett á verk­fallið í júní. Alþingi fól í kjöl­farið gerð­ar­dómi að ákvarða laun hjúkr­un­ar­fræð­inga en FÍH telur honum hafa verið snið­inn ansi þröngur stakkur.

Óvíst er hver næstu skref verða í kjara­deil­unni en Ólafur G. Skúlason, for­maður Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga (Fíh), sagði í sam­tali við Kjarnann í dag að það sé vilji félags­ins að setj­ast aftur að samn­inga­borð­inu. Bjarni Bene­dikts­son segir það hins vegar ekki lengur standa til boða. Gerð­ar­dómur muni halda áfram að fjalla um málið.

„Mín afstaða byggir á því sem var vilji og ætlun lög­gjafans. Þetta er óskap­lega ein­falt. Það voru sett lög á verk­falls­að­gerðir og fært í hendur gerð­ar­dóms að ákveða kjörin ef ekki næð­ust samn­ingar. Nú liggur fyrir að ekki tók­ust samn­ingar og þá er alveg skýrt í mínum huga að málið gengur til gerð­ar­dóms,“ segir Bjarni í sam­tali við mbl.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár