Heilbrigðisstarfsmenn áhyggjufullir yfir því að sjúklingar fari til útlanda

Land­lækn­is­emb­ættið segir að stjórn­völd ættu frekar að setja fjár­magn í að stytta biðlista eftir aðgerðum hér á landi en að veita fé til heil­brigð­is­þjón­ustu í öðrum löndum, eins og til stendur að gera með frum­varpi að lögum um heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri. Það þurfi að kapp­kosta að standa vörð um og efla heil­brigð­is­kerfið á Íslandi, enda sér þar þekk­ing, sér­hæf­ing og þjálfun fyrir hendi til að veita Íslend­ingum þá þjón­ustu sem þeir þurfa. Þetta kemur fram í umsögn emb­ætt­is­ins um frum­varpið, sem Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur lagt fram á Alþingi.

Frum­varpið byggir á Evr­óputil­skipun og mark­miðið er að greiða fyrir aðgengi að öruggri hágæða­heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri, tryggja frjálst flæði sjúk­linga innan sam­bands­ins og stuðla að sam­vinnu um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli aðild­ar­ríkja. Með frum­varp­inu er ætl­unin að sjúkra­tryggt fólk á Íslandi geti leitað heil­brigð­is­þjón­ustu í öðru EES-ríki og Sjúkra­trygg­ingar Íslands greiði fyrir þjón­ust­una líkt og hún væri veitt á Íslandi, það er að því marki sem borgað er fyrir þjón­ust­una hér á landi.

Samkvæmt frum­varp­inu verður ekki gerð krafa um það að fólk fái sam­þykki áður en það fer héðan og fær heil­brigð­is­þjón­ustu í öðru landi. Ríkjum er samt heim­ilt að tak­marka end­ur­greiðslu kostn­aðar á grund­velli almanna­hags­muna, en þau mega líka ákveða að end­ur­greiða kostnað umfram það sem borgað væri á Íslandi. Samhliða þessum breyt­ingum verða líka breyt­ingar á lyf­seðlum og skömmtun og afgreiðslu lyfja og lækn­inga­tækja, sem verður þá hægt að nálg­ast í öðrum EES-ríkjum.

Flestir umsagn­ar­að­ilar eru jákvæðir í garð þess að Íslend­ingar geti sótt sér þjón­ustu erlendis með auð­veld­ari hætti, en vilja tryggja að íslenskt heil­brigð­is­kerfi verði sett í for­gang og fái að veita þjón­ustu sem hægt er að veita, svo að fólk fari ekki unn­vörpum erlendis.

Ættu að líta sér nær fyrst og fækka á biðlistum

Sjúkra­trygg­ingar Íslands eiga að vera tengiliður fólks sem vill fá upp­lýs­ingar um heil­brigð­is­þjón­ustu í öðru landi. Stofn­unin seg­ist reiðu­búin til þess í sinni umsögn, svo fram­ar­lega sem nægj­an­legt fjár­magn fásti til þess. Sama má segja um alla umsýslu við þessar breyt­ingar. Þær muni kalla á tölu­verða vinnu og kostnað hjá Sjúkra­trygg­ingum.

Stofn­unin bendir líka á það að stjórn­völd ættu að skoða magnsamn­inga sína við þjón­ustu­veit­endur áður en til­skip­unin verður inn­leidd á Íslandi. Til dæmis hafi ríkið ákveðið að greiða bara fyrir til­tek­inn fjölda auga­steins­að­gerða á hverju ári þrátt fyrir að læknar geti vel gert fleiri aðgerðir. Biðlistar séu orðnir mjög langir eftir þessum aðgerðum en það væri „mjög sér­stakt ef sjúk­lingar gætu leitað til útlanda og fengið end­ur­greiðslu á kostn­að­inum en ekki ef þeir leit­uðu til lækna hér á landi.“

Truflar forgangsröðun í fjársveltu heilbrigðiskerfi

Land­lækn­is­emb­ættið lýsir í sinni umsögn yfir áhyggjum af því að hægt verði að sækja sér lækn­is­þjón­ustu í útlöndum án þess að fá fyr­ir­fram­sam­þykki og án eft­ir­lits. Þetta skapi hættu á því að fé verði sett í heil­brigð­is­þjón­ustu sem sé ekki þörf á að setja í for­gang. Eins og staðan er í íslensku heil­brigð­is­kerfi núna, þar sem tak­markað fé fer í þjón­ust­una, sé for­gangs­röðun fjár­magns mik­il­væg svo að tryggt sé að þeir sem mest þurfa á heil­brigð­is­þjón­ustu að halda fái hana.

Ef stjórn­völd myndu veita fjár­magni í það að stytta biðlista hér á landi væri hægt að spara þann auka kostnað sem Sjúkra­trygg­ingar hafa áhyggjur af að verði til þar á bæ vegna auk­innar umsýslu.

„Heil­brigð­is­kerfið hefur gengið í gegnum erf­ið­leika sem tengj­ast efna­hags­hrun­inu og einnig verk­föllum ýmissa heil­brigð­is­stétta sem stóðu yfir í heilt ár með hléum. Rekja má leng­ingu biðlista eftir ýmsum skurð­að­gerðum m.a. til þess­ara þátta,“ segir land­lækn­is­emb­ættið, sem hefur sett við­mið um að bið­tími eftir aðgerðum og annarri til­tek­inni þjón­ustu eigi ekki að vera meira en 90 dagar. Hins vegar séu nú á biðlistum tæp­lega 5.000 manns sem hafi beðið lengur en 90 daga eftir aðgerðum. „Leiða má líkum að því að ein­hverjir þess­ara ein­stak­linga sem bíða munu kjósa að fara erlendis ef biðin er styttri þar.“

Sjúklingar vilja þjónustu á Íslandi

Lækna­fé­lag Íslands tekur í sama streng og Land­lækn­is­emb­ættið og vill að settar verði for­gangs­reglur og íslensk heil­brigð­is­þjón­usta verði efld til þess að draga úr líkum á því að sjúk­lingar þurfi að leita til ann­arra landa eftir heil­brigð­is­þjón­ustu. „Það getur verið sjúk­lingum mik­il­vægt að greitt sé fyrir aðgengi að öruggri hágæða­heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri, tryggja frjálst flæði sjúk­linga innan EES og stuðla að sam­vinnu um heil­brigð­is­þjón­ustu. LÍ telur þó að sjúk­lingum sé mik­il­væg­ast að eiga greiðan aðgang að slíkri þjón­ustu hér á landi. LÍ full­yrðir að það sé vilji flestra sjúk­linga njóta öruggrar hágæða­heil­brigð­is­þjón­ustu á íslandi.“

Undir það tekur land­læknir einnig, og segir að kann­anir hafi verið gerðar meðal sjúk­linga sem sýni fram á að þeir kjósi miklu frekar að fá þjón­ustu á Íslandi en ann­ars staðar. Það sé líka óhag­ræði og fylgi auk­inn kostn­aður að þurfa að fara erlendis.

Hættulegt fyrir sérhæfingu

Fyrir utan það að heil­brigð­is­þjón­ustan á Íslandi þurfi hrein­lega ákveð­inn lág­marks­fjölda sjúk­linga til að standa undir sér og við­halda þekk­ingu, sér­hæf­ingu og þjálfun heil­brigð­is­starfs­manna. Ef sjúk­lingar fara í miklum mæli og sækja sér þjón­ustu í útlöndum muni það lík­lega hafa slæm áhrif á við­hald og færni heil­brigð­is­starfs­manna, og þar með á gæði og öryggi sjúk­linga. Það muni líka hafa í för með sér að ennþá fleiri heil­brigð­is­starfs­menn kjósi að vinna í útlöndum. Land­spít­al­inn bendir einnig á þetta og segir að allar fjár­fest­ingar á spít­al­anum í tækjum, bún­aði og mann­skap krefj­ist lág­marks­fjölda sjúk­linga. „Ísland er lítið land og til að við­halda fæmi og hámarka nýt­ingu fjár­fest­inga er brýnt að halda sem mestum verk­efnum inn­an­lands nema öryggi sjúk­linga liggi við eða skýr fjár­hags­legur ávinn­ingur sé af því að þjón­usta sé veitt erlendis,“ skrifar Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, um málið. Ef fólk fari í miklum mæli til ann­arra landa sé því hætta á að sér­hæf­ing skerð­ist og þá muni fram­boð á heil­brigð­is­þjón­ustu minnka á Íslandi, sem myndi ógna öryggi allra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár