Átök við borg­ara Lög­reglan lendir reglu­lega í átökum við borg­ara og stundum brjóta lög­reglu­menn af sér. Fer­ill­inn fyrir kvart­anir liggur hins vegar í gegnum lög­regl­una sjálfa. Á með­fylgj­andi mynd má sjá aðgerðir lög­reglu við útburð á hópi fólks af heim­ili í ágúst 2011. 99% beiðna um hler­anir eru sam­þykktar. Mynd: PressPhotos

Hver ver okkur fyrir brotum lögreglunnar?

Þegar borgari telur að lögregla hafi brotið gegn sér er það lögreglan sjálf sem tekur við kvörtunum og lögreglu­þjónar sem rannsaka brotið. Forsvars­menn lögreglunnar bregðast oft illa við þegar lögreglan er staðin að lögbroti. Á einum áratug bárust ríkis­saksóknara alls 302 kærur vegna starfa lögreglu­manna.

Lögreglan gengur hart fram gegn friðhelgi einkalífs ungs fólks á Íslandi samkvæmt formanni Snar­rótarinnar, samtaka um borgaraleg réttindi. Hafa yfirmenn lögreglu ásamt innan­ríkis­ráðherra sætt ítrekuðum ákúrum vegna meðferðar persónulegra upplýsinga undan­farin misseri. Auknar heimildir lögreglunnar til persónu­njósna með eða án gruns um glæpi eru nú aftur í umræðu eftir útgáfu hættumats ríkis­lögreglu­stjóra í lok febrúar.

Útistöður ungs fólks við lögreglu

Síðustu mánuði hefur Snarrótin safnað reynslu­sögum af viðskiptum almennings og lögreglu og hafa hátt í hundrað sögur borist. Að mati Péturs Þorsteins­sonar, formanns samtak­anna, notar lögregla stríðið gegn fíkni­efnum til að grafa undan borgara­legum réttindum.
„Í íslensku stjórnar­skránni eru býsna ströng ákvæði um friðhelgi einkalífs og það eru gerðar formlegar kröfur um hvenær má, til dæmis, gera húsleit,“ segir hann í samtali við Stundina. „Þessar reglur hefur lögreglan getað þanið út. Þær undanþágu­heimildir sem vissulega eru til staðar í stjórnar­skránni túlkar hún svo vítt að ákvæði mann­réttinda­kafla stjórnar­skrárinnar eru að mati Snar­rótarinnar í stórhættu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár