Píratar eini flokkurinn sem getur verið ánægður með gang mála

Í næsta mán­uði eru tvö ár liðin frá því að síð­ast var kosið til Alþingis. Þar af leið­andi er kjör­tíma­bil sitj­andi rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks tæp­lega hálfnað.

Ljóst er að kjör­tíma­bilið hefur skilað þeim stjórn­mála­flokkum sem eiga full­trúa á Alþingi. Kjarninn fór yfir fylg­is­breyt­ingar hvers og eins.

Fastur í um fjórðungsfylgi


Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins, líkt og hann hefur verið hart­nær alla íslenska stjórn­mála­sögu. Þeir tímar þegar flokk­ur­inn var breið­fylk­ing sem gat gengið að því vísu að fá um og yfir 40 pró­sent fylgi í kosn­ingum virð­ast hins vegar vera ræki­lega að baki. Flokk­ur­inn fékk herfi­lega útreið í kosn­ing­unum árið 2009. Þá fékk hann 23,7 pró­sent fylgi, eða 12,9 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum þar áður. Samhliða tap­aði hann titl­inum stærsti flokkur lands­ins til Sam­fylk­ing­ar­innar.

Í síð­ustu kosn­ingum náði hann vopnum sínum á loka­spretti kosn­inga­bar­átt­unnar og þegar talið var upp úr kjör­köss­unum reynd­ust 27,1 pró­sent greiddra atkvæða hafa fallið Sjálf­stæð­is­flokknum í skaut og hann aftur orð­inn stærstur í land­inu.

Þrátt fyrir það gaf flokk­ur­inn eftir for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn til óum­deil­an­legs sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna, Fram­sókn­ar­flokks Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Það verður að segj­ast eins og er að stjórn­ar­setan, þrátt fyrir að vera á köflum skraut­leg, hefur varla haft nein áhrif á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Sama hvernig veðrar þá er fylgi flokks­ins mælt 25-27 pró­sent. Mögulega er ástæðan sú að þarna sé um kjarna­fylgi flokks­ins að ræða og að honum tak­ist illa að höfða til kjós­enda utan þess.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins

|

Create infographics

Fylgið hrunið

Stöð­ug­leiki er hins vegar ekki orð sem hægt er að nota um gengi hins stjórn­ar­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks. Flokk­ur­inn rauk upp í fylgi í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga á baki kosn­inga­lof­orðs um að leið­rétta verð­tryggð hús­næð­is­lán og í kjöl­far Icesave-dóms­ins, sem Framsókn tókst að eigna sér póli­tískt í umræð­unni. Í kosn­ing­unum í apríl 2013 fékk flokk­ur­inn heil 24,4 pró­sent og for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn. Það var tæp­lega tíu pró­sentum meira en hann fékk í kosn­ing­unum þar á undan. Fylgið var þó fljótt að hverfa. Ári eftir kosn­ingar mæld­ist það 14 pró­sent. Og þrátt fyrir að hafa komið stærsta kosn­inga­mál­inu, leið­rétt­ingu á völdum verð­tryggðum hús­næð­is­lánum upp á 80 millj­arða króna, sem ráð­ist var í á síð­ari hluta árs­ins 2014, hefur fylgið bara haldið áfram að dala. Í fjórum af síð­ustu fimm mæl­ingum Capacent hefur það mælst um ell­efu pró­sent. Það hefur ekki mælst jafn lágt síðan í mars 2009, um einum og hálfum mán­uði eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var kjör­inn for­maður flokks­ins. Óánægja með rík­is­stjórn­ina virð­ist því ein­ungis bitna á Fram­sókn­ar­flokknum, ekki Sjálf­stæð­is­flokknum.


Samfylkingin í vandræðum með að ná vopnum sínum


Sam­fylk­ingin ætl­aði sér að verða hinn turn­inn í íslenskum stjórn­málum, skýr val­kostur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Á þeim 15 árum sem liðin eru síðan að flokk­ur­inn var stofn­aður hefur orðið ljóst að það mark­mið er ekki að fara að nást. Ástæð­urnar sem tíndar hafa verið til eru mýmargar. Ósam­staða miðju- og vinstri­flokka hefur til að mynda skilað því að vinstra­fylgið skipt­ist niður á marga flokka. Mörgum finnst flokk­ur­inn daðra allt of mikið við atvinnu­lífið. Og enn aðrir segja for­ystu­sveit hans í gegnum árin ein­fald­lega skorta aðdrátt­ar­afl.

Eftir að hafa sópað til sín óánægju­fylgi í fyrstu kosn­ing­unum eftir hrun, þrátt fyrir að hafa verið í rík­is­stjórn þegar efna­hags­kerfið féll, fjar­aði fljótt undan fylg­inu. Í kosn­ing­unum 2013 fékk Sam­fylk­ingin ein­ungis 12,9 pró­sent, heilum 16,9 pró­sentu­stigum minna en 2009. Það er skellur sem á sér vart hlið­stæðu í íslenskri stjórn­mála­sögu.

Mjög erfið stjórn­ar­seta, þar sem rík­is­stjórnin var í raun minni­hluta­stjórn stóran hluta kjör­tíma­bils­ins án þess að við­ur­kenna það, spil­aði auð­vitað inní þetta afhroð. En Björt fram­tíð, nýr stjórn­mála­flokkur sem stað­setti sig á mjög svip­uðum stað í hinu póli­tíska litrofi og Sam­fylk­ingin, skipti þar líka máli og tók tölu­vert af fylgi hennar til sín. Þá má ekki van­meta áhrif kosn­inga­sig­urs Fram­sókn­ar­flokks­ins á fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar.

Sam­fylk­ingin hefur ekki riðið feitum hesti frá fyrstu tveimur árunum í stjórn­ar­and­stöðu. Hann hefur hæst mælst með 20 pró­sent fylgi, en fyrir síð­ustu kosn­ingar hafði Sam­fylk­ingin minnst fengið 26,8 pró­sent í þing­kosn­ingum. Í nýj­ustu mæl­ingum Capacent hefur fylgið enn verið að dala og rétt skríður nú um 17 pró­sent. Ef krísa er ekki farin að gera vart við sig hjá for­ystu Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­vart fylg­is­leys­inu þá ætti hún að fara að læð­ast inn. Flokknum virð­ist ekk­ert ganga að ná til kjós­enda.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar

|

Create infographics

Bóla sem virðist alls ekkert ætla að springa

Eini flokk­ur­inn á þingi sem getur verið sáttur, raunar mjög sáttur, við nýj­ustu fylg­is­mæl­ingar eru Píratar. Þeir mæl­ast nú með 15,2 pró­sent flygi og eru sam­kvæmt því þriðji stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins. Það er ótrú­lega góður árangur fyrir mjög rót­tækt fram­boð sem rétt skreið yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn sem tryggir fram­boði full­trúa á Alþingi í síð­ustu kosn­ingum. Ef kosið yrði í dag myndu Píratar lík­lega fá yfir tíu þing­menn.

Stöðugur stíg­andi hefur verið í fylgi flokks­ins und­an­farin miss­eri. Hann má lík­ast til að mestu rekja til frammi­stöðu þing­mann­anna þriggja sem sitja fyrir fram­boðið á þingi. Þeir hafa náð að marka sér sér­stöðu með þeim málum sem þeir hafa lagt fram og stíga með því út fyrir þras­kennda síbylgj­una sem ein­kennir hið dag­lega stjórn­málakarp.

Fylg­is­sveiflur í skoð­ana­könn­unum eru auð­vitað engin trygg­ing fyrir árangri í þing­kosn­ingum, það geta spútnik­fram­boð á borð við Þjóðvaka Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Samstaða Lilju Mós­es­dóttur. En stuðn­ingur við Pírata, sér­stak­lega hjá yngra fólki, virð­ist vera í stöð­ugum vexti. Þeir sem bíða eftir því að Pírata-bólan springi gætu því þurft að bíða lengi.


Festir sig í sessi sem stjórnmálaafl


Enginn stjórn­mála­flokkur þarf að sitja jafn reglu­lega undir þeirri ásökun að vera til fyrir stjórn­mála­menn­ina sem honum stjórna, fyrir að vera ljós­rit af Sam­fylk­ing­unni, fyrir að vera verk­lítil og skoð­ana­laus og Björt fram­tíð. Sú gagn­rýni er ekki að öllu leyti sann­gjörn og ljóst að hún hefur lítil áhrif á þá sem flykkja sér að baki flokknum. Fylgið mælist nokkuð stöðugt 13-16 pró­sent og í flestum skoð­ana­könn­unum mælist Björt fram­tíð sem þriðji stærsti flokkur lands­ins. Það verður að telj­ast nokkuð góður árangur fyrir flokk sem var stofn­aður árið 2012, þótt hann græði tölu­vert á því að byggja á grunni Besta flokks­ins.

Það vita þó fáir jafn vel hversu fall­valt fylgið getur verið í aðdrag­anda kosn­inga og Björt fram­tíð. Fylgið mæld­ist allt að 18 pró­sent snemma árs 2013 en þegar talið var upp úr köss­unum í apríl sama ár fékk flokk­ur­inn rúm átta pró­sent og sex þing­menn.

Fylgi Bjartrar fram­tíðar

|

Create infographics

Flokkur innri átaka

Vinstri græn eiga þann for­ystu­mann í íslenskum stjórn­málum, Katrínu Jak­obs­dóttur, sem flestir Íslend­ingar treysta. Í könnun MMR sem var gerð fyrir um ári sögð­ust 46 pró­sent aðspurðra treysta henni. Samt nýtur flokkur hennar ekki mik­ils fylgis. Í síð­ustu kosn­ingum fékk hann rúm ell­efu pró­sent og fylgið hefur haldið sig í þeirri stærð­argráðu í könn­unum, verið á milli 11-14 pró­sent. Flokk­ur­inn er því svip­aður að stærð­argráðu og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, svona alla jafna. Munurinn á þeim er sá að Framsókn kann það flokka besta að stela kosn­inga­bar­áttum og auka við fylgið þegar það skiptir mestu máli. Vinstri græn eru líka löskuð af nán­ast krónískum inn­an­flokksá­tökum sem lit­uðu síð­asta kjör­tíma­bil. Fjórir þing­menn, þau Atli Gíslason, Lilja Mósedóttir, Ásmundur Einar Daðason og Jón Bjarna­son, yfir­gáfu þing­flokk­inn á þessum tíma og gerðu það að verkum að síð­asta rík­is­stjórn sat lengi sem minni­hluta­stjórn. Auk þess fóru deilur Ögmundar Jón­as­sonar og Stein­gríms J. Sig­fús­sonar vart fram hjá mörgum. Báðir sitja enn sem þing­menn Vinstri grænna þótt að nýr for­maður sé tekin við. Það þvælist mögu­lega fyrir Katrínu að vera með þessa fyr­ir­ferða­miklu stjórn­mála­kempur í bak­pok­anum. Eða kannski á mál­flutn­ingur Vinstri grænna ein­fald­lega ekki erindi við fleiri en raun ber vitni.


Auðir og ógildir


Og svo eru það allir hinir flokk­arnir, sem leggj­ast reyndar í dvala á meðan að kjör­tíma­bilið sjálft stendur yfir, en eru mættir í umræð­una strax og líður að kosn­ingum. Þá verður lands­lagið eins og stúkan í hring­leika­hús­inu í Monty Phyton-mynd­inni Life of Brian, þétt­setin alls konar flokks­brotum sem eru aðal­lega sam­mála um að vera ekki sam­mála neinum öðrum um neitt.

Samhliða minnk­andi kosn­inga­þátt­töku þá hefur hlut­fall þeirra sem vilja ekki kjósa neitt og skila því auðu,eða ógilda vilj­andi seð­il­inn, auk­ist skarpt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár