Annar stór jarðskjálfti í Nepal - minnst fjórir látnir

Minnst fjórir eru látnir og fjöl­margir slas­aðir eftir að jarð­skjálfti sem mæld­ist 7,3 á richter reið yfir Nepal í morgun og hálf­tíma síðar kom annar skjálfti upp á 6,3. Aðeins eru rúmar tvær vikur frá því að enn stærri skjálfti, upp á 7,8, varð minnst átta þús­und manns að bana.

Jarð­skjálft­inn sem reið yfir í morgun átti upp­tök sín nálægt bænum Namche Bazaar, nálægt Everest fjalli. Skjálft­inn fannst einnig í norð­ur­hluta Indlands og Bangla­desh.

Þeir fjórir sem vitað er að eru látnir voru í Chautara, austur af höf­uð­borg­inni Katmandú. Þar hrundu margar bygg­ingar til grunna. Í Katmandú hljóp fjöldi fólks út úr bygg­ingum þegar skjálft­inn reið yfir, en borgin varð mjög illa úti í skjálft­anum í apríl. Samkvæmt sjón­ar­vottum Breska rík­is­út­varps­ins BBC, hrist­ist jörð um nokkra stund. Blaða­maður BBC, Simon Cox, sagði fólk vera mjög hrætt og margir hafi grátið á götum úti eftir skjálft­ana tvo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár