Bandarískir stjórnmálamenn komu í veg fyrir hertari byssulöggjöf

Enn einu sinni komu full­trúar í öld­unga­deild­inni í Banda­ríkj­unum í veg fyrir breyt­ingar á byssu­lög­gjöf.

Chris Murphy, þingmaður demókrata á Bandaríkjaþingi, tilkynnir dóttur skólastjórans í Sandy Hook að þingið hefði ekki afgreitt byssufrumvarp sem lög í dag. Skólastjórinn Dawn Hochprung var myrtur í árásinni á grunnskólann í Sandy Hook.
Chris Murphy, þing­maður demókrata á Banda­ríkja­þingi, til­kynnir dóttur skóla­stjór­ans í Sandy Hook að þingið hefði ekki afgreitt byssu­frum­varp sem lög í dag. Skóla­stjór­inn Dawn Hochprung var myrtur í árásinni á grunn­skól­ann í Sandy Hook. Mynd: EPA

Þrátt fyrir verstu skotárás í sögu Banda­ríkj­anna, þar sem 49 létu lífið og 53 særð­ust þegar Omar Mateen - sem var einnig skot­inn til bana á end­anum - hóf skot­hríð á skemmti­staðnum Pulse í Orlando, þá virð­ist banda­ríska þingið ekki geta komið sér saman um aðgerðir til að vinna gegn því að hættu­legt fólk kom­ist yfir byssur sem hann­aðar eru til þess að drepa fólk. Í dag felldi öld­unga­deild Banda­ríkja­þings í atkvæða­greiðslu, frum­vörp og reglu­breyt­ingar sem tóku til byssu­lög­gjafar, og var ætlað að koma í veg fyrir að hættu­legt fólk – meðal ann­ars það sem væri á svo­nefndum hryðju­verka­vakt­lista (Terror watchlist) – gæti gengið inn í næstu byssu­búð og komið út alvopnað.

Voru skrefin útfærð í fjórum meg­in­þáttum í fjórum frum­vörpum, sem tóku til þess að nákvæm­ari bak­grunns­upp­lýs­ingar þyrfti um byssu­kaup­endur, betra upp­lýs­inga­flæði milli þeirra sem hafa leyfi til selja byssur og yfir­valda, algjört bann við sölu á vopnum til þeirra sem grun­aðir eru um tengsl við hryðju­verka­sam­tök, og síðan heim­ild til að efla rann­sóknir á byssu­árásum og hvort mögu­lega geti verið tengsl milli árásanna og þess hve auð­velt er að kaupa byssur í Banda­ríkj­unum.

Horfa undan

Öll málin fjögur náðu ekki 60 atvæðum, og fengu því ekki braut­ar­gengi hjá öld­unga­deild­inni. Til­finn­ing­ar­þrungnar ræður þeirra sem voru á með og á móti, sýndu glögg­lega hversu heitt umræðu­efni byssu­árásir í Banda­ríkj­unum er orðið.

„Það er ólýs­an­legur harm­leikur þegar fólk missir ást­vini sína, eða nágranna. En það er enn hrika­legra þegar leið­togar lands­ins og stjórn­mála­menn, líta undan og gera ekk­ert,“ sagði Chris Murphy, full­trúi Demókrata. Hann hefur talað fyrir þörf­inni á hert­ari byssu­lög­gjöf, og þá einkum að komið sé form­lega í veg fyrir það með lögum, að maður sem grun­aður er um tengsl við hryðju­verka­sam­tök, geti keypt byssu. Þá hefur hann einnig talað fyrir þörf­inni á frek­ari rann­sóknum, til að und­ir­byggja aðgerðir sem geta unnið gegn fjölda byssu­árása í land­inu.

„Á villigötum“

John Cornyn, Repúblikani frá Texas, sagði marga í öld­unga­deild­inni vera á villi­götum, þegar þeir væru að horfa á byssu­lög­gjöf­ina. Það sem við væri að eiga, væri vax­andi ógn af „öfgasinn­uðum Islam-trúðum hryðju­verka­mönnum“. Árásin í Orlando ætti mun fremur rætur í því, en nokkru öðru. Við þessu þyrfti að bregð­ast.

Cornyn sagði enn fremur, að það væri mikil ákvörðun, að taka frá fólki mögu­leik­ann á því að verja sig með byssu, og fara þyrfti var­lega í allar laga­breyt­ingar í þá veru. Fleiri tóku undir með honum. Flestir Repúblikanar, en Demókratar einnig.

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, segir öld­unga­deild­ina hafa brugð­ist Banda­ríkja­mönnum, með því að koma í veg fyrir að málin næðu fram að ganga.

Morð daglegt brauð

Að með­al­tali deyja um 34 ein­stak­lingar á hverjum degi í Banda­ríkj­unum í byssu­árásum, sé miðað við tölur frá því í fyrra. Þá dóu um 12.400 manns í byssu­árásum, og yfir 40 þús­und særð­ust. Þá hafa verið um þús­und skotárásir á fjölda fólks í einu (Mass shootings) á síð­ustu 1.260 dögum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem The Guardian tók saman.

Hvergi í heim­inum, í þró­uðum ríkjum, eru morð með skot­vopnum jafn algeng og í Banda­ríkj­unum, en þau eru um 2,9 á hverja 100 þús­und íbúa á ári, en algengt er öðrum þró­uðum ríkjum að hlut­fallið sé vel undir 0,1.

Hneyksli

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur barist fyrir hert­ari byssu­lög­gjöf frá því hann varð for­seti, en þó einkum fyrir því að nákvæm­ari rann­sóknir geti farið fram á orsök­unum þess, að svo margir deyja vegna byssu­árása í land­inu. Hefur hann borið stöð­una saman við aðgerðir til að sporna við bílslysum, á sjö­unda og átt­unda ára­tug síð­ustu aldar í Banda­ríkj­unum. Þá hafi verið gripið til ýmissa aðgerða, svo sem lög­leið­ingu örygg­is­belta og fleira, sem hefði leitt til stór­kost­legra fram­fara á sviði örygg­is­mála í bíla­iðn­aði.

Hann segir þetta ekki hafa tek­ist með byssu­málin, þrátt fyrir að ítrek­aðar til­raunir til þess. Hags­muna­að­ilar nái sínu fram, og þá einkum NRA (National Rifle Association), sem skilar umsögnum gegn næstum öllum laga­breyt­ingum, sem ein­staka full­trúar í þing­inu gera síðan að sínum mál­stað. Þá hefur NRA stutt dyggi­lega á bak við stjórn­mála­flokka og ein­staka stjórn­mála­menn, með beinum fjár­hags­legum stuðn­ingi.

Obama hefur sagt, að stjórn­málin í Banda­ríkj­unum standi frammi fyrir því að láta sög­una meta þær ákvarð­anir sem teknar hafa verið. Ein þeirra sé sú að gera ekk­ert, til að sporna við þessu þjóð­ar­meini sem byssu­árás­irnar séu. „Því fylgir mikil ábyrgð,“ sagði Obama, alvöru­gef­inn, þegar hann tjáði sig eftir árás­ina á Pulse í Orlando í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár