Frasarnir flugu í spennuþrungnum fyrstu kappræðum

Eins og við var að búast var spenna í loft­inu þegar hinn sjö­tugi Donald J. Trump og hin 68 ára gamla Hillary Clinton tók­ust á í fyrstu sjón­varp­s­kapp­ræð­unum af þremur fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 8. nóv­em­ber. Magnús Hall­dórs­son fylgd­ist með gangi mála.

Donald J. Trump, fram­bjóð­andi Repúblik­ana í for­seta­kosn­ing­unum, og Hillary Clinton, fram­bjóð­andi Demókrata, tók­ust á í fyrsta sinn í kapp­ræðum í nótt, og er óhætt að segja að and­rúms­loftið í sjón­varps­sal hafi verið spennu­þrungið þegar þau gengu í sal­inn.

Þau heils­uð­ust, hún íklædd rauðu en hann í jakka­fötum með skær­blátt bindi. „Ég hvet ykkur til að fara á heima­síðu mína, og fylgj­ast þar með umræðu um stað­reyndir og ekki stað­reyndir, sem koma frá Donald Trump,“ sagði Hillary áður en langur tími leið í kapp­ræð­unum, sem stóðu í 90 mín­útur.

Við skulum tala um efnahagsmálin

Fyrsta mál á dag­skrá var efna­hags­málin, og spurt var; hvernig ætlið þið að halda á spil­unum við hag­stjórn­ina? Hvernig á að skapa störf?

Eins og við mátti búast, kom fram aug­ljós mein­ing­ar­munur. Trump lagði áherslu á skatta­lækk­anir og við­skipti Banda­ríkj­anna við aðrar þjóðir. „Við erum að tapa störfum, millj­ónum starfa. Ég ætla að lækka skatta stór­kost­lega og mun skapa 25 millj­ónir nýrra starfa,“ sagði Trump, og líkti stefnu sinni við tím­ann hjá Ronald Reagan, þegar skatta­lækk­anir hefðu hjálpað fyr­ir­tækjum við að efla starf­semi og fjölga störfum.

Hillary nálg­að­ist málin með öðrum hætti, svo ekki sé meira sagt. Hún sagð­ist að hluta geta tekið undir með Trump, um að það mætti lækka skatta, en það þyrfti að gera á réttum stöðum með það að mark­miði að auka jöfnuð.

Lítil fyr­ir­tæki þyrftu að fá meira vægi, og þau sem stærri væru, gætu borgað meira í rík­is­kass­ann. „Það er kom­inn tími að þeir rík­ustu borgi meira en þeir gera. Milli­stéttin verður að fá það sem hún á skilið,“ sagði Hillary. Hún gagn­rýndi Trump fyrir ómál­efna­lega nálgun að milli­ríkja­við­skiptum, þar sem stjórn­mála­menn réðu ekki alltaf ferð­inni. Það væri ekki hægt að skipa fyr­ir­tækjum að koma heim með störf sem væri skym­sam­legt að hafa stað­sett í öðrum löndum. „Við þurfum að byggja á góðum árangri Baracks Obama og rík­is­stjórnar hans. Við getum ekki farið aftur til tím­ans sem leiddi okkur í full­kom­inn efna­hags­legan storm, þar sem skatta­lækk­anir á þá sem hafa mest milli hand­anna voru grunn­ur­inn að miklum vanda­málum. Við getum ekki farið aftur til þess tíma,“ sagði Hillary.

Trump nefndi sömu atriðin ítrekað, meðal ann­ars að þjóð­ar­skuldir Banda­ríkj­anna væru komnar upp úr öllu valdi, eða upp undir 20 þús­und millj­arða Banda­ríkja­dala. „Við erum á hræði­legri leið. Það verður að stoppa þetta,“ sagði Trump.

Hillary nefndi, að það mætti ekki gleyma því hvað hefði gerst, þegar versta fjár­málakreppa síðan í Krepp­unni miklu, á fjórða ára­tug síð­ustu aldar, hefði gengið yfir, á árunum 2007 til 2009. Obama hefði tekið við hrika­legri stöðu, en það hefði tek­ist að snúa blað­inu við. Nú væri landið á réttri leið, og það þyrfti að byggja ofan á það sem þegar hefði náðst fram.

Í umræð­unum nefndi Trump strax ríkin Michigan og Ohio sem dæmi, þegar kom að ríkjum sem hafa misst fjöl­mörg störf.

Hillary nefndi í lok umræð­unnar um efna­hags­málin, að Trump væri með stefnu sem vernd­aði fyrst og síð­ast hans eigin hags­muni. Það væri staða sem gengi ekki upp.

„Ég er mjög lítið skuldsettur“

Trump fékk erf­iðar spurn­ingar, sem hann lenti í vand­ræðum með að svara. Sér­stak­lega átti það við um skatta­mál hans og fjár­hags­stöðu. Hann sagð­ist ætla að birta öll gögn um þau, en ekki strax. „Það er vegna þess að hann hefur ekki greitt skatta. Núll. Sem þýðir ekk­ert fyrir her­inn. Ekkert fyrir sjúkra­hús. Ekkert fyrir skóla,“ sagði Hillary og sagði Trump hafa verið hepp­inn í líf­inu, og fengið fjórtán millj­ónir Banda­ríkja­dala frá föður sínum til að byrja sinn feril. Ekki væru allir svo heppnir. Auk þess sagði hún Trump ekki hafa sýnt neina snilli í við­skiptum, með sex gjald­þrotum og skuldir upp á 650 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 80 millj­arða króna. „Ég er mjög lítið skuld­settur,“ svar­aði Trump þá, og sagð­ist ekki ekki skulda þessar fjár­hæðir sem Hillary hefði nefnt. Þær væru miklu minni, en eign­irnar væru upp á meira en þrjá millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 400 millj­örðum króna. „Ég rek gott fyr­ir­tæki, sem er að skila miklum árangri,“ sagði Trump.

Kynþáttahyggja og glæpir

Í umræð­unum um glæpi, byssur og mál­efni kyn­þátta, sagð­ist Hillary leggja sér­staka áherslu á það að rétt­ar­vörslu­kerfið yrði end­ur­skipu­lagt, og þá með það að leið­ar­ljósi að taka á því órétt­læti sem snéri að svörtum. „Alltof margir eru að fá alltof harða dóma, fyrir létt­væg brot. Þetta bitnar á þeim sem hafa veikt bak­land og eru í erf­ið­leikum vegna þess. Því miður hafa svartir alltof oft orðið fyrir órétt­læti þegar að þessu kemur,“ sagði Hillary. Hún nefndi sér­stak­lega, að mik­ill árangur hefði náðst við að draga úr glæpum, þegar horft væri á Banda­ríkin í heild. En árekstrar vegna kyn­þátta­hyggju væru alltaf alvar­legir, og þá þyrfti að nálg­ast með góða áætlun. „Ég hef áætlun í þessum efnum. Annað en Trump,“ sagði Hillary. Hún sagði nauð­syn­legt, að ræða um glæpi og byssu­menn­ing­una í Banda­ríkj­unum út frá þeirri alvar­legu stöðu sem væri í Banda­ríkj­unum. Ólíkt Trump, þá vildi hún auka eft­ir­litið og bak­grunns­skoðun byssu­eig­enda, til að draga úr mögu­leik­anum á því að hættu­legt fólk eign­að­ist hættu­leg vopn.

Trump greip bolt­ann á lofti: „Við þurfum að taka byss­urnar af gengj­unum,“ sagði hann, og nefndi sér­stak­lega Chicago. Hann sagði fjögur þús­und manns hafa látið lífið í Chicago, frá því Obama hefði verið forsti. „Fjögur þús­und“ end­ur­tók hann. Lög og regla væri aðal­at­riðið, sagði hann, og nefndi síðan að þús­undir lög­reglu­manna í Banda­ríkj­unum væru til­búnir að styðja hann, og margir hefðu þegar lýst yfir stuðn­ingi við hann. Það segði sína sögu.

Hillary lagði áherslu á að sam­fé­lag svartra í Banda­ríkj­unum væri stór­kost­legt, og svartir héldu uppi mik­il­vægum fyr­ir­tækjum og sinntu afar mik­il­vægum störfum. „Við skulum ekki að vera að mála þetta öðrum og verri litum,“ sagði hún. Trump sagð­ist finna fyrir miklum stuðn­ingi svartra, og að heim­sóknir hans á fjöl­marga staði – á meðan Hillary hefði setið heima – væru farnar að skila árangri.

Öryggismál, hryðjuverk og ISIS

Síðasti hluti kapp­ræðn­anna snérist um örygg­is­mál Banda­ríkj­anna. Hvernig ætlið þið að tryggja öryggi Banda­ríkj­anna?

Í fyrstu var byrjað á ógnum tölvu­glæpa. Hillary sagð­ist líta svo á að tölvu­árásir, bæði sjálf­stæðra hópa og ann­arra ríkja, ekki síst Rússa, væru miklar ógnir. „Við þurfum að taka þessa hluti mjög alvar­lega, og ég þekki það af reynslu að það skiptir máli að hafa uppi góðar varnir. Banda­ríkin standa öðrum framar þegar kemur að þessum málum, og það vinnur með okkur[...] En við þurfum að vera var­kár,“ sagði Hillary, og skaut því að Trump að hann ætti tryggan stuðn­ings­mann í óvini Banda­ríkj­anna, Vladímir Pútín, Rúss­lands­for­seta.

Trump sagði Hillary ekki hafa tek­ist að tryggja öryggi á þessum sviðum. Það væri öllum ljóst. „Við fundum upp inter­netið,“ sagði Trump, þegar hann sagði aug­ljóst að Banda­ríkin ættu að standa framar öðrum ríkjum. Hann sagði ekki nóg að „funda“ og segj­ast ætla að gera hlut­ina. Það þyrfti að grípa til aðgerða, og það myndi hann gera.

Fljótt beind­ist umræðan inn á brautir þar sem hryðju­verk og hið svo­nefnda íslamska ríki (ISIS) væri ann­ars vegar. Hillary nefndi ítrekað, að í þessum efnum skipti máli að það væri for­seti við stjórn­völ­inn sem hefði þekk­ingu á utan­rík­is­málum. Hún hefði hana, og væri með­vituð um þær hættur sem steðj­uðu að Banda­ríkj­unum. „Ég er með áætlun um hvernig megi sigra ISIS og ég hef lagt hana á borðið,“ sagði Hillary. Hún gagn­rýndi Trump fyrir stefnu­leysi, og einnig óábyrgar yfir­lýs­ingar, ekki síst um ógn­ina sem staf­aði af kjarn­orku­sprengjum. „Það er ekki hægt að tala um þessi mál af þeirri léttúð sem Trump hefur gert,“ sagði Hillary. Hún bað fólk um að hugsa það, hvort það væri gott að hafa mann í aðstöðu til að hefja kjarn­orku­stríð, sem tæki þessi mál ekki alvar­lega, í opin­berri umræðu.

Trump varð­ist þessu, og sagði þetta ekki rétt. Hann tæki ógnir af kjarn­orku­sprengjum alvar­lega. Þær væru mestu ógn­irnar. „Hættu­legri en hlýnun jarðar,“ sagði hann.

Hann sagði Hillary hafa skapað ISIS með óábyrgri stefnu í Líbýu og mál­efnum mið­aust­ur­landa. Nú væri vand­inn orð­inn nán­ast óvið­ráð­an­legur, en hann myndi samt eyða hætt­unni ef hann kæm­ist til valda. „Hillary hefur sýnt það, að henni er ekki treystandi,“ sagði Trump. Hann neit­aði því einnig stað­fast­lega að hafa stutt inn­rás­ina í Írak 2003, eins og Hillary sagði hann hafa gert. Hann sagði hana hafa verið mikil mis­tök, sem hefði skapað mik­inn vanda.

Í lok þess­arar umræðu, sagði Trump það sér­lega slæmt fyrir Banda­ríkin, hversu lítið væri greitt fyrir víð­tæka þjón­ustu Banda­ríkja­hers. Ríki eins og Þýska­land og Sádí-Arabía, sem nytu góðs af fram­lagi Banda­ríkja­hers, ættu að greiða fyrir þjón­ust­una. „Við getum ekki verið í ein­hverju alheimslög­reglu­hlut­verki, við höfum ekki efni á því,“ sagði Trump.

Hillary sagði reynslu hennar og orð­spor, þegar kæmi að varnar- og utan­rík­is­málum, nýt­ast vel og að hún hefði sýnt, að hún gæti tek­ist á við mestu ógn­irnar. Hún hefði tekið þátt í því að eyða ógn­inni miklu, Osama Bin-laden, og til fram­tíðar væri óhjá­kvæmi­legt að djúp þekk­ing á gang­verki hins alþjóð­póli­tíska sviðs myndi skipta sköpum.

Hvor stóð sig betur?

Sam­an­dregið, þá var Hillary mál­efna­legri og reyndi eftir fremsta megni að halda sig við stefnu sína, sem hún hefur útli­stað í meiri nákvæm­is­at­riðum en Trump. Í upp­hafi var hann þó bein­skeyttur, án þess að fara yfir strikið, eins og hann hefur oft gert. Hann lét líka aug­ljósa kyn­þátta­hyggju vera í þetta skiptið, og var ekki nándar nærri jafn full­yrð­ingaglaður og oft.

Miðlarar á Wall Street virð­ast telja Clinton hafa staðið sig betur, ef marka má frétt Bloomberg, og fyrstu kann­anir CNN, að kapp­ræð­unum loknum, bentu til þess að Clinton hefði haft betur.

Hillary getur þó þokka­lega vel við unað, þó hún hafi greini­lega verið ákveðin í að halda ró sinni, enda mik­il­vægar sex vikur eftir af kosn­ina­bar­átt­unni en gengið verður til kosn­inga 8. nóv­em­ber. Kannanir sýna flestar nauma for­ystu Hillary, 48 pró­sent gegn 46 pró­sentum Trump, en spá­vef­ur­inn Fivet­hir­tyeight.com telur nú 54,8 pró­sent líkur á sigri Hillary en 45,2 pró­sent líkur á sigri Trump.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár