Róbert Wessman og Halldór Kristmannsson höfðu starfað náið saman í 18 ár áður en slettist upp á milli þeirra. Hér sjást þeir saman árið 2004 þegar nafni Pharmaco var breytt í Actavis.
Róbert Wessman og Halldór Krist­manns­son höfðu starfað náið saman í 18 ár áður en slett­ist upp á milli þeirra. Hér sjást þeir saman árið 2004 þegar nafni Pharmaco var breytt í Actavis. Mynd: Golli

Stríðinu í Alvogen lokið með sátt nokkrum dögum áður en það rataði fyrir dóm

Alvogen mun greiða ótil­greinda upp­hæð til Halldórs Krist­manns­sonar vegna áunn­inna launa og ógreiddra kaupauka, auk útlags lög­manns­kostn­aðar. Á móti lýsir Halldór meðal ann­ars yfir að hann uni trausts­yf­ir­lýs­ingu gagn­vart Róberti Wessman.

Í jan­úar 2021 sendi Halldór Krist­manns­son, sem verið hafði einn nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessman for­stjóra syst­ur­fyr­ir­tækj­anna Alvogen og Alvotech, bréf til stjórnar Alvogen þar sem hann setti fram allskyns ásak­anir um starfs­hætti for­stjór­ans. Erlend lög­manns­stofa, White & Case, var fengin til að fara yfir kvart­­anir Hall­­dórs og íslenska lög­­­manns­­stofan Lex veitti ráð­­gjöf. Rann­­sóknin stóð yfir í átta vikur og sam­kvæmt yfir­lýs­ingu sem Alvogen sendi frá sér í mars 2021 var nið­ur­staðan sú að efni kvart­anna ætti sér enga stoð. „Ekk­ert bend­ir til þess að starfs­hætt­ir Rób­erts Wessman séu þess eðl­is sem greint er frá í bréf­in­u og eng­in á­stæð­a er til þess að að­haf­­­ast neitt vegn­a þess­a máls.“

Viku síðar, 29. mars, sendi Halldór frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann opin­ber­aði inni­hald bréfs­ins sem hann sendi til stjórnar Alvogen og Alvotech í jan­úar 2021. Samhliða því sagð­ist hann vera að stiga fram sem upp­ljóstr­ari í skiln­ingi laga sem höfðu tekið gildi í upp­hafi árs 2021 og skömmu síðar opn­aði hann sér­staka vef­síðu með upp­lýs­ingum um upp­ljóstr­anir sínar.

Lífslátshótanir og meint misnotkun fjölmiðla

Í yfir­lýs­ing­unni kom meðal ann­ars fram að Róbert hefði meðal ann­ars hótað að drepa Mark Keatly, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra Actavis, í smá­skila­boðum og hótað að vinna fjöl­skyldu hans og Claudio Albrecht, fyrr­ver­andi for­stjóra Actavis, skaða. Róbert hefur geng­ist við því að hafa sent skila­boðin og sagst hafa beðist afsök­unar á að hafa sent þau.

Í yfir­lýs­ingu Halldórs var því einnig haldið fram að Róbert hefði beitt sig óeðli­legum þrýst­ingi til að koma höggi á óvild­ar­menn Róberts, sem hann bar þungum sökum. Orðrétt sagði í yfir­lýs­ing­unni: „Ég taldi fulla ástæðu til þess að setja fót­inn niður og tjáði Róbert ítrekað, að ég myndi ekki beita mér fyrir því að koma höggi á umrædda aðila í fjöl­miðlum og vega bein­línis að æru og mann­orði þeirra, eins og hann vildi. Ég var um tíma útgef­andi Mannlífs, sem Róbert fjár­magn­aði og átti, en þar mynd­að­ist til að mynda mik­ill ágrein­ingur um rit­stjórn­ar­stefnu og sjálf­stæði. Úr þessu skap­að­ist vax­andi ósætti okkar á milli, sem gerði það að verkum að ég steig nauð­beygður til hliðar tíma­bundið, og upp­lýsti stjórnir fyr­ir­tækj­anna um mála­vexti. Ég vil standa vörð um ákveðin sið­ferð­is­leg gildi, og lét því ekki hagga mér í þessum málum.“

Vert er að taka fram að fjöl­mið­ill­inn Mannlíf hefur síðan skipt um eig­endur og er nú í eigu Sóltúns, sem er að öllu leyti í eigu Reynis Trausta­sonar, rit­stjóra Mannlífs.

Samið skömmu fyrir aðalmeðferð

Í apríl 2021 stefndi Alvogen Halldóri. Í stefn­unni var honum gefið að hafa framið alvar­legt trún­að­ar­brot í starfi meðal ann­ars með því að hafa fundað með Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, fjár­festi og aðal­eig­anda Novator, í nóv­em­ber 2020. Björgólfur Thor og Róbert Wessman hafa átt í miklum erjum árum saman, eða allt frá því að sam­starfi þeirra í lyfja­fyr­ir­tæk­inu Actavis lauk síð­sum­ars 2008. Deil­urnar hafa meðal ann­ars hafa endað fyrir dóm­stólum og birst í vilja beggja til að setja umtals­vert fé í fjöl­miðla­rekstur á Íslandi sem virt­ist ekki vera gert á rekstr­ar­legum for­sendum.

Í stefnu Alvogen sagði með hátt­erni sínu hefði Halldór fyr­ir­gert rétti sínum til að njóta sér­stakrar verndar sem upp­ljóstr­ari sam­kvæmt íslenskum lögum.

Með sátt­inni sem til­kynnt var um í gær liggur því fyrir að ekki mun reyna á lög um vernd upp­ljóstr­ara fyrir íslenskum dóm­stólum í fyrsta sinn, en Halldór hafði skil­greint stöðu sína sem slíkur.

Lögin tóku, líkt og áður sagði, gildi í byrjun árs í fyrra. Þau kveða á um vernd til handa starfs­mönnum sem upp­lýsa um lög­brot eða aðra ámæl­is­verða hátt­semi í starf­semi vinnu­veit­anda síns. Sú vernd felur í sér að miðlun upp­lýs­inga telst ekki brot á þagnar- og trún­að­ar­skyldu, sem starfs­mað­ur­inn væri ann­ars bund­inn af, sé hann skil­greindur sem upp­ljóstr­ari sam­kvæmt lög­unum.

Aðal­með­ferð í máli Alvogen gegn Halldóri átti, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, að fara fram á föstu­dag í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Af því varð ekki. Í gær var greint frá því að sátt hefði náðst milli deilu­að­ila.

Hin end­an­lega sátt, sem hafði verið marga mán­uði í bígerð, var því ekki opin­beruð fyrr en nokkrum dögum áður en aðal­með­ferðin átti að hefj­ast. Und­ir­bún­ingur fyrir þá aðal­með­ferð var lagt kom­inn og búið var að gera lista yfir þau vitni sem átti að kalla fyrir í henni. Þar var meðal ann­ars um að ræða ein­stak­linga sem áttu að geta stað­fest þær ásak­anir sem Halldór hafði sett fram.

Greina ekki frá upphæðinni

Sam­komu­lagið um sátt sem opin­berað var í gær er gert milli Halldórs og Alvogen í Banda­ríkj­unum. Í yfir­lýs­ingu frá Alvogen sem send var á fjöl­miðla vegna þessa sagði: „Í jan­úar 2021 sendi Halldór Krist­manns­son bréf til stjórnar Alvogen, sem inni­hélt fjölda ásak­ana um starfs­hætti Róberts Wessman. Að lok­inni óháðri rann­sókn sér­fræð­inga, stefndi Alvogen Halldóri fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og átti mál­flutn­ingur að fara fram á haust­mán­uðum. Aðilar hafa náð sáttum í mál­inu og mun Alvogen falla frá mál­sókn­inni. Halldór mun loka heima­síðu sinni og hefur lýst því yfir að hann hafi ekki stöðu upp­ljóstr­ara í neinni lög­sögu. Jafn­framt hefur hann lýst því yfir að hann uni þeirri nið­ur­stöðu stjórnar að lýsa yfir trausti til Róberts í kjöl­far rann­sókn­ar­innar.“

Tals­maður fjár­fest­inga­fé­lags­ins Flóka Invest, sem Róbert Wessman stýrir, sagð­ist ekki geta greint frá hversu háa upp­hæð Halldór hafi fengið greidda.

Halldór segir í sam­tali við Kjarnann það vera hluta af sam­komu­lag­inu við Alvogen að hann greini ekki frá þeirri upp­hæð sem Alvogen greiðir honum vegna sátt­ar­innar. Í henni felst að Halldór fær greidd upp­sagn­ar­frest og áunna kaupauka frá fyr­ir­tæk­inu, auk þess sem það greiðir útlagðan lög­manns­kostnað hans. Sá kostn­aður hefur verið umtals­verður en auk lög­manns sem vann fyrir Halldór hér á Íslandi naut hann lið­sinnis lög­manns­stof­unnar Quinn Emanuel Urquhart & Sullivan, sem sendu meðal ann­ars lög­fræði­bréf til stjórna Alvogen og Alvotech, og gættu hags­muna Halldórs í Banda­ríkj­unum.

Þegar málið rataði í íslenska fjöl­miðla í lok mars í fyrra sendi Róbert Wessman frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði það aug­ljóst af bréfa­send­ingum banda­rísku lög­manns­stof­unnar að ásak­anir Halldórs hefðu verið „gerðar í fjár­hags­legum til­gangi enda koma þar fram kröfur um greiðslur til handa honum.“

Fjármagnar ekki lengur bókina um Róbert

Á meðan að á deilum Halldórs við Alvogen og Róbert stóðu yfir var mikið fjallað um málið á frétta­vefnum Mannlif.is, sem rit­stýrt er af Reyni Trausta­syni eins aðal­eig­anda vefs­ins. Róbert kærði Reyni nokkrum sinnum til Siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags Íslands vegna þeirrar umfjöll­unar og nú liggja þegar fyrir fjórir úrskurðir nefnd­ar­innar, sem fallið hafa í ár, þar sem Reynir telst hafa brotið alvar­lega gegn siða­reglum félags­ins.

Í maí komst Siða­nefnd að þeirri nið­ur­stöðu, í tveimur úrskurðum, að með því að þiggja fjár­muni frá Halldóri, vegna bóka­skrifa um Róbert, hafi Reynir orðið van­hæfur til að fjalla um mál­efni Róberts með þeim hætti sem gert var. Í úrskurð­unum kom fram að Róbert teldi að Halldór hefði greitt, í gegnum félag sitt Skrúðás, rúm­lega 30 millj­ónir króna á árinu 2021 til Mannlífs fyrir texta­smíð og aðstoð við texta­smíð. Sú hátt­semi gekk, að mati siða­nefndar, í ber­högg við 5. grein siða­reglna sem segir að blaða­menn eigi að var­ast hags­muna­á­rekstra. Brotin töld­ust alvar­leg.

Í sept­em­ber komst siða­nefndin svo að því í tveimur málum til við­bótar að Reynir hefði gerst áfram sekur um alvar­leg brot gegn 5. grein siða­reglna vegna skrifa um Róbert, í ljósi þess að Reynir hefði þegið fjár­muni frá Halldóri vegna bóka­skrifa um Róbert. Aftur sem áður töld­ust brotin alvar­leg.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn hefur aflað sér er það hluti af sátt­inni sem náðst hefur milli Alvogen og Halldórs Krist­manns­sonar að hann komi ekki frekar að gerð umræddrar bókar og veiti ekki frek­ari fjár­hags­stuðn­ing vegna vinnu við hana.

Í árs­reikn­ingi Skrúðás kemur fram að rekstr­ar­fjöld félags­ins á árinu 2021 hafi verið 42 millj­ónir króna, eða um 33 millj­ónum krónum hærri en árið áður. Í árs­reikn­ingi Sól­ar­túns, eig­anda Mannlífs, kemur fram að tekjur þess félags hafi verið 82,4 millj­ónir króna á síð­asta ári. Sólartún var eitt þeirra 25 einka­rek­inna fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem fékk rekstr­ar­stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna síð­asta árs. Alls námu greiðslur til félags­ins úr rík­is­sjóði 10,5 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár