Mynd: EPA

Persónuleg barátta Boris Johnson við kórónuveiruna

Sam­starfs­menn Boris Johnson sögðu hann „kátan“, aðeins hafa „væg ein­kenni“ og áfram „stýra land­inu“ jafn­vel eftir að hann var lagður inn á sjúkra­hús í byrjun vik­unnar. Johnson er nú á gjör­gæslu og fær súr­efni til að hjálpa honum að ná and­anum.

Kvíði vakn­aði meðal Breta er fréttir bár­ust af því í byrjun viku að for­sæt­is­ráð­herr­ann Boris Johnson hefði verið lagður inn á gjör­gæslu­deild, alvar­lega veikur af COVID-19. Hvort sem fólk hafði kosið hann eða ekki var flestum illa brugðið.

Það er eðli­legt. Þó að Johnson sé umdeildur stjórn­mála­maður er hann sá sem hefur það hlut­verk að leiða þjóð­ina á erf­iðum tímum í heims­far­aldri. Hann er sá sem völdin hefur og þarf að taka erf­iðar og flóknar ákvarð­anir sem hafa áhrif á dag­legt líf allra sam­borgar­anna. Hann er leið­tog­inn, í for­ystu, sterkur og hraustur – stoð almenn­ings og stytta.

En stríð hans gegn veirunni er nú orðið mjög per­sónu­legt. Þegar hann veikt­ist alvar­lega rann ákveð­inn sann­leikur loks upp fyrir mörgum: Við erum öll á sama báti. Veiran spyr hvorki um stétt né stöðu.

Annað olli svo sumum kvíða. Hver átti að leysa hann af? Íhalds­flokkur Boris Johnson var kos­inn til valda einmitt út af Boris Johnson. Hans per­sónu, hans stefnu.

Ekki hafa allir verið á eitt sáttir um við­brögð Johnsons við far­aldr­inum. Í fyrsta lagi þótti hann taka seint við sér. Í öðru lagi ollu skila­boð hans rugl­ingi og stundum ótta. Það gerð­ist t.d. þegar hann sagði í sjón­varps­við­tali í byrjun mars að „ein kenn­ingin“ væri sú að „kannski ætti fólk að bjóða veirunni vang­ann“ – leyfa far­aldr­inum að hafa sinn gang og „fara um sam­fé­lagið án þess að grípa til margra strangra aðgerða“.

Fjöl­miðlar gripu orð hans á lofti, töl­uðu við far­alds­fræð­inga sem sögðu að til að ná hjarð­ó­næmi þyrfti jafn­vel sex­tíu pró­sent þjóð­ar­innar að smit­ast. Og þegar það hlut­fall komst í umræð­una voru margir fljótir að reikna út mögu­lega dán­ar­tíðni.

Blaða­manna­full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við­ur­kenndi sól­ar­hring eftir við­talið við Johnson að orða­lag hans hefði verið óheppi­legt. Í kjöl­farið var ákveðið að boða dag­lega til blaða­manna­funda þar sem farið var ítar­lega í gegnum aðgerðir stjórn­valda vegna far­ald­urs­ins.

Frétt um að Boris Johnson hefði verið lagður inn á sjúkrahús og síðar á gjörgæslu gerði marga Breta órólega.
Frétt um að Boris Johnson hefði verið lagður inn á sjúkra­hús og síðar á gjör­gæslu gerði marga Breta óró­lega.

Yfirvöld hófu að taka sýni af miklum móð þó að fljótt færi sýna­takan í þann far­veg að rann­saka aðeins þá sem veik­astir voru. Við­kvæmir hópar voru hvattir til að halda sig heima sem og þeir sem sýndu ein­hver flensu­lík ein­kenni.

Smám saman voru aðgerðir hertar til að reyna að hefta útbreiðsl­una. 24. mars ávarp­aði Johnson þjóð sína alvar­legur í bragði: „Ég verð að gefa bresku þjóð­inni mjög ein­faldar leið­bein­ingar: Héðan í frá verðið þið að halda ykkur heima“. Hann und­ir­strik­aði nauð­syn aðgerð­anna með því að segja að ef ekki tæk­ist að hefta útbreiðslu far­ald­urs­ins og að margir myndu veikj­ast „mun heil­brigð­is­kerfið ekki ráða við álagið – sem þýðir að fleiri gætu lát­ist, ekki aðeins vegna kór­ónu­veirunnar heldur ann­arra sjúk­dóma“.

Aðeins nokkrum dögum síðar, föstu­dag­inn 27. mars, greindi Johnson frá því á Twitter að hann hefði greinst með veiruna. Hann sagð­ist vera í ein­angrun á heim­ili sínu að Downingstræti 10. Ráð­herr­ann sagð­ist hfa fundið fyrir vægum ein­kennum dag­inn áður og því hafa verið ráð­lagt að fara í sýna­töku. Ein­kennin væru enn væg; þurr hósti og hiti. Og hann ítrek­aði í þessu sögu­lega ávarpi sínu að hann myndi halda áfram að sinna emb­ætt­is­skyldum sínum, hann væri áfram leið­togi bresku þjóð­ar­innar.

Daginn eftir, laug­ar­dag­inn 28. mars, sagði við­skipta­ráð­herr­ann Alok Sharma við fjöl­miðla: „Ég vil að það sé alveg á hreinu að for­sæt­is­ráð­herr­ann er með lítil ein­kenni, hann er algjör­lega að stjórna aðgerðum.“

Mánu­dag­inn 30. mars hélt Johnson rík­is­stjórn­ar­fund í gegnum fjar­fund­ar­búnað. Fjöl­miðlar höfðu eftir heim­ildum að hann hefði hóstað mikið á fund­inum og átt erfitt með að tala lengi í einu.

Johnson birti þann 1. apríl önnur skila­boð til þjóðar sinnar á Twitter og hvatti alla til að vera heima. Þó að hann væri veikur væri hann í sam­bandi við sitt fólk í rík­is­stjórn­inni. „Ég er þess full­viss að við munum sigr­ast á þessu saman,“ sagði hann.

Fimmtu­dag­ur­inn 2. apríl rann upp og fjöl­miðlar spurðu áfram út í heilsu for­sæt­is­ráð­herr­ans. Enn voru svörin þau að hann væri með væg ein­kenni. Johnson birt­ist svo síð­degis í dyrum Downingstrætis 10 og klapp­aði heil­brigð­is­starfs­fólki lof í lofa. Margir tóku eftir því að hann virt­ist þjáður og þrótt­laus. Til stóð að ein­angrun hans lyki dag­inn eftir.

Á föstu­deg­inum, 3. apríl, var hins vegar ljóst að Johnson yrði að vera áfram í ein­angrun enda var hann með hita. Í skila­boðum á Twitter sagð­ist hann hafa það betra en að sam­kvæmt ráð­legg­ingum lækna yrði hann áfram í ein­angrun. Áfram sagð­ist hann sinna skyldum sínum. Síðdegis leiddi hann fjar­fund ráð­herra og emb­ætt­is­manna um við­brögð við far­aldr­inum.

Daginn eftir greindi kona hans, Carrie Symonds, frá því að hún væri með ein­kenni COVID-19 en á bata­vegi. Symonds er ófrísk. Sama dag greindu fjöl­miðlar frá því að Johnson „neit­aði að hætta að vinna“ og að hann hefði því ekki fengið næga hvíld frá því að hann veikt­ist.

Sunnu­dag­inn 5. apríl sagði Matt Hancock heil­brigð­is­ráð­herra að Johnson hefði það ágætt. „Við höfum talað við hann alla daga, nokkrum sinnum á dag. Hann er í góðum höndum. En hann er enn með hita. Hann er að vinna. Hann er kátur.“

Um kvöldið flutti Elísabet drottn­ing sjón­varps­ávarp. Hún ræddi um börn og aðskilnað fólks á tímum veirunnar og lauk ávarpi sínu á því að segja: „Við munum hitt­ast á ný“.

Bretar vörp­uðu önd­inni léttar, hvatn­ing­ar­orð hennar hittu í mark. Drottn­ingin sem man tím­ana tvenna, virt­ist bjart­sýn.

En drottn­ingin hafði varla fyrr sleppt orð­inu en til­kynn­ing barst frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu: Boris Johnson hafði verið lagður inn á sjúkra­hús þar sem ein­kenni hefðu verið við­var­andi frá því að hann greind­ist með COVID-19 tíu dögum fyrr.

Blaða­full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sagði dag­inn eftir, mánu­dag­inn 6. apríl, að Johnson væri kátur og að hann væri enn að vinna úr sjúkra­rúm­inu. Spurður hvort að ráð­herr­ann væri með lungna­bólgu var svarið: Ef ástand hans breyt­ist munum við segja frá því.

Í tísti sem birt­ist á Twitter-reikn­ingi Johnsons síð­degis kom fram að hann væri enn með ein­kenni „og ég er í sam­bandi við teymið mitt og við berj­umst áfram gegn veirunni og að tryggja öryggi allra“.

Utan­rík­is­ráð­herr­ann Dominic Raab sagði á blaða­manna­fundi að Johnson stjórn­aði enn land­inu. Hann við­ur­kenndi þó að hann hefði ekki talað við for­sæt­is­ráð­herr­ann í tvo daga.

Um kvöldið kom til­kynn­ing frá ráðu­neyt­inu: Ástand Johnsons hafði versnað og að því hafi hann verið fluttur á gjör­gæslu­deild. Dominic Raab tæki við hluta emb­ætt­is­verka hans tíma­bundið.

Í gær kom fram að Johnson væri ekki í önd­un­ar­vél en þyrfti á súr­efni að halda. Í morgun var hann enn á gjör­gæslu­deild.

Íhalds­flokkur Johnsons hafði í síð­ustu viku notið auk­ins fylgis í skoð­ana­könn­unum – á pari við það fylgi sem flokk­ur­inn naut í tíð Margaret Thatcher í Falklandseyja­stríð­inu.

Utanríkisráðherrann Dominic Raab hefur nú tekið við mörgum af embættisskyldum Boris Johnson.
Utan­rík­is­ráð­herr­ann Dominic Raab hefur nú tekið við mörgum af emb­ætt­is­skyldum Boris Johnson.

Sjúk­lingar eru lagðir inn á gjör­gæslu þegar ástand þeirra er alvar­legt. Eins og nafnið ber með sér er algjört og stöðugt eft­ir­lit með þeim sjúk­lingum sem þar þurfa að dvelja. Sjúk­lingar gætu þurft á súr­efni að halda, líkt og Johnson er nú sagður fá, en einnig getur að því komið að fólk sé sett í önd­un­ar­vél. Að jafna sig eftir gjör­gæslu­með­ferð tekur tíma. Daginn sem fólk gengur þaðan út er það ekki stál­slegið heldur þarf mögu­lega á end­ur­hæf­ingu að halda. Að ná upp fullu starfs­þreki getur tekið marga mán­uði.

COVID-19 leggst þungt á önd­un­ar­færi fólks svo það getur átt erfitt með að ná and­anum. Þó að aldr­aðir séu taldir í einna mestri hættu á að veikj­ast alvar­lega af sjúk­dómnum eru dæmi um að ungt fólk geri það líka. Johnson er 55 ára. Ekki er vitað hvar hann smit­að­ist.

Bretar hafa ekki heyrt rödd Johnsons í nokkra daga. Í stað­inn hefur Dominic Raab sem leysir hann af, komið fram fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar í fjöl­miðlum. Almenn­ingur í Bret­landi þekkir hann lítið. Hann hefur ekki enn tekið að fullu við valda­taumunum. Hann mun ekki hitta drottn­ing­una, líkt og siður er að for­sæt­is­ráð­herrar geri reglu­lega, og hann hefur ekki vald til að ráða og reka ráð­herra, svo dæmi séu tekin.

Á blaða­manna­fundi í gær sagð­ist Raab trúa því að Johnson muni snúa aftur til starfa innan skamms. „Ef eitt­hvað má full­yrða um Boris Johnson þá er það að hann er bar­áttu­jaxl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár