ASÍ og Icelandair Group komast að samkomulagi um að ljúka deilum sínum

Í dag stendur til að birta sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu ASÍ og Icelandair Group þar sem fyr­ir­tækið gengst við því að hafa brotið „góðar sam­skipta­reglur“ vinnu­mark­að­ar­ins þegar það sagði upp flug­freyjum. Með yfir­lýs­ing­unni lýkur öllum deilum milli aðila.

Drífa Snædal er forseti ASÍ og Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ og Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Samsett

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) var boðuð, með stuttum fyr­ir­vara, á fund sem hófst klukkan átta í morgun. Á þeim fundi var lögð fram sam­eig­in­leg yfir­lýs­ing ASÍ og Icelandair Group um að þau ljúki deilum sín á milli sem staðið hafa yfir frá því um miðjan júlí, þegar Icelandair Group sagði upp öllum starf­andi flug­þjónum og -freyjum og sagð­ist ætla að semja við annað stétt­ar­fé­lag en þeirra. Þær deilur voru á leið fyrir Félags­dóm en sam­kvæmt yfir­lýs­ing­unni verður fallið frá þeirri veg­ferð.

[links]Í yfir­lýs­ing­unni, sem Kjarninn hefur undir höndum þótt hún hafi ekki verið gerð opin­ber, segir að aðilar séu sam­mála um að lög­mæt og rétt við­brögð atvinnu­rek­enda og stétt­ar­fé­laga í erf­iðum og lang­dregnum kjara­deilum eigi að fara eftir þeim leik­reglum og lögum sem gildi í sam­skiptum aðila vinnu­mark­aðar sam­kvæmt lögum.

Síðan segir: „Það við­brögð Icelandair, þegar félagið taldi von­laust um frek­ari árangur í við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands, að segja upp öllum starf­andi flug­freyjum og flug­þjónum þann 17.7.2020 eru hörmuð enda brutu þau í bága við góðar sam­skipta­reglur sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins vilja við­hafa. Icelandair telur nauð­syn­legt fyrir fram­tíð félags­ins að virða stétt­ar­fé­lög og sjálf­stæðan samn­ings­rétt starfs­fólks síns sem tryggir frið um starf­semi félags­ins á gild­is­tíma kjara­samn­inga og á meðan leitað er lausna í kjara­við­ræðum. Aðilar munu leggja sig fram um að halda góðu sam­starfi og munu leggja sitt af mörkum til þess að end­ur­vinna og efla traust sín á milli.“

Með yfir­lýs­ing­unni segj­ast aðilar hennar vera sam­mála um að „með henni ljúki öllum deilum þeirra á milli um þá atburði sem áttu sér stað í sam­skiptum þeirra þann 17.7.2020 og mun hvor­ugur aðila gera kröfur á hinn vegna þeirra.“

[adspot]Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var umtals­verður stuðn­ingur við yfir­lýs­ing­una innan mið­stjórnar ASÍ, en þó ekki fullur. Aðdrag­andi hennar var sú að stjórn­endur Icelandair Group settu sig í sam­band við ASÍ og Flug­freyju­fé­lag Íslands í gær til að kanna sátt­ar­flöt. Loka­út­gáfa yfir­lýs­ing­ar­innar er enn ekki til­búin en stefnt var að því að hún yrði send út í dag.

Reglu­legur mið­stjórn­ar­fundur innan ASÍ fer svo fram eftir hádegið í dag.

Útboð Icelandair Group hófst í dag

Hluta­fjár­út­boð Icelandair Group, þar sem félagið ætlar að safna að minnsta kosti 20 millj­örðum króna í nýtt hlutafé, hófst í morgun. Á meðal þeirra fjár­festa sem helstar vonir eru bundnar við að taki þátt í útboð­inu eru líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi líf­eyr­is­sjóður. Stétt­ar­fé­lögin VR og Efling skipa stjórn­ar­menn í báða sjóð­ina, en for­svars­menn þeirra beggja hafa gagn­rýnt Icelandair harð­lega und­an­farið. Það hefur Drífa Snædal, for­seti ASÍ, líka gert. Í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í gær kall­aði hún upp­sagnir flug­þjóna og -freyja eina „gróf­ustu aðför að rétt­indum vinn­andi fólks hér á landi á síð­ari tím­um, aðför sem er þegar skráð á spjöld sög­unn­ar“.

Sam­bæri­leg gagn­rýni kom fram í grein Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur og Jónu Sveins­dótt­ur, stjórn­ar­manna í Efl­ingu sem báðar sitja í full­trúa­ráði Gildis líf­eyr­is­sjóð, sem birt­ist um helg­ina. Þar sagði m.a.: „Við mun­um aldrei una við það að eft­ir­­launa­­sjóður okk­ur verði not­aður til að nið­ur­­greiða ta­p­rekst­ur stór­­fyr­ir­tæk­is­ins Icelandair og árás­ir þess á grunn­rétt­indi launa­­fólks. Aldrei."

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem um ræðir funda í dag og á morgun til að taka ákvörðun um hvort þeir muni taka þátt í útboð­inu eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár