Svíþjóð og Noregur langt á undan öðrum löndum í vistvænum samgöngum

Hlutfall end­ur­nýj­an­legrar orku í sam­göngum var tölu­vert hærra í Svíþjóð og Noregi heldur en hér á landi, sam­kvæmt nýjum tölum frá Eurostat.

Með aukinni rafbílanotkun mun hlutfall samgangna sem gengur á endurnýjanlegum orkugjöfum hækka hér á landi.
Með auk­inni raf­bíla­notkun mun hlut­fall sam­gangna sem gengur á end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum hækka hér á landi. Mynd: Pexels

Tæpur þriðj­ungur allrar orku sem notuð var í sam­göngum í Svíþjóð árið 2020 kom frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum, en sam­svar­andi hlut­fall í Noregi nam 28 pró­sentum sama árið. Hér­lendis var hlut­fall hreinnar orku í sam­göngum aftur á móti aðeins tólf pró­sent. Þetta kemur fram á vef hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, Eurostat.

Samkvæmt Eurostat náði Evr­ópu­sam­bandið naum­lega eigin mark­miði um að láta 10 pró­sent orkunnar sem notuð er fyrir sam­göngur vera end­ur­nýj­an­lega árið 2020.

Hins vegar var hlut­fallið mjög breyti­legt á meðal aðild­ar­ríkja sam­bands­ins, til að mynda voru ein­ungis 5,3 pró­sent orkunnar í sam­göngum í Grikk­landi end­ur­nýj­an­leg. Sömu­leiðis var hlut­fallið undir 10,2 pró­senta með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ins, en græn orka nam ein­ungis 9,6 pró­sentum heild­ar­orkunnar til sam­gangna þar í landi.

Hlut­fallið á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum var þó nokkuð yfir með­al­tali ESB, en hér á landi nam það 12 pró­sentum á meðan það nam 13,4 pró­sentum í Finn­landi. Hlutfall end­ur­nýj­an­legrar orku var þó lang­hæst í Noregi og Svíþjóð, en þar nam það 28,7 og 31,9 pró­sentum.

Evr­ópu­sam­bandið skil­greinir allt líf­elds­neyti, líf­metan og svollað „grænt“ raf­magn sem end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa. Samkvæmt Eurostat má skýra hátt hlut­fall grænnar orku í sam­göngum í Svíþjóð vegna mik­illar notk­unar á líf­elds­neyti þar í landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár