Skoski þjóðarflokkurinn fengi 56 af 59 þingsætum í bresku kosningunum

Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn (SNP) fær 56 af þeim 59 þing­sætum sem Skotland fær í breska þing­inu í þing­kosn­ingum í Bret­landi í maí, sam­kvæmt nýrri könnun Ashcroft lávarður hefur látið gera.

Verka­manna­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndir demókratar myndu svo gott sem þurrkast út í Skotlandi og fylg­is­aukn­ing við Verka­manna­flokk­inn ann­ars staðar í land­inu núll­ast út verði þetta nið­ur­staðan.

Samkvæmt könn­un­inni myndu Íhalds­flokk­ur­inn og Verka­manna­flokk­ur­inn fá jafn­mörg sæti í þing­inu alls, 272 sæti hvor. Verka­manna­flokk­ur­inn fékk 258 sæti í kosn­ing­unum árið 2010, og íhalds­menn fengu 306 sæti.

[caption id="attachment_21992" align="align­right" width="192"] Nicola Sturgeon, leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins, verður í lyk­il­stöðu eftir kosn­ingar gangi kann­anir eftir.[/caption]

Íhalds­flokk­ur­inn er mjög óvin­sæll í Skotlandi og hefur til að mynda aðeins einn þing­mann nú. Því reynir Verka­manna­flokk­ur­inn nú að koma þeim skila­boðum á fram­færi í Skotlandi að með því að kjósa Skoska þjóð­ar­flokk­inn hjálpi fólk í raun Íhalds­flokknum að halda völdum og haldi David Cameron í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Til að koma í veg fyrir það verði að kjósa Verka­manna­flokk­inn, sem sé eini flokk­ur­inn sem sé nógu stór til að mynda rík­is­stjórn utan Íhalds­flokks­ins.

Hins vegar er allt útlit fyrir að Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn gæti einmitt hjálpað Verka­manna­flokknum að mynda rík­is­stjórn ef stóru flokk­arnir tveir verða svipað stórir. Flokk­ur­inn verður í lyk­il­stöðu ef engum einum flokki tekst að fá meiri­hluta, og leið­togi SNP, Nicola Sturgeon, hefur sagt að hún muni ekki styðja Íhalds­flokk­inn.

Ashcroft gerði könn­un­ina í átta kjör­dæmum af þeim 59 sem eru í Skotlandi. Kosn­inga­stjóri SNP, Angus Robert­son, segir að kann­anir af þessu tagi séu mjög hvetj­andi, en ekk­ert þing­sæti sé enn öruggt. „Það mik­il­væg­asta í þessum nið­ur­stöðum er að þær stað­festa að fylg­is­aukn­ingin við SNP er alveg jafn mikil á svæðum í Skotlandi sem kusu nei í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni og á þeim sem sögðu já,“ segir Robert­son.

Guardian tekur saman allar kann­anir og setur saman í gagna­grunn, og með því að bæta nýj­ustu könnun Ashcroft lávarðar í gagna­grunn­inn eru nið­ur­stöð­urnar ekki alveg eins góðar fyrir Skoska þjóð­ar­flokk­inn, en það munar þó ekki miklu. Samkvæmt Guardian myndi flokk­ur­inn fá 52 af 59 sætum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár