Góð teikn á lofti en fólk hvatt til að „ferðast innanhúss“ um helgina

Sótt­varna­læknir segir góð teikn á lofti um þróun far­ald­urs­ins, en lítið megi þó út af bregða, hópsmit gætu enn blossað upp. Almanna­varnir hvetja fólk til að fara ekki í ferða­lög um helg­ina. Einn ein­stak­lingur á tíræð­is­aldri lést á Land­spít­ala í gær.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á fund­inum í dag. Mynd: Almannavarnir

Einungis fimm manns greindust utan sótt­kvíar á land­inu í gær, en alls voru smitin 25 tals­ins. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði ánægju­legt að sjá hve fáir voru utan sótt­kvíar við grein­ingu, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Hlutfall jákvæðra sýna fer einnig lækk­andi og Þórólfur sagði góð teikn á lofti um að far­ald­ur­inn væri á nið­ur­leið, þó lítið mætti út af bregða, ný hópsmit gætu enn blossað upp.

Þjóðin ferðist innanhúss um helgina

Þórólfur sagði að enn ætti eftir að sjást meiri árangur af þeim hertu aðgerðum sem tóku gildi á land­inu öllu síð­asta laug­ar­dag og skor­aði á lands­menn um að halda áfram að taka þátt í aðgerð­unum.

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði að und­ir­tektir almenn­ings við hertum aðgerðum hefðu verið „mjög jákvæðar“, en hann beindi þeim til­mælum til allra lands­manna í dag að halda sig heima við um helg­ina og „ferð­ast inn­an­húss“.

Almanna­varnir hafa áhyggjur af því að fólk sé á ferð­inni á milli lands­hluta, bæði vegna hættu á útbreiðslu smita og slysum, sem gætu sett aukið álag á heil­brigð­is­kerfið.

Andlát á Landspítala í gær

Um 2.800 manns hafa greinst með COVID-19 hér á landi frá 15. sept­em­ber. Átta hafa lát­ist í þess­ari bylgju, en einn ein­stak­lingur á tíræð­is­aldri and­að­ist á Land­spít­al­anum í gær eftir að hafa smit­ast af COVID-19. Núna eru fjórir COVID-sjúk­lingar inniliggj­andi á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans og alls eru 71 á sjúkra­húsi vegna COVID-sýk­ingar.

Núna eru 762 í ein­angrun með virkt smit á land­inu og sagði Þórólfur á fundi dags­ins að hið mikla álag sem hefur verið á far­sótt­ar­húsum sem Rauði kross­inn starf­rækir fari nú minnk­andi.

Tilslakanir þurfi að vera hægar

Fram kom í máli Þórólfs á fund­inum að senni­lega yrði hægt að ráð­ast í til­slak­anir á þeim hörðu aðgerðum sem nú eru í gildi þann 18. nóv­em­ber næst­kom­andi og að á næstu dögum yrði farið yfir með hvaða hætti það yrði gert. Ljóst væri af feng­inni reynslu að fara þyrfti hægt í til­slak­anir.

Núver­andi aðgerðir gilda út 17. nóv­em­ber. Þórólfur sagð­ist að hefja að skoða það á næstu dögum hvernig hyggi­leg­ast væri að létta ein­hverjum af þeim hömlum sem nú eru í gildi í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár