Páfinn viðurkennir kynferðisofbeldi gagnvart nunnum innan kirkjunnar

Frans páfi segir að kyn­ferð­is­legt ofbeldi presta í garð nunna sé við­var­andi vanda­mál innan kaþ­ólsku kirkj­unnar. Fjöldi nunna hefur stigið fram og greint frá mis­notkun presta á und­an­förnum árum en þetta er í fyrsta skiptið sem páfi við­ur­kennir vanda­málið.

Frans páfi á blaðamannafundi
Frans páfi á blaða­manna­fundi Mynd: EPA

Frans páfi segir kyn­ferð­is­legt ofbeldi presta í garð nunna við­var­andi vanda­mál innan kaþ­ólsku kirkj­unnar. Und­an­farin ár hafa nunnur víða um heim stigið fram og sagt frá meintri kyn­ferð­is­legri mis­notkun presta en þetta er talið í fyrsta skiptið sem páfi við­ur­kennir vanda­málið. Frans páfi full­yrðir að Páfa­garður vinni að því að bæta stöðu mála og nú þegar hafi prestum verið vísað úr starfi. Frá þessu er greint á vef BBC.

Nunnur notaðar sem kynlífsþrælar

Frétta­menn spurðu Frans út í ásak­an­irnar um borð í flug­vél páfa þegar hann var á leið heim til Rómar frá Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum í gær. Páfinn stað­festi þá að kyn­ferð­is­legt ofbeldi gagn­vart nunnun af hendi presta og bisk­upa væri við­var­andi vanda­mál innan kaþ­ólsku kirkj­unnar. Frans sagði frá því að for­veri sinn í emb­ætti, Benedikt sext­ándi, hefði árið 2005 neyðst til þess að loka heilli nunnu­reglu í Frakk­landi eftir að upp komst að nunn­urnar sættu kyn­ferð­is­legu ofbeldi af hálfu prest­anna. Auk þess hefði í eitt skipti nunnur verið not­aðar sem kyn­lífs­þrælar í einni reglu. Hann full­yrti að ofbeldið ætti sér enn stað innan kirkj­unnar en þó aðal­lega í vissum söfn­uðum og þá sér­stak­lega nýjum söfn­uðum.

Í umfjöllun BBC seg­ir að þetta sé í fyrsta skiptið sem Frans páfi viður­kenni kyn­ferð­is­of­beldi presta í garð nunna. Páfinn full­yrti að Páfa­garður ynni að því að taka á vanda­mál­inu og bætti því við að nú þegar hefði ein­hverjum prestum verið vísað úr starfi.

Fordæma ofbeldið og leyndarhyggjuna

Í nóv­em­ber á síð­asta ári sendu Alþjóða­sam­tök kaþ­ólskra nunna, The Catholic Church's global organisation for nuns, frá sér til­kynn­ingu um að sam­tökin for­dæmdu þögg­un­ar­menn­ing­una og leynd­ar­hyggj­una sem ætti sér stað innan kirkj­unnar og kæmi í veg fyrir að nunnur stigju fram.

Fyrir nokkrum dögum for­dæmdi kvenna­tíma­rit Vatík­ans­ins, Women Church World, einnig mis­notk­un­ina og sagði frá því að í sum­um til­fell­um hefðu nunn­ur neyðst til að fara í þung­un­ar­rof, en þung­una­rof eru bönnuð sam­kvæmt kaþ­ólskri trú. Rit­stjóri blaðs­ins, Lucetta Scaraffia, sagði jafn­framt að við­ur­kenn­ing páfans á ofbeld­inu væri skref í rétta átt en ítrek­aði að kirkjan þyrfti að grípa til aðgerða. „Ef kirkjan heldur áfram að loka aug­unum fyrir hneyksl­inu, þá mun kúgun kvenna í kirkj­unni aldrei breyt­ast,“ sagði Lucetta. Hún sagði jafn­framt að það væri metoo-hreyf­ing­unni að þakka að fleiri nunnur væru að stíga fram.

Grimmdarverk presta gegn börnum

[links]Í ágúst í fyrra sendi Frans páfi kaþ­ólikkum um allan heim bréf þar sem hann afsak­aði og harm­aði grimmd­ar­verk presta innan kaþ­ólsku kirkj­unnar gagn­vart börnum. Hann gerði það í kjöl­far nýupp­kom­ins máls í Pann­syl­vaníu ríki, þar sem þús­undir barna voru mis­notuð af prestum kaþ­ólsku kirkj­unnar yfir ára­tuga­tíma­bil. Það beindi kast­ljós­inu enn einu sinni að þeim grimmd­ar­verkum sem prestar innan kaþ­ólsku kirkj­unnar bera ábyrgð á. Þá hafa margir af æðstu mönnum kirkj­unnar gerst sekir um yfir­hylm­ingu, með því að til­kynna ekki um glæpi presta til lög­reglu þrátt fyrir vit­neskju um þá.

Í bréfi sínu sagði Frans páfi, að hann for­dæmdi alla þá glæpi sem komið hafa upp á yfir­borðið. „Það er nauð­syn­legt að við getum við­ur­kennt og for­dæmt, með sorg og skömm, þau grimmd­ar­verk sem framin hafa verið af vígðum ein­stak­lingum, og öllum þeim sem falið hefur verið að vernda þá sem minna mega sín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár