Páfinn harmar glæpi presta gegn börnum

Prestar innan kaþ­ólsku kirkj­unnar hafa gerst sekir um að mis­nota þús­undir barna. Nýleg mál í Penn­syl­vaníu í Banda­ríkj­unum sýna að yfir­hylm­ingum var beitt til að þagga málin niður.

Frans páfi hefur ritað kaþ­ólikkum um allan heim bréf þar sem hann afsakar og harmar grimmd­ar­verk presta innan kaþ­ólsku kirkj­unnar gagn­vart börnum.

Nýupp­komin mál í Pann­syl­vaníu ríki, þar sem þús­undir barna voru mis­notuð af prestum kaþ­ólsku kirkj­unnar yfir ára­tuga­tíma­bil, hefur beint kast­ljós­inu enn einu sinni að þeim grimmd­ar­verkum sem prestar innan kaþ­ólsku kirkj­unnar bera ábyrgð á.

Þá hafa margir af æðstu mönnum kirkj­unnar gerst sekir um yfir­hylm­ingu, með því að til­kynna ekki um glæpi presta til lög­reglu þrátt fyrir vit­neskju um þá.

Í bréfi sínu segir Frans páfi, að hann for­dæmi alla þá glæpi sem komið hafa upp á yfir­borðið. „Það er nauð­syn­legt að við getum við­ur­kennt og for­dæmt, með sorg og skömm, þau grimmd­ar­verk sem framin hafa verið af vígðum ein­stak­lingum, og öllum þeim sem falið hefur verið að vernda þá sem minna mega sín. Við skulum biðja um fyr­ir­gefn­ingu fyrir syndir okkar og syndir ann­arra,“ segir Frans páfi í bréfi sínu, af því er fram kemur í umfjöllun CNN.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár