Prófessor telur Viðreisn ganga til liðs við meirihlutann

Ólafur Þ. Harð­ar­son pró­fessor í stjórn­mála­fræði telur Viðreisn eiga meira sam­eig­in­legt með frá­far­andi meiri­hluta­flokkum í Reykja­vík en hinum flokk­unum.

Ólafur Þ. Harð­ar­son pró­fessor í stjórn­mála­fræði hefur greint þá stöðu sem honum finnst lík­leg­ust í meiri­hluta­myndun í Reykja­vík. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Ólafur að hann telji lík­egra að Viðreisn fari með Sam­fylk­ingu, Vinstri grænum og Pírötum en Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins.

[links]Fyrir þessu nefnir Ólafur rök­semda­færslu í fimm liðum.

Í fyrsta lagi að Viðreisn sé nær þeim fyrr­nefndu í skipu­lags­málum. Sjálf­sagt nær Sjálf­stæð­is­flokki um mark­aðs­lausnir, en skipu­lags­málin hafi verið fyr­ir­ferð­ar­meiri í kosn­inga­bar­átt­unni.

Þá nefnir Ólafur að sam­kvæmt Gallup kom 51 pró­sent af fylgi Við­reisnar núna frá Bjartri fram­tíð og Sam­fylk­ingu 2014 (27% frá BF og 24% frá S). Um 17 pró­sent komu frá Sjálf­stæð­is­flokki, 7 pró­sent frá Vinstri grænum, 5 pró­sent frá Pírötum, 4 pró­sent frá Framsókn og 15 pró­sent frá þeim sem kusu ekki árið 2014. „Þessi hegðun kjós­enda er á skjön við þá mynd að Viðreisn sé bara klofn­ingur úr D. 63% kjós­enda Við­reisnar komu frá þeim sem kusu frá­far­andi meiri­hluta 2014,“ skrifar Ólafur.

Í þriðja lagi segir hann kjós­enda­prófíla Við­reisnar í Reykja­vík, til dæmis aldur, skóla­göngu og búsetu í hverfum, miklu lík­ari prófílum Sam­fylk­ingar og Pírata en Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins.

Ólafur nefnir einnig að margir for­ystu­menn Við­reisnar séu vissu­lega „flótta­menn“ úr Sjálf­stæð­is­flokki. „En reynslan sýnir að oft er lít­ill kær­leikur milli fyrrum flokks­fé­laga þegar leiðir hafa skilið. Td. verður fróð­legt að sjá hvað ger­ist í Vest­manna­eyjum.“

Síðast segir Ólafur borg­ar­stjóra­stól­inn vera samn­ings­at­riði. Hann heldur að bæði Dagur og Eyþór vildu frekar vera í meiri­hluta en minni­hluta, jafn­vel þó þeir fengju ekki þann stól. Dagur hafi verið for­maður borg­ar­ráðs 2010 til 2014, en Jón Gnarr borg­ar­stjóri. Besti flokk­ur­inn hafi reyndar verið stærri en Sam­fylk­ing.

„En allt er sosum opið og afar áhuga­vert að sjá hvernig kap­all­inn spil­ast,“ segir Ólafur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár