Þingmaður vill skýringar á hálfkáki nefndar vegna eignarhalds á 365

Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill fá að vita hvers vegna fjöl­miðla­nefnd ætl­aði ekki að kalla eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­hald 365 miðla eftir sam­ein­ingu fyr­ir­tæk­is­ins við fjar­skipta­fyr­ir­tækið Tal. Þetta kemur fram í fyr­ir­spurn sem Willum Þór hefur beint til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra á Alþingi um hlut­verk fjöl­miðla­nefndar og end­ur­skoðun laga um fjöl­miðla.

Kjarninn greindi frá því í des­em­ber 2014 að fjöl­miðla­nefnd ætl­aði ekki að kalla eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­hald 365 miðla eftir sam­ein­ingu fyr­ir­tæk­is­ins við Tal þrátt fyrir að end­an­legir eig­endur 18,6 pró­sent hlutar væru ekki sýni­legir á eig­enda­lista fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins. Í kjöl­farið af umfjöllun Kjarnans ákvað fjöl­miðla­nefnd að óska eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­haldið en nefndin hefur ekki gefið skýr­ingar hvað olli þeim sinna­skiptum.

Fjöl­miðla­nefnd hafa ekki borist upp­lýs­ingar um end­an­legt eign­ar­hald tveggja stórra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja, 365 miðla og DV ehf.. Þetta kom fram í svari Elfu Ýrar Gylfa­dóttur, fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­nefndar, við fyr­ir­spurn á Pressu­kvöldi Blaða­manna­fé­lags Íslands og Félags frétta­manna um svipt­ingar á fjöl­miðla­mark­aði í gær­kvöldi. Elfa Ýr sagði hins vegar að upp­lýs­ing­arnar væru að ber­ast og yrðu birtar á heima­síðu nefnd­ar­innar þegar þær væru komnar í hús.

Fullnægjandi svör hafa ekki borist


Ljóst er að eign­ar­hald á fjöl­miðlum og þær svipt­ingar sem hafa orðið á fjöl­miðla­mark­aði hafa náð athygli þing­heims. Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, lagði í gær fram fyr­ir­spurn á Alþingi um störf og hlut­verk fjöl­miðla­nefndar og end­ur­skoðun laga um fjöl­miðla til Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Hún er í tíu liðum.

Willum Þór vill meðal ann­ars fá að vita hvers vegna fjöl­miðla­nefnd taldi ekki ástæðu til að kalla eftir upp­lýs­ingum frá 365 miðlum um breyt­ingar á eign­ar­haldi þess fyr­ir­tækis um leið og breyt­ingar lágu fyrir og hvers vegna nefnd­inni hafi síðar snú­ist hugur og kallað eftir frek­ari upp­lýs­ingum.

365
365

Þann 16. des­em­ber greindi Kjarninn frá því að fjöl­miðla­nefnd yrði ekki upp­lýst um hverjir end­an­legir eig­endur 18,6 pró­sent hlutar í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365 miðlum væru og að hún myndi ekki fara fram á frek­ari upp­lýs­ingar um þá. Í kjöl­farið af umfjöllun Kjarnans snérist hugur fjöl­miðla­nefndar og hún ákvað að óska eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­haldið. Frestur var gef­inn til 5. jan­úar 2015 til að skila inn réttum upp­lýs­ingum og varð fyr­ir­tækið við því. Upp­lýs­ing­arnar voru hins vegar ekki full­nægj­andi og fjöl­miðla­nefnd hefur farið fram á frek­ari upp­lýs­ingar.

Kjarninn greindi frá því 29. des­em­ber að Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn séu á meðal ell­efu líf­eyr­is­sjóða sem eru nú óbeinir eig­endur að hlut í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365 miðlum í gegnum Auði 1 fag­fjár­fest­inga­sjóð. Alls eru eig­endur sjóðs­ins 26 tals­ins.

Einn þeirra, AC eign­ar­hald hf., á meira en tíu pró­sent hlut í sjóðnum. Það er félag í eigu margra stærstu hlut­hafa og stjórn­enda Virð­ingar, fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu sem stýrir Auði 1 sjóðnum. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Auðar 1 fyrir árið 2013 sem Kjarninn hefur undir höndum.

Nýjar upplýsingar um eignarhald DV


Á pressu­kvöldi sem haldið var í gær­kvöldi á vegum Blaða­manna­fé­lags Íslands og Félags frétta­manna, um svipt­ingar á fjöl­miðla­mark­aði, var Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, á meðal frum­mæl­enda. Aðspurð sagði hún að réttar upp­lýs­ingar um eign­ar­hald 365 miðla hefðu enn ekki borist. Þegar þær hefðu gert það yrðu þær upp­lýs­ingar birtar á heima­síðu nefnd­ar­innar.

Ein spurn­ing­anna sem Willum Þór vill fá svör við er hvort að fjöl­miðla­nefnd hafi kallað eftir upp­lýs­ingum um við­skipti og breyt­ingar á eign­ar­haldi DV og greint mögu­leg áhrif á rit­stjórn­ar­legt frelsi fjöl­mið­ils­ins?

[caption id="attachment_17668" align="alignnone" width="1024"] Björn Ingi Hrafns­son, útgef­andi DV, á pressu­kvöld­inu í gær.[/caption]

Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi DV, á pressukvöldinu í gær.
Björn Ingi Hrafns­son, útgef­andi DV, á pressu­kvöld­inu í gær.

Breyt­ing­arnar sem hann spyr um snú­ast um kaup sem Björn Ingi Hrafns­son leiddi á um 70 pró­sent hlut í DV sem gengu í gegn í des­em­ber. Upp­lýs­ingar um eign­ar­hald DV hafa hins vegar ekki verið upp­færðar á heima­síðu fjöl­miðla­nefndar síðan að yfir­takan gekk í gegn. Björn Ingi var líka á meðal frum­mæl­enda á pressu­kvöld­inu í gær. Í máli hans kom fram að aðrir í eig­enda­hópnum væru meðal ann­ars lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son (tíu pró­sent hlutur), Jón Óttar Ragn­ars­son (ell­efu pró­sent hlutur) og Steinn Kári Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri DV (tíu pró­sent hlutur). Auk þess sagði Björn Ingi að til stæði að selja 30 pró­sent hlut til við­bótar á næstu mán­uðum. Áður hafði Björn Ingi stað­fest að stór hluti kaup­verðs­ins á DV hefði verið fjár­magn­aður með láni frá selj­endum hlut­ar­ins. Sá hópur er leiddur af Þor­steini Guðn­a­syni og tók yfir DV í haust eftir harð­vítug átök við Reyni Trausta­son, fyrrum rit­stjóra DV og minni­hluta­eig­anda, og hóp sem honum teng­ist.

Átökin end­uðu með að Þor­steinn og við­skipta­fé­lagar hans tóku yfir DV og sögðu Reyni upp störfum. Þeir seldu síðan Birni Inga sinn hlut.

Vill upplýsingar um afskipti hjá 365


Í fyr­ir­spurn Willums Þórs er einnig að finna spurn­ingar um við­brögð fjöl­miðla­nefndar við því þegar Kristín Þor­steins­dóttir, þá útgef­andi 365 miðla sem starfar í umboði eig­enda mið­ils­ins, hafði afskipti af frétta­flutn­ingi á Vísi.is sem þáver­andi rit­stjórar 365 miðla sögðu að hafi brotið í bága við rit­stjórn­ar­reglur mið­ils­ins og lög um fjöl­miðla. Willum Þór spyr um hvort fjöl­miðla­nefnd hafi óskað eftir upp­lýs­ingum um málið og ef ekki, af hverju ekki?

[caption id="attachment_12503" align="align­right" width="225"] Ólafur Steph­en­sen, fyrrum rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, skrif­aði leið­ara sem opin­ber­aði óeðli­leg afskipti eig­enda að frétta­flutn­ingi.[/caption]

Ólafur Stephensen, fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins, skrifaði leiðara sem opinberaði óeðlileg afskipti eigenda að fréttaflutningi.
Ólafur Steph­en­sen, fyrrum rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, skrif­aði leið­ara sem opin­ber­aði óeðli­leg afskipti eig­enda að frétta­flutn­ingi.

Annar rit­stjór­inn, Ólafur Steph­en­sen, sagði í bréfi sem hann skrif­aði til starfs­manna 365 miðla þegar hann hætti störfum að þrengt hefði verið að rit­stjórn­ar­legu sjálf­stæði sínu. Ólafur hafði skömmu áður ritað leið­ara í Frétta­blaðið þar sem sagði meðal ann­ars: „Það eru ýmsar aðferðir til að hola hið rit­stjórn­ar­lega sjálf­stæði að innan. Ein getur verið að gera sífelldar athuga­semdir við frétta­flutn­ing sem teng­ist eig­end­unum og vona að það síist inn hjá stjórn­endum rit­stjórn­ar­innar að það sé betra að sleppa slíkri umfjöllun en að styggja eig­end­urna. Önnur getur verið að gera ekki beinar athuga­semdir við umfjöllun sem snýr að eig­end­unum, heldur skrúfa upp þrýst­ing­inn vegna ann­arra mála sem snúa að rit­stjórn­inni þannig að stjórn­end­urnir skilji sam­hengið. Það getur þurft sterk bein til að þola slíkan þrýst­ing. Sú þriðja getur svo verið að ráða til stjórn­un­ar­starfa á rit­stjórnum fólk sem er nægi­lega náið og hand­gengið eig­end­unum til að láta prinsipp um rit­stjórn­ar­legt sjálf­stæði ekki þvæl­ast fyrir sér“.

 

Fyrirspurn Willums Þórs í heild sinni:


1. Hvers vegna taldi fjöl­miðla­nefnd ekki ástæðu til að kalla eftir upp­lýs­ingum frá 365 miðlum um breyt­ingar á eign­ar­haldi um leið og breyt­ing­arnar lágu fyrir og hvers vegna sner­ist nefnd­inni síðar meir hugur og kall­aði eftir upp­lýs­ingum?
2. Hversu oft kall­aði fjöl­miðla­nefnd árin 2011–2014 eftir upp­lýs­ingum og gögnum um starf­semi fjöl­miðla og eftir hvaða upp­lýs­ingum var þá kallað?
3. Hvernig vinnur nefndin að því að sinna starfs­skyldum sínum, sem skv. 10. gr. laga um fjöl­miðla, nr. 38/2011, eru að efla fjöl­miðla­læsi, fjöl­breytni og fjöl­ræði í fjöl­miðlum og að standa vörð um tján­ing­ar­frelsið?
4. Hvernig túlkar nefndin rétt almenn­ings til upp­lýs­inga og hvernig sinnir nefndin varð­stöðu sinni um þann rétt?
5. Starfar fjöl­miðla­nefnd að því að kort­leggja fjöl­miðla­mark­að­inn, fylgj­ast með stöðu og þróun og safna upp­lýs­ingum þar að lút­andi? Safnar fjöl­miðla­nefnd og vinnur úr upp­lýs­ingum um ald­urs­dreif­ingu, kynja­hlut­föll, mennt­un­ar­dreif­ingu og mennt­un­ar­stig not­enda fjöl­miðl­anna, eða öðrum við­eig­andi upp­lýs­ingum?
6. Óskaði nefndin eftir upp­lýs­ingum um meint afskipti útgef­anda 365 miðla, starf­andi í umboði eig­enda, af frétta­flutn­ingi á fjöl­miðla­veit­unni Vísi sem rit­stjórar töldu brjóta í bága við rit­stjórn­ar­reglur mið­ils­ins og lög um fjöl­miðla? Ef ekki, hvers vegna ekki? Ef upp­lýs­inga var óskað hjá fjöl­miðla­veit­unni, hvers vegna heyrð­ist ekk­ert opin­ber­lega frá nefnd­inni um málið?
7. Hefur fjöl­miðla­nefnd kallað eftir upp­lýs­ingum um við­skipti og breyt­ingar á eign­ar­haldi DV og greint mögu­leg áhrif á rit­stjórn­ar­legt frelsi fjöl­mið­ils­ins?
8. Hvernig tryggir fjöl­miðla­nefnd jafn­ræði og gagn­sæi gagn­vart aðilum sem leita réttar síns hjá nefnd­inni vegna ágrein­ings við Blaða­mann­fé­lag Íslands þar sem félagið á full­trúa í nefnd­inni?
9. Hversu margar kvart­anir hafa borist fjöl­miðla­nefnd skv. 11. gr. laga um fjöl­miðla og hversu margar hafa verið afgreiddar með áliti?
10. Hver er staðan á end­ur­skoðun á lögum um fjöl­miðla sem er kveðið er á um í lög­unum að skuli fara fram innan þriggja ára frá setn­ingu þeirra? Stendur til að fara í þá vinnu ef hún er ekki þegar hafin?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár