26 nýir þingmenn myndu setjast á þing ef kosið yrði í dag

Gríð­ar­leg breyt­ing verður á þing­manna­liði þjóð­ar­innar ef nið­ur­stöður næstu kosn­inga verða í takti við það sem kann­anir sýna. Alls munu að minnsta kosti fjórir af hverjum tíu þing­mönnum ýmist ekki ná end­ur­kjöri eða hætta þing­mennsku að eigin frum­kvæði.

Viðbúið er að mikil end­ur­nýjun verði á Alþingi Íslend­inga eftir næstu kosn­ingar. Miðað við skoð­ana­könnun sem Frétta­blaðið birti í dag munu 23 sitj­andi þing­menn tapa þing­sætum sínum. Auk þess hafa þrír þing­menn sem mæl­ast inni á þingi, miðað við setu þeirra á fram­boðs­listum fyrir síð­ustu kosn­ingar, til­kynnt að þeir ætli ekki að bjóða sig aftur fram. Það eru Einar K. Guð­finns­son, Ögmundur Jónasson og Katrín Júl­í­us­dóttir.

Ef allir aðrir þing­menn sem sótt­ust eftir kjöri 2013 myndu bjóða sig aftur fram í sömu sætum og þá í kosn­ing­unum í haust þá myndu ein­ungis 37 þeirra ná kjöri. Alls myndu því 26 nýir þing­menn setj­ast á þing. Það myndi þýða að 41,3 pró­sent þing­heims myndi end­ur­nýj­ast.

Vert er þó að taka fram að stjórn­mála­flokk­arnir eiga eftir að raða á fram­boðs­lista sína og enn á eftir að til­kynna form­lega um hvenær næsti kjör­dagur verður.

Framsókn myndu tapa 14 þingmönnum

Það eru margar áhuga­verðar vend­ingar sem hægt er að lesa úr þeim breyt­ingum sem eru yfir­vof­andi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er til að mynda við það að missa 14 þing­menn sam­kvæmt könn­un­inni. Fer úr 19 þing­mönnum í fimm. Flokk­ur­inn fengi ein­ungis einn þing­mann í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sem er sögu­lega sterkt vígi flokks­ins. Miðað við fram­boðs­lista 2013 yrði sá Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Það þýðir að Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður flokks­ins, Elsa Lára Arn­ar­dóttir og Jóhanna M. Sig­munds­dóttir myndu tapa þing­sætum sínum.

Flokk­ur­inn myndi ekki síður bíða afhroð í Suð­ur­kjör­dæmi. Þar er hann nú með fjóra þing­menn en fengi einn kjör­inn ef kosið yrði í dag. Sigurður Ingi Jóhanns­son for­stæt­is­ráð­herra myndi einn ná kjöri fyrir flokk­inn þar. Þau Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, Haraldur Ein­ars­son og Páll Jóhann Pálsson - sem hefur reyndar þegar sagt að hann muni ekki fara aftur fram – myndu ekki ná inn á þing.

Hrunið í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur yrði algjört. 2013 fékk Framsókn tvo þing­menn í hvoru þeirra og var um að ræða mesta kosn­inga­sigur flokks­ins i höf­uð­borg­inni frá upp­hafi. Vigdís Hauks­dóttir og Karl Garð­ars­son – þing­menn í Reykja­vík suður – og Frosti Sig­ur­jóns­son og Sigrún Magn­ús­dóttir – þing­menn í Reykja­vík norður – myndu missa sæti sín. Sigrún hefur reyndar þegar sagt opin­ber­lega að hún sæk­ist ekki eftir end­ur­kjöri, Karl hefur enn ekki ákveðið sig og Vigdís er ekk­ert byrjuð að pæla í fram­boði. Frosti ætlar hins vegar fram og mikið er rætt um að Lilja Alfreðs­dóttir, sem gerð var að utan­rík­is­ráð­herra fyrir skemmstu, hefur verið orðuð við fram­boð í Reykja­vík. Hún hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún bjóði sig fram til þing­mennsku.

Framsókn vann líka mik­inn sigur í Kraganum í síð­ustu kosn­ingum. Eygló Harð­ar­dóttir, odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, myndi halda sæti sínu ef kosið yrði í dag en yrði eini þing­maður hans þar. Það þýðir að Willum Þór Þórsson og Þor­steinn Sæmunds­son, sem báðir ætla að bjóða sig aftur fram, myndu ekki ná kjöri.

Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, kjör­dæmi flokks­for­manns­ins, myndi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn missa tvo þing­menn. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Hösk­uldur Þór­halls­son myndu halda þing­sætum sínum en Líneik Anna Sæv­ars­dóttir og Þórunn Egils­dóttir féllu af þingi. Af þessum fjórum hafa þrír sagt að þeir ætli fram. Einungis Sig­mundur Davíð á eftir að svara til um það og fer vænt­an­lega að stytt­ast í að hann greini frá áformum sínum.

Tveir formannsframbjóðendur næðu ekki inn

Þeir flokkar sem skil­grein­ast sem jafn­að­ar­manna­flokkar virð­ast ekki eiga mikið erindi í íslenskri póli­tík um þessar mundir, að minnsta kosti ef marka er skoð­ana­kann­anir. Hver slík á fætur annarri sýnir að Björt Framtíð nái ekki inn manni á þing og að Sam­fylk­ingin nái að bæta metið í lágu fylgi sem flokk­ur­inn setti 2013. Samkvæmt könnun Frétta­blaðs­ins myndi Björt fram­tíð tapa öllum sex þing­mönnum sínum og Sam­fylk­ingin fara úr níu þing­mönnum í sex.

Þeir þing­menn Bjartrar fram­tíðar sem hverfa myndu af Alþingi eru Óttarr Proppé, for­maður flokks­ins, Páll Valur Björns­son, Björt Ólafs­dóttir, Guð­mundur Stein­gríms­son, Róbert Marshall og Bryn­hildur Pét­urs­dóttir. Hin þrjú fyrst­nefndu hafa öll til­kynnt að þau muni fara aftur fram í kom­andi kosn­ingum en hinn helm­ingur þing­flokks­ins hefur enn ekki ákveðið sig.

Staðan hjá Sam­fylk­ing­unni er einnig athygl­is­verð. Sam­an­lagt fylgi þeirra flokka sem bjuggu til Sam­fylk­ing­una var 37,8 pró­sent í síð­ustu kosn­ing­unum áður en hún var mynduð. Flokk­ur­inn beið algjört afhroð í kosn­ing­unum 2013 þegar hann fékk 12,9 pró­sent fylgi, heilum 16,9 pró­sentum minna en í kosn­ing­unum 2009. Það er skellur sem á sér vart hlið­stæðu í íslenskri stjórn­mála­sögu. Flokk­ur­inn virð­ist ekki vera að fara að spyrna sér upp frá þessum botni. Þvert á móti dalar fylgið áfram og mælist nú 8,3 pró­sent.

Það er líka athygl­is­vert að skoða hvaða þing­menn flokks­ins það eru sem myndu missa þing­sæti. Í þeim þriggja manna hópi eru nefni­lega tveir sem gefa kost á sér í for­manns­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar sem fram fer í næsta mán­uði, þau Oddný Harð­ar­dóttir og Helgi Hjörvar. Auk þeirra myndi Val­gerður Bjarna­dóttir detta út að óbreyttu. Katrín Júl­í­us­dóttir myndi halda sæti sínu á þingi – hún er annar þing­maður flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi – en Katrín hefur þegar sagt að hún muni ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Næstur á eftir henni á lista 2013 var enn einn for­manns­fram­bjóð­and­inn, Magnús Orri Schram. Sitjandi for­mað­ur­inn Árni Páll Árnason, sem mun einnig sækj­ast eftir end­ur­kjöri í júní, myndi halda þing­sæti sínu.

Píratar margfaldast

Þeir flokkar sem bæta við sig þing­sætum eru þrír. Þar ber auð­vitað fyrst að nefna Pírata. Þing­flokkur þeirra færi úr þremur þing­mönnum í 22 ef kosið væri í dag og flokk­ur­inn yrði stærstur á þingi. Alls segj­ast 31,8 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa flokk­inn í dag en 5,1 pró­sent kusu hann í síð­ustu kosn­ingum.

Allir sitj­andi þing­menn Pírata myndu halda sæti sínu. Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi myndu þeir Björn Leví Gunn­ars­son, Há­kon Einar Júl­í­us­son og Árni Þór Þor­geirs­son ná kjöri ásamt Birgittu Jóns­dóttur, odd­vita Pírata þar.

Í Suð­ur­kjör­dæmi er flokk­ur­inn með engan þing­mann en fengi fjóra ef kosið yrði í dag. Þeir ­Smári McCart­hy, Hall­dór Berg Harð­ar­son, ­Björn Þór Jóhann­es­son og Svafar Helga­son skip­uðu þessi fjögur sæti í síð­ustu kosn­ing­um.

Píratar myndu fá fimm þing­menn í hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu og yrðu langstærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni. Í dag er Ásta Guðrún Helga­dóttir eini þing­maður flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður eftir að Jón Þór Ólafsson steig til hliðar á miðju kjör­tíma­bili. Í næstu sætum á eftir henni á síð­asta fram­boðs­lista voru Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir, Sigríður Fossberg Thorlacius, Arnaldur Sig­urð­ar­son og Birkir Fannar Ein­ars­son. Þau eru öll um þrí­tugt.

Í Reykja­vík norður er Helgi Hrafn Gunn­ars­son eini þing­maður flokks­ins. Við myndu bæt­ast Halldóra Mogensen, Bjarni Rúnar Ein­ars­son, Salvör K. Giss­ur­ar­dóttir og Þórður Sveins­son.

Píratar fengu engan mann í Norð­aust­ur­kjör­dæmi árið 2013 en myndu fá tvo ef kosið yrði í dag. Þeir yrðu Aðal­heiður Ámunda­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Pírata, og Þórgnýr Thorodd­sen.

Sjálfstæðisflokkurinn í sókn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi einnig vinna að minnsta kosti varn­ar­sigur ef kosið yrði í dag. Flokk­ur­inn myndi bæta við sig tveimur þing­mönnum frá síð­ustu kosn­ingum sem verður að telj­ast afar ásætt­an­legur árangur miðað við ágjöf­ina sem flokk­ur­inn hefur fengið á kjör­tíma­bil­inu. Fjórir ráð­herrar flokks­ins hafa tengst spill­ing­ar­málum. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra vegna leka­máls­ins, Illugi Gunn­ars­son er lask­aður eftir Orku Energy-málið og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Ólöf Nordal, vara­for­maður hans, voru bæði í Panama­skjöl­unum. Samt mælist flokk­ur­inn með 29,9 pró­sent fylgi sem er meira en hann fékk í síð­ustu tveimur kosn­ingum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi halda öllum sínum 19 þing­mönnum inni. Til við­bótar myndu tveir nýir setj­ast á þing. Einn kæm úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi en hinn úr norð­vest­ur­kjör­dæmi. Samkvæmt fram­boðs­lista 2013 yrði það Ásta Kristín Sig­ur­jóns­dóttir. Beint á eftir henni er Jens Garðar Helgason, for­maður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Hinn yrði, sam­kvæmt lista, Eyrún Ingi­björg Sig­þórs­dóttir frá Tálkna­firði. Þar sem Einar K. Guð­finns­son ætlar að hætta þá myndi Sigurður Örn Ágústs­son, sem tekið hefur sæti sem vara­þing­maður á þessu kjör­tíma­bili og vakið eft­ir­tekt, einnig ná kjöri.

Álfheiður næst inn

Vinstri græn myndu halda öllum sínum þing­mönnum og bæta við sig tveimur, einum í Suð­ur­kjör­dæmi og einum í Reykja­vík suður. Flokk­ur­inn myndi fá 14 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag en fékk 10,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Álf­heiður Inga­dóttir, fyrrum þing­maður og ráð­herra, yrði næst inn í Reykja­vík suður sam­kvæmt fram­boðs­lista 2013 og þar á eftir kæmi Ingimar Karl Helgason blaða­maður.

Vinstri græn myndu fá einn þing­mann í Suð­ur­kjör­dæmi ef kosið yrði í dag. Miðað við lista flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar yrði það Arndís Soffía Sig­urð­ar­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár