Þrengt að dönskum menningarstofnunum

Framlög danska rík­is­ins til rekst­urs leik­húsa, safna og tón­list­ar­húsa verða skorin niður um 600 millj­ónir danskra króna (11.4 millj­arðar íslenskar krónur) á næstu fjórum árum. Danski menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann vill sömu­leiðis að Danska útvarpið, DR, fari í "megr­un­ar­kúr", en meiri­hluti dönsku þjóð­ar­innar er á annarri skoðun. Nið­ur­skurður til menn­ing­ar­mála og megr­un­ar­kúr heyrð­ust ekki nefndir fyrir kosn­ingar segja stjórn­ar­and­stæð­ingar.

Í ræðu sinni við setn­ingu danska þings­ins 6. októ­ber sagði Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra að Danmörk væri gott land, meðal þeirra bestu í heimi og það gætu Danir verið sam­mála um. Hann sagði jafn­framt að rík­is­stjórn sín, sem tók við eftir kosn­ing­arnar sl. sumar stæði frammi fyrir mörgum erf­iðum við­fangs­efnum. Ráð­herr­ann boð­aði aðhald á mörgum sviðum en lagði líka áherslu á að nú væri bjart­ara framundan í dönsku efna­hags­lífi.

Fyrsta stóra verk­efni þings­ins á hverju hausti er fjár­mála­frum­varpið. Þar birt­ast áherslur rík­is­stjórn­ar­innar og þegar þær liggja fyrir gleðj­ast sumir en aðrir verða fyrir von­brigðum. Sú rík­is­stjórn sem nú situr leggur, sam­kvæmt frum­varp­inu, mesta áherslu á heil­brigð­is­mál, mál­efni aldr­aðra og skatta­lækk­anir.

Minni framlög til leikhúsa og safna

Meðal þeirra sem ekki sjá ástæðu til að gleðj­ast yfir fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar eru for­stöðu­menn dönsku rík­is­lista­safn­anna og Kon­ung­lega leik­húss­ins. Þeir fá að finna fyrir sparn­að­arku­t­anum. Bertel Haarder menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur sagt í við­tölum að það sé skylda sín að fylgja ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar en allir flokkar á þing­inu sam­þykktu þennan hluta fjár­laga­frum­varps­ins, að Ein­ing­ar­list­anum und­an­skildum. Ráð­herr­ann sagð­ist í við­tali við dag­blaðið Politi­ken vona að bæði söfn, leik- og tón­list­ar­hús verði eftir sem áður fær um að sinna því sem hann nefndi kjarna­starf­semi. "Það er þó engan veg­inn öruggt að þetta verði hægt" sagði ráð­herr­ann.

Jørn Langsted sér­fræð­ingur í menn­ing­ar­hag­fræði og fyrr­ver­andi pró­fessor við Árósa­há­skóla segir hins­vegar að það sé alveg öruggt að nið­ur­skurð­ur­inn hafi mikil áhrif. Hann segir það frá­leitt að ímynda sér að söfnin, leik- og tón­list­ar­húsin geti skorið burt eitt­hvað "fitu­lag". Slíkt hafi aldrei verið til staðar í þessum stofn­unum og nið­ur­skurð­ur­inn þýði ein­fald­lega færri leik­sýn­ingar, sýn­ingar rík­is­safn­anna færri og fábreytt­ari og tón­leikum fækki.

Þjóðminjasafnið dregur saman seglin

Undir Danska Þjóð­minja­safnið, Nationalmuseet heyra sam­tals tólf söfn, flest þeirra sér­söfn, og auk þess all­mörg skip. Ókeypis aðgangur hefur til þessa verið að öllum söfnum sem undir Þjóð­minja­safnið heyra og ekki stendur til að þar verði breyt­ing á. Höf­uð­stöðvar safns­ins og jafn­framt stærsta ein­staka safnið er í mið­borg Kaup­manna­hafnar, skammt frá Krist­jáns­borg­ar­höll.

Yfir­stjórn Danska þjóð­minja­safns­ins hefur þegar gripið til aðgerða. Flota­safnið á Krist­jáns­höfn verður sam­einað her­sögu­safn­inu við Krist­jáns­borg, sér­sýn­ingum ýmis konar verður hætt eða slegið á frest og í athugun er hvort sá tími sem söfnin eru opin á degi hverjum verður styttur, en þau eru flest eða öll lokuð á mánu­dögum. Einn af yfir­mönnum Þjóð­minja­safns­ins sagði það dap­ur­legt að safnið skyldi neyð­ast til að draga saman seglin en ekki yrði hjá því kom­ist. Hann vakti jafn­framt athygli á að á síð­asta ári komu fjórtán og hálf milljón gesta á dönsk söfn, rúm­lega helm­ing­ur­inn á opin­beru söfnin. Hann benti líka á að gestir væru ákaf­lega ánægðir með opin­beru söfnin, á sér­stakri matsvog fengu þau 8.49 í með­al­ein­kunn hjá gest­unum, skal­inn er frá 0 -10.

Færri sýningar á Konunglega

Kon­ung­lega leik­húsið hefur um margra ára skeið glímt við rekstr­ar­vanda. Höf­uð­or­sakir þess vanda eru tvær. Önnur, og kannski meg­in­skýr­ingin, er þjóð­ar­gjöfin Óperu­húsið á Hólminum. Sjóður í eigu Mærsk-Møller fyr­ir­tæk­is­ins, kenndur við skipa­kóng­inn A.P Møller og eig­in­konu hans Chastine, færði dönsku þjóð­inni Óperuna, eins og húsið heitir, að gjöf en sjóð­ur­inn hafði áður keypt svæðið þar sem húsið stendur. Óperan var tekin í notkun með mik­illi við­höfn árið 2005. Þáver­andi stjórn Kon­ung­lega leik­húss­ins, en Óperan hluti þess frá upp­hafi, sagði þá strax að gjöfin væri höfð­ing­leg og það bæri að þakka en benti jafn­framt á að rekstur óperu­húss kost­aði mikið fé. Ef Óperan ætti að rísa undir nafni og bjóða eig­endum sínum, dönsku þjóð­inni, vand­aðar og góðar sýn­ingar yrði Kon­ung­lega leik­húsið að fá aukið rekstr­arfé. Þær óskir stjórn­ar­innar voru ekki upp­fylltar nema að mjög tak­mörk­uðu leyti og á allra síð­ustu árum hefur Óperan orðið að draga saman seglin, fækka upp­færslum og sýn­ingum, setja upp fámenn­ari verk. Auk Óper­unnar, með sína tvo sali, rekur Kon­ung­lega gamla leik­húsið við Kóngsins Nýja Torg og Sku­espil­hu­set við Nýhöfn­ina, með þremur sölum.

Þegar nýráðnum leik­hús­stjóra Kon­ung­lega bár­ust nið­ur­skurð­ar­frétt­irnr til eyrna varð honum að orði að kannski væri bara ein­fald­ast að selja gömlu leik­hús­bygg­ing­una við Kóngsins Nýja Torg. Ef hag­kvæmni ætti að vera leið­ar­ljósið lægi það í augum uppi. Leik­hús­stjór­inn vissi auð­vitað að slíkt kæmi aldrei til greina en sagði þetta sjálf­sagt fyrst og fremst til að vekja athygli á stöðu leik­húss­ins og skapa umræður. Í umræðum á danska þing­inu lagði menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann áherslu á að þrátt fyrir nið­ur­skurð og sparnað von­að­ist hann til að leik­húsið héldi áfram uppi öfl­ugri starf­semi og nefndi árin 2011 0g 2012 sem við­miðun. Leik­hús­fræð­ingur sem dag­blaðið Berl­ingske ræddi við sagði svona tal mark­laust "Afleið­ing­arnar af nið­ur­skurð­inum verða ódýr­ari og ein­fald­ari sýn­ingar, það veit ráð­herr­ann, skyn­ugur maður, mæta­vel". Í umræðum á þing­inu lagði Bertel Haarder áherslu á að leik­húsið sinnti betur en verið hefur land­inu öllu og nefndi auk þess mögu­leik­ann á að fá sér­staka styrkt­ar­að­ila að ein­stökum verk­efnum. "Ágætis hug­myndir sem hljóma vel en ekki endi­lega mjög raun­hæfar" sagði áður­nefndur leik­hús­fræð­ingur um þessi orð ráð­herr­ans.

Hvaða leiðir Kon­ung­lega leik­húsið hyggst fara til að mæta nið­ur­skurð­ar­kröf­unum kemur vænt­an­lega í ljós á næstu mán­uðum.

Danska útvarpið og megrunarkúrinn

Það er ekki ný bóla að deilt sé um Danska útvarpið, Danmarks Radio eins og það heitir. Í dag­legu tali kallað DR. Þeir flokkar sem telja sig hægra megin við miðju danskra stjórn­mála hafa löngum verið hávær­astir í gagn­rýni sinni. Sumir úr þeirra hópi telja DR alltof vinstri­s­innað í fréttaum­fjöllun sinni þótt aldrei hafi bein­línis verið sýnt fram á slíkt. Aðrir, og þeir eru fleiri í hópi stjór­mála­manna, sem segja DR ein­fald­lega orðið allt of stórt á dönskum fjöl­miðla­mark­aði. Örar breyt­ingar á fjöl­miðla­notkun, ekki síst sjón­varpi veki líka spurn­ingar um hvort rík­is­fjöl­mið­ill­inn þurfi að vera jafn stór á mark­aðnum og raun ber vitni.

DR rekur nú sex sjón­varps­rásir og átta útvarps­rásir. Bertel Haarder menn­ing­ar­mála­ráð­herra telur þessa stærð merki um ein­ok­un­ar­til­burði. Í fyrra gerði þingið sam­komu­lag um rekstur DR til næstu fjög­urra ára, sem­sagt til árins 2018. Þar er kveðið á um þjón­ustu­hlut­verk og fjár­mögnun DR, og einnig um hlut­verk TV2, sem er sömu­leiðis í eigu danska rík­is­ins en er að stórum hluta fjár­magnað með aug­lýs­inga­tekjum. Menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann segir að hann geti ekki gert neinar breyt­ingar á fjár­mögnun og rekstri DR, sé bund­inn af sam­komu­lag­inu frá því í fyrra en beindi því til stofn­un­ar­innar að huga að breyt­ingum áður en næst verður gengið frá rekstr­ar­sam­komu­lagi. Nokkrir þing­menn stjórn­ar­flokks­ins Venstre og Danska Þjóð­ar­flokks­ins hafa að und­an­förnu talað um að rétt­ast væri að taka upp sam­komu­lagið frá því í fyrra, með sér­stöku und­an­tekn­ing­ar­á­kvæði í því skyni að minnka umfang DR, ekki síst sem net­mið­ils. Mogens Jensen tals­maður Sós­í­alde­mókrata í fjöl­miðla­málum hefur bent á að slíkt tal sé fyrst og fremst í nösum við­kom­andi þing­manna, og algjör­lega órök­stutt.

Auk þess hafi þessir þing­menn sjálfir staðið að fjög­urra ára sam­komu­lag­inu í fyrra. Annars sé þetta inn­an­tómt tal, því ef beita eigi und­an­tekn­ing­ar­á­kvæð­inu um breyt­ingar þurfi allir flokkar á þing­inu að sam­þykkja það segir Mogens Jensen og fyrir því sé eng­inn vilji hjá stærsta flokki lands­ins, Sós­í­alde­mókrötum. Það sé líka athygl­is­vert að þessir þing­menn sem nú tali um breyt­ingar á DR hafi ekki minnst á slíkt einu orði, frekar en nið­ur­skurð til menn­ing­ar­mála, fyrir kosn­ingar enda viti þeir að slík sjón­ar­mið eigi lít­inn hljóm­grunn meðal þjóð­ar­innar.

Danska þjóðin vill óbreytt eða öflugra DR

Dag­blaðið Berl­ingske gerði fyrir nokkrum dögum við­tæka könnun um við­horf lands­manna til DR. Þar kom fram að meiri­hluti svar­enda er mjög ánægður með DR og vill að það starfi áfram með svip­uðum hætti og nú eða styrki sig enn frekar í sessi. Margir bentu á að það væri fyrst og fremst DR að þakka að danskir sjón­varps­mynda­flokkar skuli njóta jafn mik­illa vin­sælda og virð­ingar í löndum sem raun ber vitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár