Falsaðar fréttir náðu meiri útbreiðslu en alvöru fréttir

Síðustu þrjá mán­uði kosn­inga­bar­átt­unnar í Banda­ríkj­unum fengu tutt­ugu vin­sæl­ustu fölsuðu frétt­irnar miklu meiri virkni á Facebook en tutt­ugu vin­sæl­ustu alvöru frétt­irnar.

Vin­sæl­ustu fölsuðu kosn­inga­frétt­irnar fyrir banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar náðu meiri útbreiðslu á Facebook en vin­sæl­ustu raun­veru­legu frétt­irnar gerðu á síð­ustu þremur mán­uðum kosn­inga­bar­átt­unnar, sam­kvæmt nýrri athugun sem BuzzFeed News gerði. Athug­unin náði til stærstu fjöl­miðla í Banda­ríkj­unum.

Þær tutt­ugu fölsuðu fréttir sem höfðu mesta virkni, eða enga­gement eins og það er kallað á ensku, sem er fjöldi deil­inga, athuga­semda og við­bragða, fengu yfir 8,7 milljón deil­ingar, athuga­semdir og við­brögð á Facebook. Tuttugu vin­sæl­ustu alvöru frétt­irnar fengu á sama tíma 7,3 millj­ónir deil­inga, athuga­semda og við­bragða.

Fram að þessum síð­ustu þremur mán­uðum hafði kosn­inga­efni frá stærstu frétta­miðl­unum fengið marg­falt meiri virkni en fals­aðar fréttir. Á tíma­bil­inu febr­úar til apríl var virknin til dæmis um tólf millj­ónir á alvöru frétt­irnar en þrjár millj­ónir á þær fölsuðu.

Af þessum tutt­ugu vin­sæl­ustu fölsku fréttum voru sautján annað hvort mjög til stuðn­ings Donald Trump eða mjög gegn Hillary Clinton. Tvær stærstu frétt­irnar voru um að Benedikt páfi styddi Trump og að Clinton hafi selt vopn til Íslamska rík­is­ins.

Mikið hefur verið rætt um rangar fréttir og um mátt eða van­mátt sam­fé­lags­miðla á borð við Facebook og Twitter í því að stemma stigu við útbreiðslu þeirra. Mark Zuckerberg, for­stjóri Facebook, sagði fyrst að það væri brjáluð hug­mynd að halda að fals­aðar fréttir á Facebook hafi haft áhrif á kosn­ing­arnar. En nú er engu að síður hafin vinna hjá Facebook við að reyna að stöðva útbreiðslu efnis sem er falsað. Einnig hefur verið greint frá því að Google ætli að banna þekktar síður sem birta falsað efni í aug­lýs­ingum.

Paul Horner er einn þeirra sem hefur verið dug­legur við að skrifa fals­aðar fréttir, sem hafa náð mik­illi útbreiðslu á Facebook og Twitter, og er eins konar frum­kvöð­ull í þessum málum. Hann talar um þetta við Washington Post. Hann segir að honum finn­ist hann bera ábyrgð á því að Trump sé á leið í Hvíta húsið. Stuðn­ings­menn hans hafi ein­fald­lega verið mjög ginn­keyptir fyrir fölsuðum fréttum. „Stuðn­ings­menn hans sann­reyndu ekki neitt – þeir deildu öllu, trúðu öllu. Kosn­inga­stjór­inn hans deildi frétt­inni minni um að mót­mæl­andi hefði fengið 3.500 doll­ara eins og það væri stað­reynd. Ég bjó það til. Ég setti fals­aða aug­lýs­ingu á Craigslist,“ segir hann og á við frétt um að mót­mæl­andi á kosn­inga­fundi Trumps hafi fengið borgað fyrir.

Margir sem unnu við kosn­inga­bar­áttu Trumps deildu efni frá Horner. Hann seg­ist hafa sett þessar fölsuðu fréttir fram til þess að láta stuðn­ings­menn Trump líta illa út. „Ég hélt að þau myndu stað­reynda­tékka þetta, og það myndi láta þau líta enn verr út. Ég meina, þannig virkar þetta alltaf. Einhver deilir ein­hverju sem ég skrifa, og kemst svo að því að það sé falsað, og lítur út eins og auli. En stuðn­ings­menn Trump – þeir bara halda áfram með það. Þeir stað­reynda­tékka aldrei neitt! Nú er hann í Hvíta hús­inu. Þegar ég lít til baka, í stað þess að skemma fyrir kosn­inga­bar­átt­unni, þá held ég að ég hafi hjálpað henni. Það er ekki góð til­finn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár